Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart - Vísir

Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart - Vísir

Jóla­hlað­borð og jóla­bröns á verði sem kemur á ó­vart - Vísir

Jólahlaðborðin hefjast 13. nóvember og daginn eftir verður fyrsti jólabrönsinn borinn fram. Að sögn Daníels Friðrikssonar, eiganda og framkvæmdastjóra Asks, verður áherslan sem fyrr á klassískan íslenskan jólamat, rausnarlegar veitingar og notalegar samverustundir.

„Við viljum fyrst og fremst bjóða upp á góðan mat á sanngjörnu verði. Hér erum við ekkert að flækja hlutina með einhverju óþarfa fíneríi. Við leggjum áherslu á það sem við kunnum best, að bjóða góðan og vel matreiddan mat. Um leið viljum við að fólki líði vel hjá okkur,“ segir Daníel.

Klassískt jólahlaðborð þar sem kjötið er í aðalhlutverki

Jólahlaðborð Asks hefst föstudaginn 13. nóvember og verður á boðstólum frá fimmtudegi til sunnudags fram yfir jól. Þar verður boðið upp á fjölbreytt úrval hefðbundinna jólarétta, bæði kalda og heita, ásamt öllu því meðlæti sem tilheyrir íslenskri jólaveislu.

„Við reynum að halda í hefðirnar og vera með klassískt íslenskt jólahlaðborð. Þar má meðal annars finna purusteikina okkar, grillað lambalæri og kalkún ásamt góðu meðlæti. Á kalda borðinu verður svo jólasíld, grafinn og reyktur lax, paté og ýmislegt fleira,“ segir Daníel.

Hann segir kjötréttina jafnan njóta mestra vinsælda meðal gesta enda hafi kokkar staðarins mikla reynslu af matreiðslu þeirra.

„Askur hefur alltaf verið þekktur fyrir úrvals kjöt. Sumir byrja á síldinni og kalda borðinu en aðrir fara nánast beint í kjötið. Við eldum svona mat allt árið um kring og kokkarnir okkar kunna vel til verka. Við erum til dæmis sérstaklega ánægðir með purusteikina okkar sem hefur lengi verið einn af vinsælustu réttum staðarins.“

Á hlaðborðinu verða einnig koníaksbætt villisveppasúpa, hangikjöt með uppstúf, sykurbrúnaðar kartöflur, heimagert rauðkál og fleiri kunnuglegir jólaréttir. Í eftirrétt verður meðal annars boðið upp á crème brûlée, súkkulaðimús, marengstertu Asks og ris à la mande.

Jólahlaðborðið kostar 11.900 krónur á mann, sama verð og í fyrra. Jólahlaðborðið kostar 4.900 krónur fyrir börn á aldrinum sex til tólf ára en börn fimm ára og yngri borða frítt, eitt barn með hverjum fullgreiðandi fullorðnum.

„Við viljum hafa þetta fjölskylduvænt. Það getur verið ansi kostnaðarsamt fyrir stórar barnafjölskyldur að fara saman á jólahlaðborð og þess vegna reynum við að hafa verðið sanngjarnt. Okkur finnst mikilvægt að fjölskyldur geti komið saman og notið góðs matar án þess að kostnaðurinn verði fráhrindandi,“ segir Daníel.

Jólabrönsinn sameinar það besta úr báðum heimum

Fyrir þá sem vilja njóta jólakræsinganna fyrr um daginn verður sérstakur jólabröns í boði á laugardögum og sunnudögum frá 14. nóvember. Þar mætast hefðbundinn helgarbröns og klassískt jólahlaðborð í einni veglegri veislu.

Á borðinu verða meðal annars eggjahræra, beikon, smápylsur og amerískar pönnukökur ásamt jólasíld, gröfnum laxi, purusteik og gljáðum hamborgarhrygg. Að sjálfsögðu verður einnig boðið upp á fjölbreytt meðlæti og ljúffenga eftirrétti.

„Jólabrönsinn er skemmtilegur kostur fyrir fjölskyldur, vinahópa og vinnufélaga sem vilja koma saman yfir góðum mat að degi til. Þar fær fólk bæði hefðbundna brönsrétti og jólamat, þannig að allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi,“ segir Daníel.

Jólabrönsinn verður í boði frá klukkan 11.30 til 14 um helgar og kostar 7.900 krónur fyrir fullorðna og 3.500 krónur fyrir börn sex til tólf ára. Börn fimm ára og yngri borða frítt samkvæmt sömu skilmálum og á jólahlaðborðinu.

Sextíu ára saga í veggjunum

Askur var opnaður árið 1966 og hefur því verið hluti af íslenskri veitingasögu í sex áratugi. Á þeim tíma hafa ótal fjölskyldur, vinahópar og vinnufélagar átt þar góðar stundir. Á veggjum staðarins má meðal annars sjá myndir og úrklippur úr gömlum dagblöðum þar sem fjallað er um Ask og sögu hans.

