Nýjar upp­lýsingar um morðið á Hrafn­hildi Lilju á­tján árum síðar - Vísir

Nýjar upp­lýsingar um morðið á Hrafn­hildi Lilju á­tján árum síðar - Vísir

Nýjar upp­lýsingar um morðið á Hrafn­hildi Lilju á­tján árum síðar - Vísir

Hrafnhildur Lilja var vinamörg og ævintýragjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skilaði sér aldrei heim því eftir stutta dvöl í landinu var hún myrt á hrottafenginn hátt.

Eftir stendur fjölskylda Hrafnhildar Lilju í sárum öllum þessum árum síðar og ótal stórum spurningum er enn ósvarað. Þrátt fyrir að fjórir hefðu verið handteknir vegna málsins var það talið óupplýst í 18 ár.

Fjallað er um morðið í nýjasta þætti Eftirmála í umsjón Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnar Yaghi. Þar ræðir Sigurlaug um systurdóttur sína, rannsókn málsins og áhrifin á fjölskylduna og greinir jafnframt frá upplýsingum sem henni bárust nýlega frá íslenskum lögregluyfirvöldum um mann sem sagður er grunaður um morðið.

„Draumar hennar voru alltaf stórir“

Hrafnhildur ólst upp á Ólafsfirði og stundaði nám í tölvunarfræði við Háskólann á Akureyri. Hún hafði starfað sem rekstrarstjóri hjá Sporthúsinu í Kópavogi en var jafnframt ævintýragjörn og ferðaðist mikið.

Sigurlaug lýsir henni sem greindri, forvitinni og metnaðarfullri frá unga aldri.

„Hrafnhildur var alveg einstök manneskja. Bara strax og hún fæddist þá var hún með mikinn karakter,“ segir hún og rifjar upp að Hrafnhildur hafi verið rólegur en skemmtilegur og spyrull krakki.

Hún var bara eldklár og draumar hennar voru alltaf stórir, bara alla tíð.

Hrafnhildur var mikið í íþróttum, meðal annars á skíðum og í fótbolta, og dreymdi um að kenna dans á skemmtiferðaskipi. Sigurlaug minnist þess þegar hún lagði undir sig þvottahús fjölbýlishússins þar sem hún bjó til að æfa zumba. Henni hafi verið mikið í mun að prófa nýja hluti og fylgja hugmyndum sínum eftir.

Síðasta ferðalag Hrafnhildar var heimsreisa þar sem hún kom meðal annars við í New York, Dúbaí og Ástralíu. Hún endaði í strandbænum Cabarete í Dóminíska lýðveldinu, þar sem hún fékk starf á hóteli fyrir brimbrettafólk. Hún vann sig fljótt upp í stjórnunarstöðu og tók á endanum við rekstri hótelsins.

Þrátt fyrir fjarlægðina hélt Hrafnhildur nánu sambandi við fjölskylduna, ekki síst ömmu sína, sem hún ræddi reglulega við á netinu. Að sögn Sigurlaugar leið henni vel og ekkert benti til þess að hún væri í hættu.

„Hún var bara að njóta lífsins og það var bara allt skemmtilegt og gaman.“

Fannst látin á hótelherbergi

Þann 23. september 2008 var greint frá því að íslensk kona á þrítugsaldri hefði fundist látin á hóteli í Dóminíska lýðveldinu daginn áður.

Fljótlega kom í ljós að þar var Hrafnhildur á ferð, aðeins 29 ára gömul, og að andlát hennar væri rannsakað sem morð.

Í frétt Vísis 24. september kom fram að lögregla í Puerto Plata hefði handtekið fjóra einstaklinga vegna málsins, þrjá karla og eina konu. Tveir höfðu starfað á hótelinu en hinir tveir voru kunningjar Hrafnhildar. Einn var grunaður um morðið sjálft en hinir taldir geta veitt upplýsingar.

