Íbúar Hörgársveitar hafa rofið fjögurra talna múrinn en nú búa þar fleiri en þúsund manns. Sveitarfélagið greinir frá þessu í tilkynningu.
Íbúum í Hörgársveit hefur fjölgað um 83% á síðasta áratug en árið tvö þúsund og sextán bjuggu þar 547 manns.
Af þessu tilefni veitti sveitarfélagið íbúum númer 1000 og 1001 sérstakt viðurkenningarskjal í dag til að marka tímamótin. Það eru hjónin Kristín Björk Gunnarsdóttir og Steingrímur Karlsson sem fleyttu sveitarfélaginu yfir þennan áfanga.
Líf í gömlu síldarverksmiðjunni
Sveitarfélagið Hörgársveit varð til árið tvö þúsund og tíu við sameiningu Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps en helstu þéttbýliskjarnarnir eru Hjalteyri og Lónsbakki sem er nálægt bæjarmörkum Akureyrar.
Á Hjalteyri var eitt sinn stærsta síldarverksmiðja Evrópu. Hún var reist árið 1937 af útgerðarfélaginu Kveldúlfi en lagðist af þegar síldin hvarf af miðunum. Rýmið hefur síðan gengið í endurnýjun lífdaga og er nú lifandi miðstöð skapandi greina, ferðaþjónustu og nýsköpunar.