Það er því ekki laust við að gestum finnist þeir stíga örlítið aftur í tímann þegar þeir ganga inn á Ask. Innréttingarnar, hlýleg lýsingin og afslappað andrúmsloftið skapa notalega stemningu sem er orðin eitt helsta einkenni staðarins. Hér er enginn að flýta sér og margir gestir sitja lengi eftir matinn við spjall og notalegheit.

„Það er einmitt eitt af því sem okkur finnst svo skemmtilegt við Ask. Fólk sest niður, nýtur matarins og gefur sér tíma til að spjalla. Hér er ekkert stress eða læti, bara notalegt umhverfi og góð þjónusta,“ segir Daníel.

Hann segir marga fasta gesti hafa sótt staðinn í áratugi. Sumir hafi jafnvel komið þangað með foreldrum sínum sem börn en komi nú með eigin börn og barnabörn. „Við eigum stóran hóp tryggra gesta sem hefur komið hingað ár eftir ár. En það er líka mjög gaman að sjá ný andlit og fólk sem er að enduruppgötva Ask.“

Jólasnaps með íslensku greni

Jólastemningin á Aski einskorðast þó ekki við matinn. Í fyrra útbjuggu Daníel og félagar í fyrsta sinn sinn eigin jólasnaps sem vakti mikla lukku meðal gesta. Hann verður því aftur á boðstólum í ár.

„Við notum brennivín og látum íslenskt greni liggja í því í um þrjár vikur. Síðan bætum við kryddjurtum út í, meðal annars stjörnuanís, og látum það standa aðeins lengur. Útkoman er mjög skemmtilegur snaps með sérstökum grenikeim,“ segir Daníel.

Stundum er gengið á milli borða með flöskuna og gestum boðið að smakka. „Þetta sló í gegn í fyrra og skapaði skemmtilega stemningu. Þess vegna ætlum við að gera meira af honum núna.“

Á Aski mætast áratugalangar hefðir, heimilislegt andrúmsloft og matarilmur sem margir Íslendingar þekkja vel. Á veggjum má sjá gamlar blaðaúrklippur með umfjöllun um veitingastaðinn.

Skatan á sínum stað á Þorláksmessu

Á Þorláksmessu tekur svo við önnur rótgróin hefð þegar skatan verður í aðalhlutverki. Askur hefur lengi boðið upp á skötu á þessum degi og segir Daníel áhugann vera mikinn.

„Við verðum með skötu, plokkfisk, saltfisk og ýmislegt annað. Þetta verður fjölbreytt hlaðborð þar sem líka verður hægt að fá síld, lax og fleiri rétti. Við verðum að sjálfsögðu með hamsatólg fyrir þá sem vilja hana með skötunni.“

Hann segir tryggð gestanna við skötuveisluna einstaka. „Í fyrra voru um 50 til 60 manns sem bókuðu strax fyrir næstu Þorláksmessu þegar þeir voru á leiðinni út eftir matinn. Það segir auðvitað mikið um ánægju fólks.“

Skötuhlaðborðið kostar 7.900 krónur. Daníel hvetur jafnframt fólk til að bóka tímanlega á jólahlaðborðin, enda sé þegar farið að bóka töluvert. Á kvöldin verða tvær setur, sú fyrri frá klukkan 17 til 19 og sú seinni frá 20 til 22.

„Með þessu getum við frískað upp á hlaðborðið á milli seta og tryggt að allir gestir fái sömu góðu upplifunina. Við viljum að það sé alltaf nóg af mat og að allt líti vel út.“

Í tilefni 60 ára afmælisins býður Askur upp á tilboð á hinu vinsæla hádegishlaðborði staðarins. Það kostar nú aðeins 2.990 krónur og mun tilboðið gilda út árið.

Afmælistilboð út árið

Í tilefni 60 ára afmælisins hefur Askur einnig verið með sérstakt tilboð á hinu vinsæla hádegishlaðborði staðarins. Það kostar nú aðeins 2.990 krónur og mun tilboðið gilda út árið.

„Við vildum gera eitthvað skemmtilegt í tilefni afmælisins og um leið gefa fólki tækifæri til að kynnast staðnum eða enduruppgötva hann. Við höfum verið hér í 60 ár og ætlum okkur að halda áfram að bjóða góðan mat og taka vel á móti gestunum okkar.“

Jólahlaðborð og jólaveisluþjónusta fyrir hópa og fyrirtæki

Fyrir utan jólahlaðborð og jólabröns býður Brasserie Askur einnig fyrirtækjum og hópum á höfuðborgarsvæðinu upp á jólaveisluþjónustu.

