Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur samþykkt sölu á 500 Patriot-loftflaugum til Úkraínu, að verðmæti 2,1 milljarða bandaríkjadala, andvirði rúmlega 250 milljarða íslenskra króna. Reuters greinir frá.
Flaugarnar eru Úkraínumönnum mikilvægar til að verjast loftárásum Rússa.
Í tilkynningu frá bandaríska utanríkisráðuneytinu segir að „viðskiptin muni styðja við utanríkisstefnu Bandaríkjanna og markmið þeirra í þjóðaröryggismálum með því að auka öryggi vinaþjóðar sem stuðli að pólitískum og efnahagslegum stöðugleika í Evrópu.“
Jafnframt segir að Úkraína muni greiða fyrir flaugarnar með aðstoð Kanada, Þýskalands og Noregs auk lána frá Evrópusambandinu. Bandaríkin komi ekki að fjármögnun viðskiptanna.
Fyrr í vikunni sagði Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, að Úkraína hefði beðið í nærri mánuð eftir því að Bandaríkin samþykktu að veita Úkraínu frekari aðgang að flaugunum.