Þegar Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi eftir bréf fyrir ofurhugann.
„Hún var að hrósa mér fyrir þolið og viljastyrkinn til að komast svona langt og var í rauninni að segja mér að ég ætti að fara varlega og ekki keyra mig út fyrir samfélagsmiðla.“
Er það eitthvað sem þú munt taka til umhugsunar?
„Já, 100 prósent en samt er ég óendanlega stoltur af sjálfum mér fyrir að hafa klárað þetta og það voru hátt í 100 manns að elta mig þarna í lokin og 5.000 áhorfendur í beinni.“ Áhorfsmet hafi verið slegið í dag en hann mæli ekki með því að ungir aðdáendur reyni að leika athæfið eftir.
Hvernig líður þér eftir þetta?
„Mér líður ótrúlega vel. Ég er að drepast í öllum líkamanum, bólginn og þrútinn, allur skorinn. En andlega er ég bara í skýjunum.“
Vildi bæði veita innblástur og auglýsa smáforrit
Axel segist hafa skriðið á bilinu þrjá til tíu klukkutíma á degi hverjum en í dag hafi hann skriðið í um sex tíma. Skilaboðin sem hann vilji senda út með þessu séu skýr.
„Það sem þú trúir í hausnum þínum, sama hversu fáránlegt, sama hversu erfitt það er, þá getur þú náð þangað sem þú vilt ef þú leggur þig alltaf fram og notar hausinn.“
„Svo var ég í rauninni að auglýsa appið Alarm Friends. Eins og við Íslendingar vitum þá erum við mjög þunglynd þjóð þegar myrkrið fer að bresta á. Það á enginn að vakna einn. Þessi árstími er erfður fyrir krakka á grunnskólaaldri og markmiðið var í rauninni að biðja Höllu um að vera vinur minn í appinu. Mig langaði að fá að vakna með henni.“
Gunnar Björn Gunnarsson hefur verið með Axel í för á þessu ferðalagi og segist hafa þróað umrætt símaapp sem gæti útleggst sem vekjaraklukkuvinir.
„Hugsunin á bak við þetta kom þegar ég var að vakna einn þunglyndur fyrir svona fimm árum. Þá hugsaði ég að það væri nú gaman að geta vaknað með bara einhverjum.“
„Það eru engar myndir og þetta eru bara nöfn. Þetta er ekki samfélagsmiðill upp á það að geta spjallað saman. Þú getur vaknað með fólki, þú getur búið til plön eins og Facebook-viðburði og afmæli.“
Sem dæmi sé Axel kominn með yfir níutíu vini á þessu appi. Það fólk geti þá séð hvenær hann vaknaði, hvort hann frestaði hringingunni og sent skilaboð.
„Þetta er frítt fyrir alla að eilífu ef þú nærð í það árið 2026. Þá áttu allt sem kemur frá Alarm Friends. Þetta er ekki hugsað til að græða, heldur bara til að gefa eitthvað gott.“
Fréttin er í vinnslu.