Krufning leiddi í ljós að Hrafnhildur hafði látist af völdum þungs höfuðhöggs. Hún var einnig með áverka víða um líkamann, meðal annars eftir hníf, og var talin hafa verið látin í um 15 klukkustundir þegar hún fannst. Morðið var framið á Extreme-hótelinu þar sem hún bjó og starfaði.

Næstu daga beindi lögreglan sjónum sínum að mönnum sem Hrafnhildur hafði mögulega átt í ástarsambandi við.

Í frétt Vísis 25. september var Frederick Franklin Genao nafngreindur sem grunaður um morðið. Kelvin Corniel Fermín, sem talinn var fyrrverandi kærasti hennar, og Paola Jimenez Rodriguez, starfsmaður hótelsins, voru einnig í haldi. Rannsakað var hvort þau síðarnefndu hefðu verið í vitorði með hinum grunaða og lögreglan taldi afbrýðisemi mögulegt tilefni morðsins. Engin staðfest niðurstaða fékkst þó um þá kenningu.

Sögðu að hún hefði tekið eigið líf

Fljótlega vöknuðu alvarlegar spurningar um rannsókn lögreglunnar.

Í frétt á Vísi 26. september var haft eftir Junior Enrique, rannsóknarblaðamanni dagblaðsins El Nuevo Norte í Cabarete, að lögreglan hefði upphaflega sagt fjölmiðlum að Hrafnhildur hefði tekið eigið líf.

Blaðamanninum höfðu borist ljósmyndir af líki Hrafnhildar sem sýndu að hún hafði hlotið mikla áverka. Hann birti myndirnar og sagði það hafa orðið til þess að lögreglan rannsakaði málið af meiri alvöru.

Þegar íslensk fréttastofa leitaði svara hjá lögreglunni afsakaði lögreglan fyrstu upplýsingarnar og staðfesti að málið væri rannsakað sem morð.

Á sama tíma var þeim þremur einstaklingum sem enn voru í haldi sleppt vegna skorts á sönnunargögnum. Sigurlaug segir að fjölskyldan hafi frá upphafi verið mjög ósátt við hvernig staðið var að rannsókninni og telur meðal annars að mikilvægum sönnunargögnum hafi ekki verið safnað. Til að mynda voru ekki tekin DNA-sýni af nöglum Hrafnhildar eða varnaráverkum hennar. 

Óvissa og sorg

Í þættinum rifjar Sigurlaug upp daginn sem hún frétti af andláti Hrafnhildar.

„Ég var búin að vera hjá mömmu hennar og pabba um kvöldið, fór svo bara heim að sofa og svo komu þau klukkan fimm um morguninn og vöktu mig til að segja mér þetta.“

Hún segir að næstu dagar hafi verið hræðilegir og sérstaklega erfitt að þurfa að segja ömmu Hrafnhildar frá því sem gerst hafði. Fjölskyldan þurfti jafnframt að koma líki Hrafnhildar heim til Íslands. Sigurlaug segir að heimflutningurinn hafi tafist og að biðin hafi að hennar minni verið um tíu dagar. Áverkarnir voru svo miklir að aðeins var hægt að sjá hluta af andliti Hrafnhildar við kistulagninguna.

Hrafnhildur var jarðsungin í Ólafsfjarðarkirkju 4. október 2008. Í minningargreinum var henni lýst sem brosmildri, sjálfstæðri, lífsglaðri og vinamargri konu.

Sigurlaug segir að morðið hafi komið sérstaklega illa við samfélagið á Ólafsfirði þar sem Hrafnhildur var vel þekkt. Hún rifjar upp að allir hafi sýnt fjölskyldunni mikla samkennd en á sama tíma hafi hún þurft að takast á við ýmis verkefni og ákvarðanir sem enginn er undirbúinn fyrir. Hún segir að fyrstu dagarnir hafi liðið í óvissu og sorg og að það hafi verið erfitt að átta sig á því hvernig hægt væri að halda áfram.

