Sífellt fleiri konur kjósa að gangast undir umdeilda fegrunaraðgerð þar sem rifbein eru brotin til að gera mittið mjórra. Aðgerðin getur haft alvarlega fylgikvilla og sumar konur sem hafa gengist undir hana lýsa sársaukanum eins og þær hafi orðið fyrir strætisvagni.Breska blaðið The Guardian fjallar ítarlega um þessa nýju bylgju og ræðir meðal annars við konur sem hafa gengist undir aðgerðina og lækna sem vara við áhættunni.
Láta brjóta í sér rifbeinin til að fá mjórra mitti – Læknar vara við afleiðingunum