Fangar pyntaðir í Síðumúlafangelsinu

Fangar pyntaðir í Síðumúlafangelsinu

Fangar pyntaðir í Síðumúlafangelsinu

Guðmundar- og Geirfinnsmálið er sennilega þekktasta sakamálið í íslenskri nútímaréttarsögu. Þar var hópur ungs fólks dæmdur fyrir aðild að hvarfi Guðmundar og Geirfinns eftir að hafa setið langtímum saman í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsóknina.

Gísli Guðjónsson, prófessor í réttarsálfræði, segir að mál Guðmundar og Geirfinns sé einstakt. Sú langa einangrun sem sakborningar máttu sæta sé nánast fordæmalaus og margt hafi verið undarlegt við rannsóknina. Þá hafi aðkoma þýska rannsóknarmannsins Carls Schultz verið skaðleg.

Meðferðin á ungmennunum í þessu máli er ekki eina dæmið um harðræði og pyntingar í Síðumúlafangelsinu að sögn Tryggva Rúnars Brynjarssonar sagnfræðings. Í þáttaröðinni Betrun lýsir hann rannsókn sem var gerð 1976 af hálfu hins opinbera í kjölfar kvartana um hræðilegar líkamsmeiðingar sem tveir mjög ungir drengir urðu fyrir í Síðumúlafangelsinu.

Rannsóknardómari þvertók fyrir að ofbeldi hefði verið beitt

Steingrímur Gautur Kristjánsson lögmaður var settur rannsóknardómari í þessu máli og hann fór í heimsókn í Síðumúlafangelsið á fund yfirfangavarðarins sem þvertók fyrir að drengirnir hefðu verið beittir því ofbeldi sem fram kom í kvörtuninni sem barst yfirvöldum.

„Þá höfðu drengirnir tveir lýst því hvernig þeir hefðu verið bundnir við kalt steypt gólfið og járnaðir, annars vegar við rúmfót og hins vegar við fót af borði. Þeir hafi verið bundnir þar við gólfið og það hafi verið þannig að lengdin hafi verið það mikil á milli að þeir hafi verið strekktir. Þeir lýsa þessu, þessum hræðilegu kvölum sínum, og yfirfangavörðurinn, eins og ég segi, tekur á móti Steingrími og segir: „Nei, þetta getur ekki verið. Jú, vissulega voru þessir drengir bundnir en það var ekki svo að þeir væru strekktir.“ Hann fer með Steingrím inn í klefa og er bara með allt tilbúið og segir: „Hér sérðu að þetta er ekki það stórt herbergi. Að þeir hafi ekki getað verið strekktir,““ segir Tryggvi Rúnar í fimmta þætti Betrunar. Hlusta má á þáttinn í hlaðvarpsveitum og í Spilara RÚV neðst í færslunni.

Að sögn Tryggva Rúnars yfirgaf Steingrímur fangelsið við svo búið en kom aftur nokkrum dögum síðar með gögn í höndunum sem sýndu fram á að þetta hefði átt sér stað í öðrum fangaklefa. Steingrímur Gautur krafðist þess að sjá þann klefa og í þeim klefa höfðu þessir drengir sannarlega verið strekktir að sögn Tryggva.

Eins og könguló með bráð sína

„Þetta er ein merkilegasta, allavega ein ýtarlegasta, yfirheyrsla sem á sér stað á Íslandi og hún sýnir augljóslega að Steingrímur hafi verið kominn með yfirfangavörðinn út í horn og hann byrjar að réttlæta sig,“ segir Tryggvi Rúnar Brynjarsson.

„Hann byrjar á að útskýra hvers vegna þetta hafi verið gert og lýsir mörgum öðrum aðferðum sem þeir kalla refsiaðferðir sem eru svo hrikalegar og þarna eru, svo dæmi sé tekið, þá hafa fangar verið vafðir í lak og ólar settar utan um þá þannig að þeir séu bara eins og þegar könguló er með bráð sína, bundna og límda. Hann segir: „Já en þetta gerum við bara við frekjuhunda og síðan fyrir þá sem ögra okkur og eru dónalegir við okkur.“ Heiðarleikinn í þessari yfirheyrslu er slíkur að maður sér hvað Steingrímur, settur rannsóknardómari, var ekkert að grínast. Hann var ekki þarna til að hylma yfir,“ segir Tryggi Rúnar Brynjarsson.

