Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sagði að flaugarnar yrðu alfarið fjármagnaðar með framlögum frá Kanada, Noregi og Þýskalandi auk láni frá Evrópusambandinu, segir í umfjöllun Reuters. Bandaríkin tæku ekki þátt í fjámögnun kaupanna. Salan er metin á um 2,1 milljarð bandaríkjadala eða X íslenskra króna.
Volodímír Selenskí Úkraínuforseti varaði við því að mörg ár gætu tekið fyrir flaugarnar að berast til Úkraínumanna, að því er kemur fram í frétt BBC. Hann hefur ítrekað að Bandaríkin afhendi flaugarnar með hraði en þær séu eina vörn Úkraínu gegn loftárásum Rússa.
Sjá einnig: Bað Trump um „vetrarpakka“
Stirt hefur verið á milli Donalds Trump Bandaríkjaforseta og Selenskís Úkraínuforseta á síðustu vikum. Trump tilkynnti meðal annars dísilsamning við Rússland og hefur ítrekað gagnrýnt Selenskí fyrir árásir Úkraínuhers á rússneska orkuinnviði.