Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
Vísitala neysluverðs rís um 0,44 prósent í október, aðallega vegna hærra eldsneytisverðs.
Stríðsrekstur Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta gegn Úkraínu og stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, sem ákveðið var af Donald Trump Bandaríkjaforseta og Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, valda því að flest íslensk fasteignalán hækka um 0,44 prósent í kjölfar nýrra talna Hagstofu Íslands um þróun vísitölu neysluverðs.
Verðbólga á Íslandi, þróun vísitölu neysluverðs síðustu 12 mánuði, mælist nú 5,9 prósent, líkt og í síðasta mánuði. Hækkun vísitölu neysluverðs í nýrri mælingu, sem kynnt var í morgun, stafar aðallega af verðhækkun á dísilolíu (0,11% af vísitöluhækkun) og bensíni (0,16%). Í síðasta mánuði hækkaði eldsneyti einnig verulega við það að tímabundin virðisaukaskattslækkun ríkisstjórnarinnar yfir síðasta sumar féll út.
Ein helsta orsök hás eldsneytisverðs er stríðsrekstur. Rússland hóf innrásarstríð gegn Úkraínu 24. febrúar 2022, eftir ákvörðun Vladimírs Pútín forseta, og hefur upp á síðkastið leitt til þess að Úkraínumenn hafa ráðist á eldsneytisbirgðastöðvar í Rússlandi með drónaárásum síðustu mánuði. Eldsneytisverð hækkaði síðan verulega …