En það skrýtna er að mynstrið endurtekur sig, segir Tryggvi Rúnar, eftir að Steingrímur hefur unnið þessa vönduðu rannsókn sem hann sendir síðan til ríkissaksóknara. Saksóknari telur að engra aðgerða sé þörf af hálfu ríkisins. Ekkert var gert við skýrsluna og Tryggva Rúnari er til efs að ungu drengirnir hafi nokkurn tíma fengið að sjá niðurstöður hennar. Skýrslan er aftur á móti til í skjalasöfnum ríkisins ásamt fjölmörgum öðrum gögnum sem til eru um réttarkerfið og þá samtryggingu sem þar ríkti.

Síðumúlafangelsið, sem var hannað og byggt til að vera bílaþvottastöð og bílageymsla fyrir lögregluna í Reykjavík, var tekið í notkun 1972. Fangelsinu, sem var til húsa í Síðumúla 28, var lokað 1996 og rifið skömmu síðar. Yfir því er ákveðinn skuggi sem tengist einkum og sér í lagi Guðmundar- og Geirfinnsmálinu og því harðræði sem sakborningar voru beittir þar, segir Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, en hann er einnig viðmælandi í fimmta þætti Betrunar.

Í þáttaröðinni Betrun á Rás 1 er fjallað um fangelsismál Íslendinga í fortíð og nútíð.

Tryggvi Rúnar Brynjarsson hefur undanfarin ár rannsakað Guðmundar- og Geirfinnsmálið en afi hans og nafni, Tryggvi Rúnar Leifsson, er einn þeirra sem voru ranglega dæmdir í því máli. Hann var handtekinn á Þorláksmessu 1975, haldið í einangrun í meira en 600 daga og sat í gæsluvarðhaldi í á fjórða ár.

Tryggvi Rúnar Leifsson var dæmdur í 13 ára fangelsi í Hæstarétti 1980 fyrir að myrða Guðmund Einarsson. Tæpum 40 árum síðar var hann sýknaður af öllum sakargiftum fyrir sama dómstól. Tryggvi Rúnar lést 2009, 57 ára að aldri.

Guðmundur Einarsson og Geirfinnur Einarsson hurfu báðir sporlaust 1974. Guðmundur var 18 ára þegar hann hvarf eftir að hafa farið með vinum sínum á ball í Hafnarfirði laugardagskvöldið 26. janúar og orðið viðskila við þá. Hann sást síðast á gangi með öðrum manni í Hafnarfirði að reyna að húkka sér far. Geirfinnur var 32 ára þegar hann hvarf í nóvember sama ár. Hvorugur hefur fundist en hópur ungmenna var handtekinn undir lok árs 1975 og sakaður um að hafa átt aðild að hvarfi þeirra.

Sagnfræðin veitti verkfærin

Móðir Tryggva Rúnars Brynjarssonar var 17 ára þegar hann fæddist og mæðginin bjuggu næstu árin hjá foreldrum hennar. Hann segist hafa verið svo heppinn að velja sagnfræði sem sitt fag því að hún hafi veitt honum þau verkfæri sem hann þurfti til að rannsaka íslenska dómskerfið og íslensku lögregluna. „Ekki síst í ljósi sögu afa míns sem ég hef verið að rannsaka samhliða þessu.“

Þúsund andlit afneitunar

Í doktorsritgerð Trygga Rúnars gerir hann tilraun til að víkka rammann frá eingöngu máli afa síns. „Ég reyni að afhjúpa það sem ég kalla mynstur í viðbrögðum íslenska ríkisins við þolendum ofbeldis og þetta er mynstur afneitunar. Ég skoða það sem ég kalla í ritgerðinni: Þúsund andlit afneitunar. Þannig að markmiðið síðustu ár hefur verið, kannski að einhverju leyti, að rjúfa einangrun Guðmundar- og Geirfinnsmálsins, að setja það í kerfislægt samhengi, koma því fyrir í sögulegu samhengi og sjá hvað gerist. Afraksturinn kom mér á óvart. Það kom mér á óvart hvað það var margt ókannað. Hvað það var mikið sem hægt var að tengja og hvað maður sá rosalega mikið af endurtekningum. Alveg niður í fangaprestinn sem birtist sem sálin í sálarlausum heimi,“ segir Tryggvi Rúnar Brynjarsson og vísar þar til Jóns Bjarman, fangaprests á þessum tíma, og stuðnings hans við ungmennin sem voru í einangrun í Síðumúlafangelsinu.

