Fyrrverandi aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar segir hann hafa passað sig í áfengisdrykkju eftir móttöku íslenska bridds-landsliðsins þegar það vann Bermúdaskálina árið 1991. Margir töldu Davíð hafa verið vel drukkinn þegar hann hélt móttökuræðuna.Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýrri bók feðganna Reynis Traustasonar og Jóns Trausta Reynissonar um Davíð Oddsson, Davíðstíminn: Sjálfstæð saga leiðtoga og lands. Koma þar fram ótal sögur sem hafa aldrei áður sést á prenti.
Davíð hafi passað sig í drykkju eftir „Bermúdaskálina“ – „Eftir þetta setti hann það í annan farveg“