Óeirðalögregla var kölluð út að stjórnlagadómstól Póllands í Varsjá í gærkvöld vegna átaka um skipanir dómara við hann. Lögregla þurfti að koma í veg fyrir að mótmælendur kæmust inn í bygginguna. Þrír voru handteknir.
Slegið hefur í brýnu á milli ríkisstjórnar Donalds Tusk forsætisráðherra og hægri- og íhaldsflokksins Laga og réttlætis (PiS) vegna dómaramála við æðsta dómstól Póllands undanfarið.
Mótmælendur hliðhollir PiS hafa andmælt harðlega ákvörðun Tusks að reka forseta stjórnlagadómstólsins, Bogdan Swieczkowski. Dómsmálaráðherra Póllands vill hins vegar að Swieczkowski og varaforseti dómstólsins verði sviptir friðhelgi gegn saksókn.
Karol Nawrocki Póllandsforseti sneri við flugvél sinni á leið til Senegal í gær til að halda aftur til Varsjár.
Dómstóllinn hliðhollur PiS
Dómstóllinn getur dæmt um lögmæti lagasetningar. Á meðan PiS réði ríkjum árin 2015–2023 skipaði hann dómara til að ná meirihluta við réttinn. Mannréttindadómstóll Evrópu og Evrópudómstóllinn komust að þeirri niðurstöðu að þrír dómarar hefðu verið valdir á ófullnægjandi hátt.
Tusk hefur reynt að snúa við breytingum Laga og réttlætis á réttinum en ekki haft erindi sem erfiði. Karol Nawrocki Póllandsforseti, sem er hliðhollur flokknum, og forveri hans hafa notað neitunarvald sitt til að koma í veg fyrir það.
Nawrocki hefur borið fyrir sig að gallar hafi verið í vali fimm stjórnlagadómara frá því í mars. Hann hefur því neitað þeim um að sverja eið. Feneyjarnefndin gagnrýndi Nawrocki fyrir þetta.
Dómsmálaráðherra Póllands vill láta ákæra forseta og varaforseta réttarins fyrir að leyfa ekki tilteknum dómurum að taka sæti við hann.
Einn dómaranna sem Nawrocki kom í veg fyrir að tæki sæti er nú tímabundinn forseti dómstólsins.
Tusk er Evrópusinnaður en dómstóllinn hefur ítrekað tekið pólsk lög yfir þau evrópsku. Evrópusambandið hefur vænt réttinn um að standa of nærri PiS.