Í þættinum eru birt viðtöl sem Þorfinnur Ómarsson tók við Jón og Tryggva Rúnar Leifsson 1996 í þættinum Dagsljós í Ríkissjónvarpinu.

Af hverju komstu ekki fyrr?

Þar segir Jón frá lygum sem mættu honum af hálfu starfsmanna fangelsins, til að mynda að enginn sakborninganna hefði viljað hitta prest þrátt fyrir að þau hefðu öll óskað eftir því að hitta hann. Eða eins og Sævar Ciesielski spyr Jón þegar þeir hittast loks nokkrum mánuðum eftir að Sævar var handtekinn: „Af hverju komstu ekki fyrr?“

Að sögn Tryggva Rúnars Brynjarssonar eru dæmin fleiri þegar kemur að brotum gagnvart fólki hér á landi þegar kemur að réttarkerfinu. „Það átti sér stað innan ákveðins kerfis sem verndaði innanbúðarmenn, verndaði sjálft sig, passaði upp á sig.“

Hreinn Hákonarson segir að húsið (Síðumúlafangelsið) hafi verið gjörsamlega ófært sem fangelsi og það hafi verið furðulengi notað sem slíkt.

„Þessi skuggi var yfir Síðumúlafangelsinu, Guðmundar- og Geirfinnsmálin ollu því. En hann fluttist að hluta til austur á Litla-Hraun en með sérkennilegum hætti vegna þess að það var reist hús á Litla-Hrauni [...] álma sem var kölluð Guðmundar- og Geirfinnsálman, sem átti að hýsa sakborninga, meinta, í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. En það kaldhæðnislega var að þeir komu aldrei inn í þetta hús,“ segir Hreinn.

Húsið átti síðar eftir að hýsa fanga sem höfðu gerst brotlegir inni í fangelsinu, svo sem fyrir ofbeldi gagnvart öðrum föngum og fangavörðum.

Tryggvi Rúnar Leifsson varð fyrstur til þess að ljúka námi í íslensku fangelsi en það var á Litla-Hrauni 1981. Nánar er fjallað um nám á Litla-Hrauni í sjötta þætti Betrunar þar sem rætt er við Jón Inga Jónsson fangavörð sem hefur umsjón með trésmíðaverkstæðinu á staðnum.

Bar þess aldrei bætur

Að sögn Tryggva Rúnars Brynjarssonar er kjarni Guðmundar- og Geirfinnsmálsins það mikla ofbeldi sem sakborningarnir voru beittir til að hægt væri að ljúka málinu. Tregða kerfisins til að játa á sig jafnvel augljós mistök er eitthvað sem hann fann í skjalasöfnum hér á landi í fleiri málum, jafnvel óþekktum málum sem hafa ekki fengið athygli.

Tryggva Rúnari var veitt reynslulausn á aðfangadag 1981, sex árum eftir að hann var handtekinn og settur í gæsluvarðhald í Síðumúlafangelsinu.

Í geðrofi fyrstu sólarhringana

„Staðfestar hafa verið frásagnir um ofboðslega langar og stífar yfirheyrslur yfir föngunum. Í tilfelli afa míns að þá er ekki hugað að hans andlega og líkamlega ástandi þegar honum er hent inn í einangrunina þarna í Síðumúlafangelsinu rétt fyrir jól,“ segir Tryggi Rúnar.

„Hann er í geðrofi í fjóra sólarhringa og sefur ekkert. Síðan segja fangaverðir frá því nokkrum árum síðar að það hafi verið stefnan og fyrirmæli um það og stefnan að halda föngum markvisst vakandi,“ segir Tryggvi Rúnar.

Gísli Guðjónsson lýsti því síðar að hliðstæðurnar við aðbúnað gæsluvarðhaldsfanganna væri að finna í herfangelsum. Svo löng einangrun og gæsluvarðhald þekkist ekki í lýðræðisríkjum á friðartímum.