Rannsókninni hætt án niðurstöðu

Mánuðirnir liðu án þess að nokkur væri ákærður fyrir morðið.

Í frétt Vísis í maí árið  2009 kom fram að formlegri rannsókn dóminískra lögregluyfirvalda hefði verið hætt án niðurstöðu. Þrír höfðu þó enn réttarstöðu grunaðra samkvæmt lögregluskýrslu sem faðir Hrafnhildar, Georg Páll Kristinsson, hafði fengið í hendur.

Sigurlaug segir að fjölskyldan hafi lítið fengið að vita um rannsóknina þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir. Oft hafi þau frétt af gangi mála í fjölmiðlum frekar en frá yfirvöldum.

Hún segir einnig að ýmsar kenningar hafi komið fram um hvers vegna Hrafnhildur var myrt.

Ein tilgátan var til dæmis sú að hún hefði verið búin að rétta við reksturinn á þessu hóteli og þá er það bara ekki víst að það sé vinsælt meðal gengja.

Tveir lögreglumenn á næsta herbergi

Sigurlaug nefnir enn eitt atriði sem hún hefur lengi sett spurningarmerki við. Að hennar sögn dvöldu tveir lögreglumenn á herberginu við hliðina á Hrafnhildi dagana fyrir morðið en þeir hurfu af hótelinu um það leyti sem það kom upp.

„Ég veit ekki til þess að þeir hafi verið yfirheyrðir. Þeir hurfu þarna þennan dag, virðist vera.“

„Hún er tekin af lífi og það gerir enginn neitt“

Árið 2022, fjórtán árum eftir morðið, stigu Líney Hrafnsdóttir, móðir Hrafnhildar, og Sigurlaug fram í viðtali við Ísland í dag.

„Við gátum ekki, þegar hún var kistulögð, tekið klútinn af henni en ég sá hana, helminginn af andlitinu. Við ákváðum það ég og maðurinn minn að sýna bara hálft andlitið. Svo ætluðum við að sýna hendurnar á henni, þannig að fólk gæti komið við hendurnar á henni, en það var ekki hægt því hún var með svo mikla áverka á höndum líka, varnaráverka. Þannig það var mjög erfitt. Hún var mjög illa farin,“ sagði Líney meðal annars í þættinum.

Líney og Sigurlaug gagnrýndu jafnframt  íslensk stjórnvöld fyrir að hafa að þeirra mati ekki beitt sér nægilega fyrir því að rannsóknin yrði tekin upp aftur.

Líney kvaðst hafa hringt vikulega í um eitt og hálft ár eftir morðið til að kanna stöðu málsins án þess að fá viðunandi svör. Fjölskyldan hefði óskað eftir að tveir íslenskir lögreglumenn yrðu sendir utan til að fara yfir rannsóknargögnin en þeirri beiðni hefði verið hafnað.

„Mér finnst bara svo skrítið að íslenskur ríkisborgari sé bara tekinn af lífi og það geri enginn neitt,“ sagði Líney í þættinum. 

Það hefði verið huggun að senda tvo menn út, er ekki annað eins gert? Mér finnst að fólk eigi rétt á því undir svona kringumstæðum. Ég veit að hún er ekkert eina sem hefur lent í þessu, það eru fleiri fjölskyldur og fleiri sem hafa verið drepnir erlendis.

Hún lýsti einnig gríðarlegum áhrifum morðsins á hana og eiginmann hennar. Bæði hefðu þau veikst og fallið út af vinnumarkaði.

Við erum bara veik. Þetta er bara drulluerfitt, ef ég á að vera hreinskilin.

Lögreglan gerði aðra atlögu

Viðtalið vakti mikla athygli og daginn eftir kom fram í frétt á Vísi að ríkislögreglustjóri hygðist óska eftir frekari gögnum frá Dóminíska lýðveldinu. 

