Trump telur Ísland tilheyra Bandaríkjunum

Donald Trump Bandaríkjaforseti birti fyrr í dag mynd á samfélagsmiðlinum Truth Social þar sem meðal annars Ísland, Mexíkó, Kanada og Grænland eru sýnd á korti með þeim hætti að löndin virðast tilheyra Bandaríkjunum.
Birtingin vekur athygli í ljósi ítrekaðra yfirlýsinga Trump um Grænland undanfarin misseri. Forsetinn hefur ítrekað lýst því yfir að Bandaríkin þurfi að ná yfirráðum yfir Grænlandi og hefur meðal annars vísað til þjóðaröryggis og vaxandi umsvifa Rússlands og Kína á norðurslóðum.
Trump hefur áður birt sambærilegt myndefni. Í júlí birti hann mynd á Truth Social þar sem Grænland var sýnt í litum bandaríska fánans. Stjórnvöld á Grænlandi hafa ítrekað svarað slíkum yfirlýsingum með því að undirstrika að framtíð landsins sé í höndum Grænlendinga sjálfra.
Áhugi Trump á Grænlandi nær aftur til fyrra forsetatímabils hans. Árið 2019 vakti hann mikla athygli þegar hann viðraði hugmyndir um að Bandaríkin keyptu Grænland af Danmörku. Hugmyndinni var þá hafnað bæði í Danmörku og á Grænlandi.
Eftir að Trump sneri aftur í Hvíta húsið hefur hann gengið lengra í málflutningi sínum. Í janúar á þessu ári sagði hann að Bandaríkin þyrftu Grænland vegna þjóðaröryggis og að ekkert annað en bandarísk yfirráð yfir landinu væru ásættanleg.
Málið hefur valdið talsverðri spennu í samskiptum Bandaríkjanna við Danmörku og önnur Evrópuríki. Stjórnvöld í Danmörku og á Grænlandi hafa alfarið hafnað kröfum hans.
Ekki liggur fyrir hvort birting myndarinnar í dag feli í sér nýja stefnumörkun af hálfu Bandaríkjastjórnar. Sérstaka athygli vekur þó að Ísland skuli einnig vera sýnt með þessum hætti á myndinni.