Mannfyrirlitningin skín í gegn í geðmatinu

Tryggvi Rúnar segir að ofboðslega fyrirlitningu sé að finna í geðmati sem unnið var á afa hans og öðrum sakborningum eftir langa dvöl í einangrun. „Það er ofboðsleg mannfyrirlitning sem skín í gegnum þetta mat,“ segir Tryggi Rúnar og að þar sé reynt að útskýra glæpamanninn, hvers vegna afi hans hafi hegðað sér svona, til þess að kerfið geti móttekið og unnið úr þessum meinta glæp.

Allt sem hægt var að finna var notað í matinu, segir Tryggvi Rúnar um afa sinn. Hann fékk laka mælingu úr einhverju greindarprófi og var sagður vera með langa sögu um misnotkun á efnum og áfengi. Allt sem ætti að jaðarsetja hann og gera hann að minni manneskju var tínt til til þess búa til prófíl af manni sem myndi fremja þennan glæp, það er að myrða Guðmund Einarsson.

Engin sönnunargögn fundust í málinu en allt var byggt upp á orðrómum sem smugu inn í rannsóknina, segir sagnfræðingurinn Tryggvi Rúnar Brynjarsson og vísar til orða Sævars Ciesielski um að fundnar hafi verið nógu fyrirlitlegar manneskjur sem nytu ekki nokkurrar einustu samúðar í samfélaginu. Fólk sem öllum var sama um, einstaklingar sem áttu lítið bakland og lítinn stuðning frá lögmönnum.

En fjölskylda Tryggva Rúnars stóð alltaf með honum, segir nafni hans í viðtali í fimmta þætti Betrunar.

Passað upp á að hann sæi ekki dekkri hlið afans

Tryggvi Rúnar Leifsson var 24 ára þegar hann var handtekinn og látinn dúsa á bak við lás og slá til þrítugs, á aldursskeiði þar sem fólk tekur út mikinn þroska, segir Tryggvi Rúnar Brynjarsson í þættinum.

Afi hans bar þess aldrei bætur en þess var gætt að Tryggvi Rúnar yngri fengi ekki að sjá þær hliðar afa síns. „Það sem ég fékk að sjá, en eins og ég segi þá ólst ég að verulegu leyti upp hjá honum og við vorum virkilega nánir, var þessi bjarti og jákvæði og ljúfi, og virki, orkumikli maður,“ segir Tryggvi Rúnar.

„Það var passað upp á að ég fengi ekki að sjá hitt en hin hliðin var sannarlega til staðar,“ segir hann. Í þættinum segir Tryggvi Rúnar frá þeirri vanlíðan sem afi hans glímdi við í gæsluvarðahaldinu og hvernig hann var tilbúinn til að játa hvað sem var til þess að losna úr hryllingnum sem hann upplifði í Síðumúlafangelsinu.

Hann talar jafnframt um áhrif ranglætis og harðræðis á líf fjölskyldunnar allrar og hvernig afi hans þurfti að ganga inn í samfélagið sem dæmdi hann fyrir verknað sem hann framdi ekki og leit á hann sem glæpamann.

Afi hans lifði það ekki að fá réttlætinu fullnægt og ekki heldur Sævar Ciesielski sem lést 2011. Kristján Viðar Júlíusson lést 2021, þremur árum eftir að Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu að sýkna bæri Kristján Viðar Júlíusson, Sævar Marinó Ciesielski, Tryggva Rúnar Leifsson, Albert Klahn Skaftason og Guðjón Skarphéðinsson af öllum sakargiftum í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Í málinu krafðist ákæruvaldið einnig sýknu, en sýknukrafa ákæruvaldsins byggði bæði á nýjum gögnum og endurskoðuðu mati á eldri gögnum sem gerði það að verkum að ekki hefði tekist að sanna sekt þeirra svo hafið væri yfir skynsamlegan vafa.

Lífið hefði orðið allt annað

Tryggvi Rúnar Brynjarsson segir að það að ranglætið hafi ekki verið viðurkennt fyrr en meira en 40 árum síðar geri það að verkum að kynslóðirnar þurfi að tækla ranglætið sjálfar. „Ef til dæmis Hæstiréttur hefði komist að þeirri niðurstöðu 1997 þegar Sævar Ciesielski, með stuðningi Ragnars Aðalsteinssonar lögmanns, ef að Hæstiréttur hefði þá haft hugrekki til þess að endurupptaka málið og haft hugrekki til þess að sýkna hina ranglega dæmdu þá hefði líf mitt verið allt annað. Líf afa míns allt annað,“ segir Tryggi Rúnar. Hægt er að hlusta á fimmta þátt Betrunar í heild hér að neðan.