Við yfirferð málsins hafði komið í ljós að ekki hafði verið svarað öllum fyrirspurnum íslenskra yfirvalda á sínum tíma. Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjónn hafði samband við Líneyju og tilkynnti henni að málið yrði skoðað aftur.

Í fréttinni var tekið fram að íslenska lögreglan gæti ekki rannsakað morðið sjálfstætt án formlegs samstarfs við erlend yfirvöld. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, þáverandi ríkislögreglustjóri, sagði hins vegar að alþjóðlegt lögreglusamstarf hefði þróast og að hægt væri að nýta samskiptaleiðir Interpol til að kalla eftir gögnum sem ekki höfðu borist. Markmiðið væri meðal annars að fá að vita hvað hefði verið rannsakað, hvers vegna málinu væri lokið og hvort einhverjar vísbendingar væru enn til staðar. Í kjölfarið fóru tveir íslenskir lögreglumenn til Dóminíska lýðveldisins.

Sigurlaug segir að ferðin hafi ekki skilað afgerandi niðurstöðu en að lögreglan hafi haldið áfram að leita svara.

Í desember 2022 greindi Vísir frá því að aðeins ófullnægjandi gögn hefðu borist frá dóminískum yfirvöldum þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir.

Sigurlaug fagnar því að íslenska lögreglan hafi tekið málið til skoðunar en telur að það hafi gerst of seint. Hún segir efnahagshrunið 2008 hafa skyggt á umfjöllun um málið og að árin hafi liðið án þess að fjölskyldan fengi þá aðstoð sem hún óskaði eftir.

Nýjar upplýsingar átján árum síðar

Líney lést árið 2024 án þess að fá svör við því hver hefði myrt dóttur hennar.

Fyrr á þessu ári fékk Sigurlaug hins vegar nýjar upplýsingar frá Karli Steinari Valssyni um mann í Dóminíska lýðveldinu sem sagður var hafa verið sakfelldur fyrir morð.

Samkvæmt því sem fram kemur í þætti Eftirmála var maðurinn þegar í fangelsi vegna annars brots þegar hann var sagður hafa hlotið dóm fyrir morðið. Hann hafi hlotið átta ára fangelsisdóm í heildina og setið inni í fimm ár. Fjölskyldan hefur þó ekki fengið að vita hver maðurinn er, hvenær dómurinn féll eða hvernig hann tengdist Hrafnhildi.

Þessi óvissa er ekki síst athyglisverð vegna þess að þegar morðið var rannsakað árið 2008 voru nokkrir einstaklingar nafngreindir í fréttum og lögreglan lýsti þá ákveðnum grunsemdum um ástarsambönd. Ekki kemur fram hvort maðurinn sem Sigurlaug fékk nú upplýsingar um sé einhver þeirra eða annar einstaklingur.

Einnig er óljóst hvort umrædd átta ára refsing tengist morðinu sjálfu eða öðrum brotum mannsins.

„Það eru ekki komnar neinar skýringar á því af hverju hann gerir þetta, hvernig tengslin við hana voru eða neitt slíkt,“ segir Sigurlaug.

Þáttastjórnendur höfðu samband við Karl Steinar við vinnslu þáttarins en hann gat ekki veitt frekari upplýsingar.

Sigurlaug segir að hann hafi þó haft samband við sig um einum og hálfum mánuði fyrr og staðfest að málið væri enn til skoðunar.

„Ég er ekki sár lengur við neinn“

Sigurlaug segir að morðið hafi hvílt þungt á systur hennar allt til æviloka. Líney hafi ekki náð að lifa þær nýju upplýsingar sem fjölskyldunni hafa borist.

Hún náttúrulega bara lifði með þetta í hjartanu og átti oft erfitt.

Sjálf segist Sigurlaug oft hugsa um hvernig líf Hrafnhildar hefði þróast. Hún ímyndar sér að hún hefði einhvern tímann snúið heim, hugsanlega stofnað fjölskyldu og sinnt danskennslu eða öðrum áhugamálum sínum.

