Þessu greinir hann frá í færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær en þar segir hann einnig frá því að það hafi verið tveir björgunarsveitarmenn á „sæköttum“ eða jet-ski sem sóttu þá félagana og komu þeim á þurrt land.„Vorum orðnir kaldari en mig óraði fyrir, mældur líkamshiti 32 gráður. En með öruggum handbrögðum tók það ca 30 mínútur að koma okkur upp í 37 gráður undir hitateppum og með volgt innrennsli í æð,“ segir einnig í færslunni.
Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ - Vísir