„Þá komum við með matinn á vinnustaðinn, á heimilið eða í veislusalinn. Hægt er að velja um fjórar útgáfur: Hangikjötsveislu sem er klassísk og einföld jólaveisla fyrir minni hópa, jólapinnamat sem eru matarmiklir bitar fyrir jólaboð og starfsmannapartý, kalt jólahlaðborð og jólasteikarhlaðborð með kokki. Þannig að hvort sem um er að ræða starfsmannajól, jólaboð fyrirtækisins eða stærri hóp, þá sjáum við um jólamatinn og hjálpum ykkur að velja lausn sem hentar,“ segir Daníel Friðriksson að lokum.

#jólabröns #jólahlaðborð #kemur #sem #verði


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262954160d/jola-hlad-bord-og-jola-brons-a-verdi-sem-kemur-a-o-vart

📰 Aðrar fréttir

Hirti sagt upp á Hagstofunni – „Var gert að hætta strax“
📅 29.10.2026 👁️ 0
Hirti sagt upp á Hagstofunni – „Var gert að hætta strax“
Hirti J. Guðmundssyni, sagnfræðingi og alþjóðastjórnmálafræðingi, hefur verið sagt upp störfum á Hagstofunni.Hjörtur hefur verið einn mest áberandi pi...
Vandræðaleg stund fyrir Pútín – Forseti Mósambík gnæfði yfir hann
📅 29.10.2026 👁️ 0
Vandræðaleg stund fyrir Pútín – Forseti Mósambík gnæfði yfir hann
Stólpagrín hefur verið gert að Vladímír Pútín Rússlandsforseta eftir að mynd birtist af honum með Daniel Chapo, forseta Mósambík.Breska blaðið Metro g...
Miðaði riffli að skipi Gorbatsjovs í Reykjavíkurhöfn – „Ertu orðinn snarvitlaus, maður!“
📅 29.10.2026 👁️ 0
Miðaði riffli að skipi Gorbatsjovs í Reykjavíkurhöfn – „Ertu orðinn snarvitlaus, maður!“
„Á árunum 1972-1999 starfaði ég sem skrifstofustjóri hjá samtökum útgerðarmanna, sem voru til húsa á II. hæð í Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, Reykjavík. H...
Sakaður um að hafa reynt að svipta mann lífi í leigubifreið við Kringluna
📅 29.10.2026 👁️ 0
Sakaður um að hafa reynt að svipta mann lífi í leigubifreið við Kringluna
Íslendingur á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps eftir að hann veittist að manni í leigubifreið fyrir utan Kringluna um miðj...
Stevie Wonder gengur illa að koma gömlu kærustunni út – Hefur búið leigulaust í húsi hans í 40 ár
📅 29.10.2026 👁️ 1
Stevie Wonder gengur illa að koma gömlu kærustunni út – Hefur búið leigulaust í húsi hans í 40 ár
Tónlistarmaðurinn Stevie Wonder reynir nú að bera fyrrverandi kærustu út húsi í hans eigu. Hún hefur búið þar leigulaust í fjörutíu ár.Miðillinn TMZ g...
Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar - Vísir
Mannlíf greindi fyrst frá málinu.  Á vef héraðsdómstólanna má sjá að málið er skráð sem skuldamál og verður tekið fyrir að morgni dags mánudaginn 2. n...
Vilhelm Jónsson skrifar: Höllin má bíða – mannslífin ekki
📅 29.10.2026 👁️ 1
Vilhelm Jónsson skrifar: Höllin má bíða – mannslífin ekki
Vilhelm Jónsson skrifar: Hvað gerir fjölskylda þegar skuldirnar vaxa, þakið lekur og nauðsynlegar viðgerðir bíða?Hún forgangsraðar.Hvað gera íslensk s...
Þorsteinn Pálsson: Bændur heimtuðu nei – við getum þetta sjálf! – Er það svo?
📅 29.10.2026 👁️ 1
Þorsteinn Pálsson: Bændur heimtuðu nei – við getum þetta sjálf! – Er það svo?
„Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að láta Ísland standa án pólitískrar baktryggingar...
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill loka landamærunum fyrir Usmani og hans líkum
📅 29.10.2026 👁️ 1
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill loka landamærunum fyrir Usmani og hans líkum
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, vill að trúarleiðtogar á borð við Muhammad Taqi Usmani verði stöðvaðir á landamærunum með sam...
Hamsatólginni bjargað
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hamsatólginni bjargað
Eini framleiðandi hamsatólgar fær framhaldslíf því fyrirtækið Stóruvellir hefur verið selt. Nýir eigendur ætla að halda framleiðslunni áfram en í sept...
Til Ilulissat á Airbus með nýjum flug­velli - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Til Ilulissat á Airbus með nýjum flug­velli - Vísir
Breytingin þýðir að Icelandair hyggst nýta stórar farþegaþotur í áætlunarflugi sínu til Ilulissat í stað hinna 37-sæta Dash 8 Q200. „Já, við gerum ráð...
Biðin á Land­spítalanum styttist til muna - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Biðin á Land­spítalanum styttist til muna - Vísir
Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu er greint frá samantekt stjórnenda bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu spítalans en hún bendir til þess að ...
Þrjú olíuskip í ljósum logum á Hormússundi
