OpenAI, Google, Microsoft og Anthropic lofuðu í gær að veita fjölmiðlum og öðrum vefsíðum eina aðgangsleið til að koma í veg fyrir að efni þeirra sé skrapað til að þjálfa gervigreindarlíkön.
Fyrirtækin hafa verið harðlega gagnrýnd af fréttamiðlum og fleirum fyrir það gríðarlega magn texta sem þau sækja í leyfisleysi. Þau hafa einnig staðið í lagadeilum, en fjölmiðillinn New York Times er til að mynda einn þeirra sem hafa farið með mál fyrir dómstóla.
Von á breytingum á næsta ári
Eins og er þurfa vefstjórnendur að innleiða fjölda lokunarskipana fyrir hvert yrki, eða botta, sem skríður um vefinn til að safna gögnum.
Nýja lausnin sem lögð er fram á að leyfa þeim að slá inn eina, staðlaða skipun sem öll gervigreindarfyrirtæki sem taka upp nýju reglurnar viðurkenna og virða.
Microsoft segist ætla að innleiða hana frá og með fyrsta febrúar á næsta ári og Google „einhvern tímann árið 2027.
OpenAI, framleiðandi ChatGPT, segir að fyrirtækið muni innleiða hana „á næstu mánuðum“. Anthropic, framleiðandi Claude, segir að innleiðingin sé þegar hafin.