Sigurlaug var aðeins átján árum eldri en Hrafnhildur og segir samband þeirra hafa verið bæði eins og milli systra og móður og dóttur. Líney hafði sjálf verið fimmtán ára þegar Hrafnhildur fæddist og Sigurlaug segir fjölskyldurnar hafa verið mjög samheldnar. Börn Líneyjar hafi alltaf verið hennar eigin börn og Hrafnhildur verið stór hluti af lífi hennar frá upphafi.

Þótt ótal spurningum sé enn ósvarað hefur Sigurlaug ákveðið að reyna að leggja reiðina frá sér.

„Mér finnst erfiðast að hún skuli vera horfin úr lífi mínu.“

#hrafnhildi #lilju #morðið #nýjar #upplýsingar


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262956139d/nyjar-upp-lysingar-um-mordid-a-hrafn-hildi-lilju-a-tjan-arum-sidar

📰 Aðrar fréttir

Grunur um heiðursofbeldi hefur vaknað á Íslandi – Fagfólk fær sérstaka þjálfun
📅 31.10.2026 👁️ 0
Grunur um heiðursofbeldi hefur vaknað á Íslandi – Fagfólk fær sérstaka þjálfun
Grunur um heiðurstengt ofbeldi hefur vaknað í nokkrum málum sem lögreglan hér á landi hefur haft til meðferðar, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hv...
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
📅 31.10.2026 👁️ 2
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í KópavogiLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 102 mál skráð í...
Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“
📅 31.10.2026 👁️ 2
Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“
Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækju...
Saltvítið við Evrópustrendur
📅 31.10.2026 👁️ 2
Saltvítið við Evrópustrendur
Saltvítið við Evrópustrendur Þegar Mið­jarð­ar­hafið þorn­aði upp FFyrir 200 millj­ónum ára voru öll meg­in­lönd Jarðar enn meira og minna sam­einuð í...
Which online income streams are actually growing in 2026?
📅 31.10.2026 👁️ 2
Which online income streams are actually growing in 2026?
Online income is growing, but not evenly. Upwork’s Future Workforce Index found that 38% of skilled U.S. knowledge workers now freelance, up from 28% ...
Sam­þykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 3
Sam­þykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga - Vísir
 Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sagði að flaugarnar yrðu alfarið fjármagnaðar með framlögum frá Kanada, Noregi og Þýskalandi auk láni frá Evrópusamb...
Skúrir eða slydduél víða
📅 31.10.2026 👁️ 2
Skúrir eða slydduél víða
Dálítil lægð á Grænlandshafi og hæð vestur af Írlandi beina suðvestlægri átt til Íslands. Í dag verður kaldi eða stinningskaldi víða í dag og skúrir e...
Teenager among two arrested in Tenerife over alleged plans for looting and violence
📅 31.10.2026 👁️ 1
Teenager among two arrested in Tenerife over alleged plans for looting and violence
Two people have been arrested in Tenerife over their alleged involvement in online calls for looting and disorder in Santa Cruz and Playa Las Americas...
Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi
📅 31.10.2026 👁️ 3
Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi
25 sjómönnum var bjargað úr brennandi olíuflutningaskipi á Hormússundi í gær eftir að skipið varð fyrir árás. Yfirvöld í Óman komu skipverjunum til bj...
Víða kaldi og skúrir - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 2
Víða kaldi og skúrir - Vísir
„Dálítil lægð á Grænlandshafi og hæð vestur af Írlandi beina til okkar suðvestlægri átt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á m...
SATURDAY WEATHER: Heavy rain is heading to the Canary Islands
📅 31.10.2026 👁️ 2
SATURDAY WEATHER: Heavy rain is heading to the Canary Islands
The Canary Islands are set for a warm Halloween although the weather will become more unsettled as a low-pressure system approaches from the west.Clou...
Starfs­menn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 2
