Rússlandsher gerði árásir á orkuver í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í kvöld með þeim afleiðingum að fjögur svæði borgarinnar eru án rafmagns. Fréttamiðillinn Kyiv Independent greinir frá.
Þá sagði Vitali Klitschko borgarstjóri á samfélagsmiðlinum Telegram að þrjár drónaárásir hafi verið gerðar á vatnsveitur og því er svonefndur vinstri bakki borgarinnar líka án vatns.
Rússneski herinn hefur í síauknum mæli herjað á orkuinnviði Úkraínu í aðdraganda vetrarins. Í gær lét einn lífið þegar drónaárás hæfði Zaporizhzhia-kjarnorkuverið. Í sömu árásarhrinu sátu 350 þúsund manns í borginni Dnipro uppi án rafmagns.