#fangar #pyntaðir #síðumúlafangelsinu


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-31-fangar-pyntadir-i-sidumulafangelsinu-491296

📰 Aðrar fréttir

Guðmundur gafst upp á baráttunni við lögregluna: Borgaði sektina en með mikið óbragð í munni
📅 31.10.2026 👁️ 2
Guðmundur gafst upp á baráttunni við lögregluna: Borgaði sektina en með mikið óbragð í munni
Guðmundur H. Guðjónsson er afar ósáttur við vinnubrögð lögreglunnar á Vesturlandi eftir að hann var sektaður um 20 þúsund krónur fyrir framúrakstur á ...
Davíð hafi passað sig í drykkju eftir „Bermúdaskálina“ – „Eftir þetta setti hann það í annan farveg“
📅 31.10.2026 👁️ 2
Davíð hafi passað sig í drykkju eftir „Bermúdaskálina“ – „Eftir þetta setti hann það í annan farveg“
Fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar segir hann hafa passað sig í áfengisdrykkju eftir móttöku íslenska bridds-landsliðsins þegar það vann Bermú...
Óvænt uppákoma hjá Trump í Flórída – Heilsufar forsetans aftur í sviðsljósinu
📅 31.10.2026 👁️ 2
Óvænt uppákoma hjá Trump í Flórída – Heilsufar forsetans aftur í sviðsljósinu
Donald Trump Bandaríkjaforseti þurfti að gera óvænt hlé á ræðu sinni á kosningafundi í Daytona Beach í Flórída í gær þegar hann fékk eitthvað í annað ...
Hrafnhildur segir frá niðurlægjandi uppsögn hjá borginni – „Eftir of langa og erfiða þögn gat ég ekki meira“
📅 31.10.2026 👁️ 2
Hrafnhildur segir frá niðurlægjandi uppsögn hjá borginni – „Eftir of langa og erfiða þögn gat ég ekki meira“
Hrafnhildur Sverrisdóttir, sem var meðal þeirra starfsmanna Reykjavíkurborgar sem sagt var upp störfum á þriðjudag, lýsir afar erfiðri reynslu af upps...
Bæjarfulltrúi Miðflokksins skýtur á Sjálfstæðismenn: „Þá vorum við kallaðir rasistar“
📅 31.10.2026 👁️ 2
Bæjarfulltrúi Miðflokksins skýtur á Sjálfstæðismenn: „Þá vorum við kallaðir rasistar“
Einar Jóhannes Guðnason, bæjarfulltrúi Miðflokksins í Kópavogi og varaþingmaður flokksins, gagnrýnir Sjálfstæðismenn sem hafa lýst andstöðu við heimsó...
Vikulokin: Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki
📅 31.10.2026 👁️ 2
Vikulokin: Uppsagnir í Reykjavík, álögur á Suðurlandi og hótanir gegn lögreglufólki
Aðhaldsaðgerðir og uppsagnir hjá Reykjavíkurborg eru til umræðu í Vikulokunum í dag. Róbert Ragnarsson, borgarfulltrúi og formaður hagræðingarhóps mei...
Halldór Guðmundsson: Guðbrandur biskup fyrsti bókaútgefandinn sem kvartaði
📅 31.10.2026 👁️ 2
Halldór Guðmundsson: Guðbrandur biskup fyrsti bókaútgefandinn sem kvartaði
Segja má með nokkrum rétti að Guðbrandur Þorláksson biskup hafi bjargað íslenskunni með því að prenta
Sif Sigmarsdóttir er eins og trans-aktivísti
📅 31.10.2026 👁️ 2
Sif Sigmarsdóttir er eins og trans-aktivísti
Íris Erlingsdóttir skrifar: Ef Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti er Sif Sigmarsdóttir eins og trans-aktívisti. Hvorugur hópurinn lætur stað...
Átök um æðsta dómstól Póllands
📅 31.10.2026 👁️ 2
Átök um æðsta dómstól Póllands
Óeirðalögregla var kölluð út að stjórnlagadómstól Póllands í Varsjá í gærkvöld vegna átaka um skipanir dómara við hann. Lögregla þurfti að koma í veg ...
Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 2
Búa sig undir þriðju helgi mót­mæla - Vísir
Síðustu helgi var sami viðbúnaður lögreglu í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að stemma stigu við óeirðum og ofbeldi sem fylgdu mótmælunum sem náð...
Láta brjóta í sér rifbeinin til að fá mjórra mitti – Læknar vara við afleiðingunum
📅 31.10.2026 👁️ 2
Láta brjóta í sér rifbeinin til að fá mjórra mitti – Læknar vara við afleiðingunum
Sífellt fleiri konur kjósa að gangast undir umdeilda fegrunaraðgerð þar sem rifbein eru brotin til að gera mittið mjórra. Aðgerðin getur haft alvarleg...