Starfs­menn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað - Vísir
Ný löggæsluáætlun dómsmálaráðherra fyrir næstu fimm ár var kynnt á sérstökum fundi á miðvikudaginn. Þar kemur fram að samkvæmt könnun meðal lögregluma...
Kínverjar segja Þorgerði Katrínu hafa hrósað hugmyndum Xi Jinping og óskað Kommúnistaflokknum til hamingju
📅 31.10.2026 👁️ 2
Kínverjar segja Þorgerði Katrínu hafa hrósað hugmyndum Xi Jinping og óskað Kommúnistaflokknum til hamingju
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra óskaði kínverska Kommúnistaflokknum til hamingju með 5. allsherjarfund 20. miðstjórnarinnar og hrósað...
Hótanir dómsmálaráðuneytis tímabundið stöðvaðar
📅 31.10.2026 👁️ 2
Hótanir dómsmálaráðuneytis tímabundið stöðvaðar
Úrskurður Trinu Thompson, dómara í norðurhluta Kaliforníu, heftir aðgerðir stjórnarliða Trumps sem hafa gert tilraunir til að takmarka atkvæðagreiðslu...
Frétta­tía vikunnar: Brasilía, Ofur­skálin og Pútín - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 2
Frétta­tía vikunnar: Brasilía, Ofur­skálin og Pútín - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Hinir óskiljanlegu
📅 31.10.2026 👁️ 2
Óttar Guðmundsson skrifar: Hinir óskiljanlegu
Mynd Íslendingasögur leggja áherslu á að menn kunni að koma f
Spain train disaster clouds Pedro Sánchez chances of re-election
📅 31.10.2026 👁️ 2
Spain train disaster clouds Pedro Sánchez chances of re-election
The Spanish PM is hit by a succession of crises just weeks before a snap general election.
Tveir Kínverjar dæmdir í fangelsi fyrir njósnir
📅 31.10.2026 👁️ 2
Tveir Kínverjar dæmdir í fangelsi fyrir njósnir
Tveir kínverskir ríkisborgarar voru dæmdir í fangelsi í Kaliforníu í dag eftir að þeir viðurkenndu að hafa reynt að fá starfsmenn bandaríska hersins t...
Mahmood expected to announce changes to rules around indefinite leave to remain
📅 31.10.2026 👁️ 2
Mahmood expected to announce changes to rules around indefinite leave to remain
The home secretary has faced opposition from within the government over plans to impose new rules on migrant workers already in the UK.
Burnham 'open' to calls for slavery apology but rules out reparations
📅 31.10.2026 👁️ 4
Burnham 'open' to calls for slavery apology but rules out reparations
The prime minister says Britain must "face up to the past" for its role in the transatlantic slave trade but reparations are "not the right answer".
Rússar herja á orkuinnviði í Úkraínu
📅 31.10.2026 👁️ 4
Rússar herja á orkuinnviði í Úkraínu
Rússlandsher gerði árásir á orkuver í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í kvöld með þeim afleiðingum að fjögur svæði borgarinnar eru án rafmagns. Fréttamiðilli...
Why North Korea's 'elite' hackers are the prime suspect in major Binance hack
📅 31.10.2026 👁️ 4
Why North Korea's 'elite' hackers are the prime suspect in major Binance hack
If the accusations are true, the record-making heist shows how powerful suspected North Korean hackers have become.
Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund
📅 31.10.2026 👁️ 3
Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund
Íbúar Hörgársveitar hafa rofið fjögurra talna múrinn en nú búa þar fleiri en þúsund manns. Sveitarfélagið greinir frá þessu í tilkynningu.Íbúum í Hörg...
How to prepare for an emergency: What households in different countries stock up on
📅 31.10.2026 👁️ 2
How to prepare for an emergency: What households in different countries stock up on
Filter straws to a disposable toilet - people in the US, Japan, Sweden and Netherlands on what's in their emergency stashes.
Global nature talks reach deal but money remains an issue
📅 31.10.2026 👁️ 4
Global nature talks reach deal but money remains an issue
Countries have been trying to get a global agreement to halt nature decline back on track.
