Donald Trump Bandaríkjaforseti þurfti að gera óvænt hlé á ræðu sinni á kosningafundi í Daytona Beach í Flórída í gær þegar hann fékk eitthvað í annað augað og virtist eiga erfitt með að halda því opnu.Daily Mail segir frá þessu og bendir á að atvikið komi í kjölfar vangaveltna um heilsufar hins áttræða forseta eftir að hann aflýsti tveimur kosningafundum um helgina.Trump var staddur í Flórída til að afla Repúblikanaflokknum fylgis fyrir þingkosningarnar sem eru fram undan eftir helgi.
Óvænt uppákoma hjá Trump í Flórída – Heilsufar forsetans aftur í sviðsljósinu