Tveir kínverskir ríkisborgarar voru dæmdir í fangelsi í Kaliforníu í dag eftir að þeir viðurkenndu að hafa reynt að fá starfsmenn bandaríska hersins til að njósna fyrir kínversk yfirvöld. Þeir voru handsamaðir í júní 2025.
Mennirnir, Liren Lai og Yuance Chen, játuðu sig seka og voru dæmdir í 30 mánaða alríkisfangelsi og þriggja ára skilorðsbundið eftirlit að því loknu.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna greindi frá því að leynileg njósnastarfsemi mannanna hafi meðal annars falið í sér að koma á fót leynilegum afhendingarstöðvum. Þar var hægt að koma fyrir reiðufé í skiptum fyrir upplýsingar sem vörðuðu þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
Þeir söfnuðu einnig upplýsingum um hermenn og herstöðvar og reyndu að fá starfsmenn hersins til að gerast njósnarar.
Stunduðu njósnir að minnsta kosti frá 2021
Lai kom til Bandaríkjanna á ferðamannaáritun og fékk Chen, sem hefur fasta búsetu í landinu, til liðs við sig. Til að byrja með var Lai milliliður Chens og kínverskra njósnafulltrúa, þar til Chen gat tekið við beinum fyrirmælum.
Samkvæmt dómsmálaráðuneytinu störfuðu mennirnir fyrir þann anga kínverska ríkisins sem sér um njósnir erlendis og gagnnjósnir. Það hefðu þeir að minnsta kosti gert frá maí 2021.