'The necktie is dead': How US midterm candidates are dressing for votes
📅 31.10.2026 👁️ 2
'The necktie is dead': How US midterm candidates are dressing for votes
From Alaska to Texas, candidates with an eye on Congress are using their personal style to stand out.
World trekker Karl Bushby's final push home to Hull
📅 31.10.2026 👁️ 3
World trekker Karl Bushby's final push home to Hull
Global walker Karl Bushby is almost within sight of his journey's end after 28 years away.
Why MPs keep talking about an early election despite Burnham's denials
📅 31.10.2026 👁️ 3
Why MPs keep talking about an early election despite Burnham's denials
The prime minister has categorically ruled out an early general election, but it has not stopped speculation at Westminster.
Halla for­seti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðar­enda - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Halla for­seti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðar­enda - Vísir
Þegar Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi eftir bréf fyrir ofurhugann. „Hún var að hrósa mér ...
Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferða­lag - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferða­lag - Vísir
Þegar hinn 23 ára gamli Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi að sjálfsögðu eftir bréf fyrir of...
Halla bað sáran áhrifa­vald um að of­gera sér ekki fyrir sam­félags­miðla - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Halla bað sáran áhrifa­vald um að of­gera sér ekki fyrir sam­félags­miðla - Vísir
Þegar hinn 23 ára gamli Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi að sjálfsögðu eftir bréf fyrir of...
Lèse majesté: Arnon Nampa questioned Thailand's monarchy dressed as Harry Potter. Now he's in jail for 34 years
📅 30.10.2026 👁️ 1
Lèse majesté: Arnon Nampa questioned Thailand's monarchy dressed as Harry Potter. Now he's in jail for 34 years
Thailand has prosecuted 294 people since 2020 under its lèse majesté law, with sentences going up to 50 years.
Samþykkja sölu á 500 Patriot flaugum til Úkraínu
📅 30.10.2026 👁️ 4
Samþykkja sölu á 500 Patriot flaugum til Úkraínu
Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur samþykkt sölu á 500 Patriot-loftflaugum til Úkraínu, að verðmæti 2,1 milljarða bandaríkjadala, andvirði rúmlega 250 mi...
Margir Íslendingar gera þetta um leið og þeir koma heim – En er það nauðsynlegt? Svarið gæti komið á óvart
📅 30.10.2026 👁️ 4
Margir Íslendingar gera þetta um leið og þeir koma heim – En er það nauðsynlegt? Svarið gæti komið á óvart
Flestir Íslendingar eru vanir því að fara úr útiskónum þegar þeir koma heim og mörgum þykir óhugsandi að ganga um heimilið á sömu skóm og þeir hafa no...
Liðið eins og glæpa­manni á þriðju­dag - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Liðið eins og glæpa­manni á þriðju­dag - Vísir
Þetta segir Hrafnhildur Sverrisdóttir, sem starfaði sem verkefnastjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Alls fengu fimmtíu starfsmenn...
Út­grátin og brotin frammi fyrir öllum - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Út­grátin og brotin frammi fyrir öllum - Vísir
Þetta segir Hrafnhildur Sverrisdóttir, sem starfaði sem verkefnastjóri á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar. Alls fengu fimmtíu starfsmenn...
Æfir þú Hyrox? Þetta borðar heimsmeistarinn í flokki 45-49 ára
📅 30.10.2026 👁️ 2
Æfir þú Hyrox? Þetta borðar heimsmeistarinn í flokki 45-49 ára
Eric Hinman, 46 ára bandarískur íþróttamaður og áhrifavaldur, borðar svipaðan mat flesta daga: kaffi í morgunmat, egg og ávexti eða prótínhristing í h...
US approves sale of 500 Patriot missiles to Ukraine
📅 30.10.2026 👁️ 4
US approves sale of 500 Patriot missiles to Ukraine
