Lárus M. K. Ólafsson hefur lokið störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. Hann tilkynnti starfslokin í færslu á Facebook í kvöld.
Lárus var ráðinn aðstoðarmaður Jóhanns Páls í janúar 2025.
„Þetta hefur verið geðveikt partý og verður það áfram. Ég kveð með miklu þakklæti og tilhlökku fyrir því sem tekur við hvað sem svo það verður,“ skrifaði Lárus á Facebook.