Saltvítið við Evrópustrendur
Þegar Miðjarðarhafið þornaði upp
FFyrir 200 milljónum ára voru öll meginlönd Jarðar enn meira og minna sameinuð í eina risastóra heimsálfu, sem við köllum Pangeu. Ekki var Pangea eins og ein og samfelld pönnukaka, heldur gekk mikið og breitt hafsvæði inn í hana austan frá. Þar var Tethys-haf, sem átti eftir að verða eitt af stórhöfum jarðsögunnar.
Pangea leysist upp
Um þetta leyti tóku heljarkraftar landreksins að brjóta Pangeu í sundur, fyrst í tvo meginhluta. Norðurhlutann köllum við Lárasíu og í honum voru meginlandsflekarnir sem síðar urðu Norður-Ameríka, Evrópa og stór hluti Asíu. Suðurhlutann köllum við Gondwanaland og til hans heyrðu Afríka, Suður-Ameríka, Indland, Ástralía og Suðurskautslandið.
Og leið nú og beið. Gondwanaland tók að liðast í sundur og Lárasía klofnaði milli Norður-Ameríku og Evrópu. Milli þeirra opnaðist Atlantshafið, fyrst mjótt en breikkaði síðan jafnt og þétt.
Afríka hafði á meðan slitið sig frá gömlum félögum sínum í Gondwanalandi og …