The American-made interceptors are the only effective weapon for downing Russia's ballistic missiles.
Celebrity Traitors comes to a climax in nail-biting final
📅 30.10.2026 👁️ 4
Celebrity Traitors comes to a climax in nail-biting final
The second series of the hit series reached its climax on Friday after attracting 15 million viewers.
Njáll Trausti sagður hafa beðið um of viðkvæmar upplýsingar - „Gera ógnaraðilum kleift að kortleggja tækniumhverfi“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Njáll Trausti sagður hafa beðið um of viðkvæmar upplýsingar - „Gera ógnaraðilum kleift að kortleggja tækniumhverfi“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir í skriflegu svari við fyrirspurn Njáls Trausts Friðbertssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, ...
Lárus hættir sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls
📅 30.10.2026 👁️ 4
Lárus hættir sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls
Lárus M. K. Ólafsson hefur lokið störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. Hann tilkynnti starfsloki...
Ráð­herrar brugðu á leik og tóku lagið - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Ráð­herrar brugðu á leik og tóku lagið - Vísir
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra birtir mynd af sér með Loga Einarssyni, Eyjólfi Ármannssyni, Jóhanni Páli Jóhannssyni, Daða Má Kristóferssyni o...
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíð Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
📅 30.10.2026 👁️ 3
Jakob Frímann lýsir neyðarlegu atviki með Davíð Oddssyni – „Lágum í tjaldhrúgunni með höfuðin úti“
Út er komin bókin Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands eftir feðgana Reyni Traustason og Jón Trausta Reynisson. Koma þar fram ýmsar sögur se...
Í hár saman um mörk tjáningarfrelsis predikarans umdeilda - „Rétturinn til þess að hvetja til þess að myrða aðra“
📅 30.10.2026 👁️ 4
Í hár saman um mörk tjáningarfrelsis predikarans umdeilda - „Rétturinn til þess að hvetja til þess að myrða aðra“
Björn Leví Gunnarsson fyrrum þingmaður Pírata og Þórarinn Hjartarson stjórnandi hlaðvarpsins Einnar Pælingar hafa deilt töluvert í dag á Facebook um m...
Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers
📅 30.10.2026 👁️ 4
Íbúar ósammála um ágæti vindorkuvers
Íbúar í Norðurþingi eru ósammála um fyrirhugað vindorkuver að Hnotasteini. Framkvæmdaraðilar lofa sveitarfélaginu tekjum og íbúum störfum.Franska fyri...
Police deployed during stand-off over control of Poland's top court
📅 30.10.2026 👁️ 8
Police deployed during stand-off over control of Poland's top court
It comes after the government suspended two senior justices and moved to bring criminal charges against them.
Police deployed during stand-off over control of top Poland court
📅 30.10.2026 👁️ 5
Police deployed during stand-off over control of top Poland court
The escalation came after the government suspended two senior justices and moved to bring criminal charges against them.
King visits Guyanan slave rebellion site on Caribbean tour
📅 30.10.2026 👁️ 3
King visits Guyanan slave rebellion site on Caribbean tour
Hundreds of slaves were killed by colonial leaders in the Demerera rebellion of 1823, with many survivors executed.
King visits Guyanese slave rebellion site on Caribbean tour
📅 30.10.2026 👁️ 4
King visits Guyanese slave rebellion site on Caribbean tour
Hundreds of slaves were killed by colonial leaders in the Demerera rebellion of 1823, with many survivors executed.
Ó­sáttir sendlar bjóða Wolt fram að­stoð sína - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Ó­sáttir sendlar bjóða Wolt fram að­stoð sína - Vísir
„Ég og ökumennirnir stöndum með Wolt í tengslum við þessar hótanir. Ef við getum hjálpað á einhvern hátt þá er ég tilbúinn í það. Ef þau hafa einhverj...