Innviðaráðuneytið hefur sett í samráðsgátt áform um endurskoðun á lögum um byggðakerfi sjávarútvegsins. Stefnt er að því að vinna tvö aðskilin frumvörp um úrræði sem áður heyrðu til sömu laga um byggðatengdar veiðiheimildir en ráðuneytið kallar eftir umsögnum áður en gengið verður frá frumvarpsdrögum.
Miðað við það sem fram kemur um áætlanir ráðuneytisins í samráðsgáttinni verða strandveiðar teknar út fyrir sviga með sér frumvarpi. Hitt frumvarpið mun fjalla um breytingar á öðrum úrræðum innan 5,3% kerfisins svonefnda, en það eru línuívilnun, skel- og rækjubætur og bæði almennur og sértækur byggðakvóti.
Frumvarp um strandveiðar verður lagt fram á næstunni en frumvarp um önnur úrræði verður lagt fram eftir áramót.
Tryggja grunn- og viðbótaraflamagn
Í frumvarpi um strandveiðar er útlit fyrir að innviðaráðherra ætli að hverfa frá því fyrirkomulagi að úthlutað aflamagn ráði dagafjölda. Kerfinu verði breytt á þann hátt að ákveðið grunnaflamagn sé tryggt og viðbótaraflamagn ráðist af þáttum sem tengjast byggða- og atvinnusjónarmiðum í minni sjávarbyggðum. Þá muni það skipta máli hvort strandveiðar séu aðalatvinnugrein leyfishafa.
Í drögunum er stefnt að því að gera breytingar á fyrirkomulagi sértækra ívilnana byggðakerfisins eða fella þær niður. Hugsanlega á það sérstaklega við um línuívilnun og skel- og rækjubætur sem innviðaráðuneytið hefur þegar skorið verulega niður.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu skerðingarnar harðlega og vísuðu til skriflegs samkomulags um að bíða með breytingar á úrræðunum þar til heildarendurskoðun færi fram.
Í drögunum segir enn fremur að heildarmarkmiðið sé að taka byggðakerfið til gagngerrar endurskoðunar og einblína sérstaklega á sjávarbyggðir sem eiga erfitt uppdráttar, til að mynda vegna fámennis eða takmarkaðra atvinnutækifæra.
Í því skyni á meðal annars að styrkja hlutverk Byggaðstofnunar sem heldur núna utan um úthlutanir sértæka byggðakvótans.
Línuívilnun og skel- og rækjubætur fjarlægst markmið
Sérstaklega er tekið fram að tilefni þess að unnið sé að nýju frumvarpi sé að endurteknar ábendingar hafi borist um að núverandi byggðakerfi skili ekki tilætluðum árangri fyrir þau byggðarlög sem mest þurfa á því að halda.
Bent hafi verið á að „almennur byggðakvóti dreifist víða og oft í litlu magni, þannig að áhrifin kunna að verða takmörkuð, jafnframt því sem skilyrði og sérreglur hafa dregið úr fyrirsjáanleika og samræmi við framkvæmd.“
Einnig er nefnt að upphaflegt markmið með línuívilnun hafi verið að stuðla að störfum í landi en með breyttum veiðiaðferðum hafi nýting minnkað. Skel- og rækjubótum var komið á um aldamótin þegar mikill aflabrestur varð í hörpuskel og rækju en ráðuneytið telur úrræðið hafa fjarlægst upphafleg markmið.
Áhrif á byggðarlög ef nýjar reglur eiga ekki við
Með drögunum fylgir greining á mögulegum áhrifum sem lagabreyting gæti haft í för með sér. Tekið er fram að gert sé ráð fyrir verulegum áhrifum á byggðarlög þar sem það sé eitt af markmiðum frumvarpsins.
Talið er að lagabreyting gæti haft jákvæð á minni sjávarbyggðir sem standa höllum fæti. Hins vegar er ekki ólíklegt að byggðarlög sem njóta núverandi ívilnana verði fyrir neikvæðum áhrifum, þá helst ef ný viðmið eiga ekki lengur við þau.
Talið er nauðsynlegt að meta staðbundin áhrif sérstaklega þegar kemur að því að útfæra lögin, sérstaklega þar sem ráðstöfun úr byggðakerfinu hefur mikið vægi í atvinnulífi byggðarlaga.