Grunur um heiðursofbeldi hefur vaknað á Íslandi – Fagfólk fær sérstaka þjálfun
📅 31.10.2026 👁️ 2
Grunur um heiðursofbeldi hefur vaknað á Íslandi – Fagfólk fær sérstaka þjálfun
Grunur um heiðurstengt ofbeldi hefur vaknað í nokkrum málum sem lögreglan hér á landi hefur haft til meðferðar, en ekki liggja fyrir upplýsingar um hv...
Reiði meðal lögreglumanna: „Enginn fælingarmáttur í dómstólum“
📅 31.10.2026 👁️ 2
Reiði meðal lögreglumanna: „Enginn fælingarmáttur í dómstólum“
Reiði ríkir meðal lögreglumanna yfir því hvernig tekið er á hótunum og ofbeldi gegn lögreglufólki, að sögn Fjölnis Sæmundssonar, formanns Landssamband...
Rent support scheme announced for residents in Fuerteventura
📅 31.10.2026 👁️ 2
Rent support scheme announced for residents in Fuerteventura
The Puerto del Rosario council has announced a €190,000 scheme to help eligible residents pay their rent.The funding is intended for people and famili...
Air Canada starts flights to Tenerife South Airport
📅 31.10.2026 👁️ 2
Air Canada starts flights to Tenerife South Airport
Air Canada’s direct flights from Toronto to Tenerife South Airport are now operating, with the first service arriving on Monday (26th October). A seco...
Bolsonaro segist vera fórnarlamb ofsókna
📅 31.10.2026 👁️ 2
Bolsonaro segist vera fórnarlamb ofsókna
Flávio Bolsonaro, fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Brasilíu, segir að hann hafi flúið til Bandaríkjanna þar sem hann telji sig fórnarlamb ofsókna í h...
Strandveiðar fá sérstakt frumvarp í uppstokkun byggðakerfisins
📅 31.10.2026 👁️ 2
Strandveiðar fá sérstakt frumvarp í uppstokkun byggðakerfisins
Innviðaráðuneytið hefur sett í samráðsgátt áform um endurskoðun á lögum um byggðakerfi sjávarútvegsins. Stefnt er að því að vinna tvö aðskilin frumvör...
Gervigreindarfyrirtæki auðvelda síðum að hafna vefsöfnun
📅 31.10.2026 👁️ 2
Gervigreindarfyrirtæki auðvelda síðum að hafna vefsöfnun
OpenAI, Google, Microsoft og Anthropic lofuðu í gær að veita fjölmiðlum og öðrum vefsíðum eina aðgangsleið til að koma í veg fyrir að efni þeirra sé s...
Nýjar upp­lýsingar um morðið á Hrafn­hildi Lilju á­tján árum síðar - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 3
Nýjar upp­lýsingar um morðið á Hrafn­hildi Lilju á­tján árum síðar - Vísir
Hrafnhildur Lilja var vinamörg og ævintýragjörn ung kona frá Ólafsfirði sem fór í ferðalag til Dóminíska lýðveldisins í Karíbahafi árið 2008. Hún skil...
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
📅 31.10.2026 👁️ 3
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi
Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í KópavogiLögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt en alls voru 102 mál skráð í...
Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“
📅 31.10.2026 👁️ 4
Glæpamenn í barnavernd á Íslandi og í Noregi: „Það gildir bara mjög skýrt ákvæði“
Í Noregi í lok ágúst sögðu fjölmiðlar frá því að einstaklingar með tengsl við glæpaheiminn í landinu ynnu hjá eða stýrðu sextán barnaverndarfyrirtækju...
Saltvítið við Evrópustrendur
📅 31.10.2026 👁️ 3
Saltvítið við Evrópustrendur
Saltvítið við Evrópustrendur Þegar Mið­jarð­ar­hafið þorn­aði upp FFyrir 200 millj­ónum ára voru öll meg­in­lönd Jarðar enn meira og minna sam­einuð í...
Which online income streams are actually growing in 2026?
📅 31.10.2026 👁️ 3
Which online income streams are actually growing in 2026?
Online income is growing, but not evenly. Upwork’s Future Workforce Index found that 38% of skilled U.S. knowledge workers now freelance, up from 28% ...
Sam­þykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 4
Sam­þykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga - Vísir
 Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna sagði að flaugarnar yrðu alfarið fjármagnaðar með framlögum frá Kanada, Noregi og Þýskalandi auk láni frá Evrópusamb...
Skúrir eða slydduél víða
📅 31.10.2026 👁️ 3
Skúrir eða slydduél víða
Dálítil lægð á Grænlandshafi og hæð vestur af Írlandi beina suðvestlægri átt til Íslands. Í dag verður kaldi eða stinningskaldi víða í dag og skúrir e...
Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
📅 31.10.2026 👁️ 2
Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina Einbýlishús við Dynskóga 7 í Reykjavík hefur verið sett á sölu fyrir 179,8 milljó...
Teenager among two arrested in Tenerife over alleged plans for looting and violence
📅 31.10.2026 👁️ 3
Teenager among two arrested in Tenerife over alleged plans for looting and violence
Two people have been arrested in Tenerife over their alleged involvement in online calls for looting and disorder in Santa Cruz and Playa Las Americas...
Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi
📅 31.10.2026 👁️ 3
Björguðu 25 sjómönnum úr brennandi skipi
25 sjómönnum var bjargað úr brennandi olíuflutningaskipi á Hormússundi í gær eftir að skipið varð fyrir árás. Yfirvöld í Óman komu skipverjunum til bj...
Víða kaldi og skúrir - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 3
Víða kaldi og skúrir - Vísir
„Dálítil lægð á Grænlandshafi og hæð vestur af Írlandi beina til okkar suðvestlægri átt,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Á m...
SATURDAY WEATHER: Heavy rain is heading to the Canary Islands
📅 31.10.2026 👁️ 3
SATURDAY WEATHER: Heavy rain is heading to the Canary Islands
The Canary Islands are set for a warm Halloween although the weather will become more unsettled as a low-pressure system approaches from the west.Clou...
Starfs­menn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 3
Starfs­menn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað - Vísir
Ný löggæsluáætlun dómsmálaráðherra fyrir næstu fimm ár var kynnt á sérstökum fundi á miðvikudaginn. Þar kemur fram að samkvæmt könnun meðal lögregluma...
Kínverjar segja Þorgerði Katrínu hafa hrósað hugmyndum Xi Jinping og óskað Kommúnistaflokknum til hamingju
📅 31.10.2026 👁️ 3
Kínverjar segja Þorgerði Katrínu hafa hrósað hugmyndum Xi Jinping og óskað Kommúnistaflokknum til hamingju
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra óskaði kínverska Kommúnistaflokknum til hamingju með 5. allsherjarfund 20. miðstjórnarinnar og hrósað...
Hótanir dómsmálaráðuneytis tímabundið stöðvaðar
📅 31.10.2026 👁️ 3
Hótanir dómsmálaráðuneytis tímabundið stöðvaðar
Úrskurður Trinu Thompson, dómara í norðurhluta Kaliforníu, heftir aðgerðir stjórnarliða Trumps sem hafa gert tilraunir til að takmarka atkvæðagreiðslu...
Frétta­tía vikunnar: Brasilía, Ofur­skálin og Pútín - Vísir
📅 31.10.2026 👁️ 3
Frétta­tía vikunnar: Brasilía, Ofur­skálin og Pútín - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Líkt og áður er einungis sæmdin og montrétturinn í verðlaun. Fréttat...
Óttar Guðmundsson skrifar: Hinir óskiljanlegu
📅 31.10.2026 👁️ 3
Óttar Guðmundsson skrifar: Hinir óskiljanlegu
Mynd Íslendingasögur leggja áherslu á að menn kunni að koma f
Spain train disaster clouds Pedro Sánchez chances of re-election
📅 31.10.2026 👁️ 3
Spain train disaster clouds Pedro Sánchez chances of re-election
The Spanish PM is hit by a succession of crises just weeks before a snap general election.
Tveir Kínverjar dæmdir í fangelsi fyrir njósnir
📅 31.10.2026 👁️ 3
Tveir Kínverjar dæmdir í fangelsi fyrir njósnir
Tveir kínverskir ríkisborgarar voru dæmdir í fangelsi í Kaliforníu í dag eftir að þeir viðurkenndu að hafa reynt að fá starfsmenn bandaríska hersins t...
