Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Einbýlishús við Dynskóga 7 í Reykjavík hefur verið sett á sölu fyrir 179,8 milljónir króna. Um er að ræða 264 fermetra hús með tvöföldum bílskúr sem reist var árið 1974.
Húsið stendur á gróðursælli lóð í rólegri botnlangagötu og hefur að sögn fasteignasala verið mikið endurnýjað á undanförnum árum. Meðal annars hafa eldhús, baðherbergi, gestasalerni, gólfefni og raflagnaefni verið endurnýjuð og húsið málað að innan.
Í húsinu eru fjögur til fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi auk gestasnyrtingar. Alrýmið er bjart með gluggum á þrjá vegu og þaðan er gengið út á rúmgóðar vestursvalir sem hafa nýlega verið endurbættar.
Við húsið er einnig stór og skjólsæl viðarverönd og rúmgóður sólskáli með arni. Þakgler sólskálans hefur nýlega verið endurnýjað. Á framlóðinni eru stór hellulögð bílastæði með hitalögnum undir.
Staðsetning hússins er sögð góð en stutt er meðal annars í Mjóddina, skóla og íþróttasvæði ÍR.
Eitt atriði í fasteignaauglýsingunni vekur þó sérstaka athygli. Þar kemur fram með áberandi hætti að eigendur skoði makaskipti á ódýrari eign eða eignum.
Ekki liggur fyrir hvort orðalagið sé alveg eins og til var ætlast eða hvort eigendurnir séu í raun tilbúnir að taka ódýrari fasteignir upp í kaupverðið.