Mikil umferðarteppa hefur myndast á Vesturlandsvegi við Kollafjörð vegna malbikunarframkvæmda á svæðinu.
Frá klukkan 21 í kvöld og til klukkan 7 í fyrramálið verður vegurinn lokaður í norðurátt við hringtorgið að Þingvallavegi en hjáleið verður um Kjósarskarð, að því er fram kemur í tilkynningu Vegagerðarinnar.
Loka aftur á morgun
Umferð á leið til Reykjavíkur keyrir meðfram vinnusvæðinu. Sama lokun verður svo upp á teningnum á morgun, mánudagskvöld.
Vinna stendur annars vegar yfir á um 670 metra kafla við Esjumela og hins vegar á um 1.500 metra löngum kafla við Kollafjörð.