25 sjómönnum var bjargað úr brennandi olíuflutningaskipi á Hormússundi í gær eftir að skipið varð fyrir árás. Yfirvöld í Óman komu skipverjunum til bjargar.
Íranski byltingarvörðurinn segir að skipið hafi slökkt á öllum siglinga- og staðsetningarbúnaði og reynt, með stuðningi bandaríska hersins, að sigla leið sem var þeim óheimil.
Íran hefur skilgreint sérstaklega hvaða siglingarleiðir eru leyfilegar á sundinu. Annars staðar hafa þeir komið fyrir töluverðu magni tundurdufla, en siglingaleiðin sunnarlega í sundinu, nálægt ströndum Ómans, er lokuð.
Ekki er vitað hvort eldurinn hafi kviknað af völdum tundurdufls eða beinnar árásar.