Síðustu helgi var sami viðbúnaður lögreglu í Frakklandi í tilraun stjórnvalda til að stemma stigu við óeirðum og ofbeldi sem fylgdu mótmælunum sem náðu hápunkti sínum laugardaginn 17. október. Þá hafa þúsundir verið handteknir á síðustu vikum í tengslum við óeirðir mótmælanna.
Sjá einnig: Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað
Umfangsmikil mótmæli hafa átt sér stað víðs vegar um Evrópu á undanförnum dögum. Mótmælin hafa teygt anga sína víða um heimsálfuna en þau beinast flest gegn hækkandi verðlagi og samdrætti í opinberri þjónustu.
Innanríkisráðherra Frakklands Laurent Nunez varaði við mikilli „hættu á óeirðum“ og að mótmæli yrðu leyfð, þó ekki í miðsvæðis í stórborgum, að því er kemur fram í umfjöllun Le Monde. Síðustu helgi bannaði lögregla mótmæli víða í París og rýmdi meðal annars Bastillutorgið þar í borg.
Le Monde greinir frá því að fjörutíu lestarstöðvum verði lokað í París og einnig megi búast við truflunum á öðrum samgöngum. Útgöngubann muni gilda í sumum hverfum borgarinnar frá klukkan 23 í kvöld til klukkan 6 í fyrramálið.
Sjá einnig: Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað
Mótmælin bera upp á hrekkjavöku og hefur Nunez varað við því að mótmælendum yrði ekki heimilt að bera grímur sem hyldu andlit þeirra.
Þýsk ungmenni fylgja
Sömuleiðis er búist við á annað hundrað mótmælenda í þrjátíu og fjórum borgum í Þýskalandi, meðal annars Berlín, Frankfurt og Munchen að því er kemur fram í umfjöllun Reuters. Mótmælin eru skipulögð af ungliðahreyfingunni Gen Z-regelt, sem mætti lauslega þýða sem „Z-kynslóðin kemur á reglu.“
Á heimasíðu samtakanna segjast þau mótmæla herskyldu, hækkandi framfærslukostnaði og krefjast aukinnar fjárfestingar í menntakerfinu og aðgerðum í loftslagsmálum.
Þýsk stjórnvöld búast við því að mótmælin fari friðsamlega fram en vara við tilraunum öfgahópa til að nýta sér hreyfinguna. Í höfuðborginni Berlín hefur verið neglt fyrir glugga ýmissa lúxusverslana á verslunargötunni Kurfuerstendamm vegna áhyggna um mögulegar óeirðir.
Þá komu tugir þúsunda saman í yfir fjörutíu borgum á Ítalíu í gær til að krefjast betri kjara og mótmæla háum framfærslukostnaði og auknum útgjöldum hins opinbera til hernaðarmála.