Úrskurður Trinu Thompson, dómara í norðurhluta Kaliforníu, heftir aðgerðir stjórnarliða Trumps sem hafa gert tilraunir til að takmarka atkvæðagreiðslu fólks í þingkosningunum 3. nóvember sem þeir telja að séu mögulega ekki bandarískir ríkisborgarar.
„Hinir ákærðu skulu ekki hóta, hræða eða þvinga kjörstjórnendur eða starfsmenn ríkis eða sveitarfélaga til að krefjast þess að þeir stöðvi vinnslu atkvæðaseðla skráðra kjósenda eingöngu á þeirri forsendu að atkvæðaseðillinn tilheyri einstaklingi sem ákærðir halda því fram að sé ekki hæfur til að kjósa,“ skrifaði Thompson í úrskurði sínum.
Reyndu að ógilda 20 þúsund atkvæði
Repúblikanaflokkur Donalds Trumps forseta á það á hættu á að missa meirihluta sinn á þinginu í kosningunum og margir gagnrýnendur hans hafa sakað stjórn Trumps um að reyna að hafa áhrif á úrslitin.
Á miðvikudag hafnaði annar alríkisdómari tilraunum dómsmálaráðuneytisins til að ógilda atkvæðaseðla fleiri en 20 þúsund kjósenda í Kaliforníu sem ráðuneytið taldi hugsanlega ekki vera ríkisborgara. Dómarinn fordæmdi aðgerðina og kallaði hana „ósvífin afskipti“ af kosningum.