Mahmood expected to announce changes to rules around indefinite leave to remain
📅 31.10.2026 👁️ 3
Mahmood expected to announce changes to rules around indefinite leave to remain
The home secretary has faced opposition from within the government over plans to impose new rules on migrant workers already in the UK.
Burnham 'open' to calls for slavery apology but rules out reparations
📅 31.10.2026 👁️ 4
Burnham 'open' to calls for slavery apology but rules out reparations
The prime minister says Britain must "face up to the past" for its role in the transatlantic slave trade but reparations are "not the right answer".
The final reveal of the Celebrity Traitors
📅 31.10.2026 👁️ 2
The final reveal of the Celebrity Traitors
The second series of BBC One's The Celebrity Traitors reached its climax on Friday, with the 21 original contestants having been reduced to seven befo...
Rússar herja á orkuinnviði í Úkraínu
📅 31.10.2026 👁️ 4
Rússar herja á orkuinnviði í Úkraínu
Rússlandsher gerði árásir á orkuver í Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í kvöld með þeim afleiðingum að fjögur svæði borgarinnar eru án rafmagns. Fréttamiðilli...
Why North Korea's 'elite' hackers are the prime suspect in major Binance hack
📅 31.10.2026 👁️ 4
Why North Korea's 'elite' hackers are the prime suspect in major Binance hack
If the accusations are true, the record-making heist shows how powerful suspected North Korean hackers have become.
Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund
📅 31.10.2026 👁️ 3
Íbúar Hörgársveitar orðnir fleiri en þúsund
Íbúar Hörgársveitar hafa rofið fjögurra talna múrinn en nú búa þar fleiri en þúsund manns. Sveitarfélagið greinir frá þessu í tilkynningu.Íbúum í Hörg...
How to prepare for an emergency: What households in different countries stock up on
📅 31.10.2026 👁️ 3
How to prepare for an emergency: What households in different countries stock up on
Filter straws to a disposable toilet - people in the US, Japan, Sweden and Netherlands on what's in their emergency stashes.
Global nature talks reach deal but money remains an issue
📅 31.10.2026 👁️ 4
Global nature talks reach deal but money remains an issue
Countries have been trying to get a global agreement to halt nature decline back on track.
'The necktie is dead': How US midterm candidates are dressing for votes
📅 31.10.2026 👁️ 3
'The necktie is dead': How US midterm candidates are dressing for votes
From Alaska to Texas, candidates with an eye on Congress are using their personal style to stand out.
World trekker Karl Bushby's final push home to Hull
📅 31.10.2026 👁️ 3
World trekker Karl Bushby's final push home to Hull
Global walker Karl Bushby is almost within sight of his journey's end after 28 years away.
Why MPs keep talking about an early election despite Burnham's denials
📅 31.10.2026 👁️ 3
Why MPs keep talking about an early election despite Burnham's denials
The prime minister has categorically ruled out an early general election, but it has not stopped speculation at Westminster.
Halla for­seti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðar­enda - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 3
Halla for­seti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðar­enda - Vísir
Þegar Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi eftir bréf fyrir ofurhugann. „Hún var að hrósa mér ...
Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferða­lag - Vísir
📅 30.10.2026 👁️ 4
Halla ekki heima þegar hann mætti skríðandi eftir tólf daga ferða­lag - Vísir
Þegar hinn 23 ára gamli Axel komst á leiðarenda var Halla Tómasdóttir forseti lýðveldisins farin af bæ en hún skildi að sjálfsögðu eftir bréf fyrir of...