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þrjú olíuskip í ljósum logum á Hormússundi
Eldur logar í þremur olíuskipum á Hormússundi eftir að þau sigldu á tundurdufl samkvæmt tilkynningu íranska byltingarvarðarins. Skipin hafi verið á ól...
Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita - Vísir
Hjónin Veigar Margeirsson og Sigríður Ragna Jónasdóttir ræddu sögu sína í Bítinu á Bylgjunni. Tilefnið er fjörutíu ára Nýrnafélagsins. Sigríður útskýr...
Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda - Vísir
Kaffivagninn hefur staðið við Grandagarð frá árinu 1960 en kaffihúsið var upphaflega stofnað árið 1935 en þá á öðrum stað. Framkvæmdir hófust 4. apríl...
Rukka er­lenda nem­endur um milljónir - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Rukka er­lenda nem­endur um milljónir - Vísir
Þeir nemendur sem vilja stunda grunnám í alþjóðlegu námi í menntunarfræði og grunnám á hugvísindasviði þurfa að greiða minnst eða 1,450 milljónir krón...
Krefjast enn að for­setinn verði dæmdur til dauða - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Krefjast enn að for­setinn verði dæmdur til dauða - Vísir
Þeim dómi áfrýjaði forsetinn fyrrverandi en saksóknarar áfrýjuðu honum einnig og vildu að Yoon yrði dæmdur til dauða en ekki í lífstíðarfangelsi. Sú á...
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml
📅 29.10.2026 👁️ 1
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml
Ekkert sæti fyrir Evrópu í friðarviðræðum um Úkraínu – Kreml Fréttin29. október 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Yury Ushakov. Evrópskum þjóð...
And­lát Panettiere úr­skurðað sem slys - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
And­lát Panettiere úr­skurðað sem slys - Vísir
Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá endalokum rannsóknar á andláti Hayden Panettiere sem lést á heimili sínu í Greenville í Suður-Karólínu þann 16....
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum
Hlutabréf Google-móðurfélagsins hrynja um 10 prósent – olíuverð áfram í hæstu hæðum Fréttin29. október 2026Erlent, MarkaðurLeave a Comment Órói hefur ...
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada
📅 29.10.2026 👁️ 2
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada
Íslenskt nei og ekkert ESB-Kanada Fréttin29. október 2026Erlent, Evrópusambandið, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Ekkert v...
Keypti egg fyrir konuna og núna vill hún bara nota það – Hvað er til ráða?
📅 29.10.2026 👁️ 2
Keypti egg fyrir konuna og núna vill hún bara nota það – Hvað er til ráða?
Sambandið í svefnherberginu á það til að verða fyrir skakkaföllum þegar hasarinn í lífinu tekur öll völd. Þegar kynlífstól koma við sögu þá getur ýmis...
Hlýtur Vigdísar­verð­launin 2026 - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hlýtur Vigdísar­verð­launin 2026 - Vísir
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Vigdísarverðlaunin séu árlega veitt einstaklingi sem brotið hafi blað með störfum sínum í þágu tungumála, m...
Atli segir borgarstjórn sveifla keðjusöginni – „Járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Atli segir borgarstjórn sveifla keðjusöginni – „Járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk“
Atli Bollason lætur nýjan meirihluta Reykjavíkurborgar fá það óþvegið í harðorðum pistli þar sem hann líkir vinnubrögðum borgarstjórnar við aðgerðir a...
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju
📅 29.10.2026 👁️ 2
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju
Vance hefur samband við Íran – Trump neitar að friðarviðræður séu hafnar að nýju Fréttin29. október 2026ErlentLeave a Comment JD Vance, varaforseti Ba...
Hall­dóra Geir­harðs og Nikko taka að sér farar­stjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hall­dóra Geir­harðs og Nikko taka að sér farar­stjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu - Vísir
Eftir sjö farsæl ár sem fararstjórar Úrvals Útsýnar í Madonna hafa Dinna og Helgi ákveðið að halda á vit nýrra ævintýra. Við keflinu taka Dóra, leikko...
Poundland's future hangs in the balance as chain edges towards collapse
📅 29.10.2026 👁️ 2
Poundland's future hangs in the balance as chain edges towards collapse
Poundland's bosses have filed a notice of intention to appoint administrators to the business.
Serious pollution by water industry remains high despite £5bn investment, say regulators
📅 29.10.2026 👁️ 1
Serious pollution by water industry remains high despite £5bn investment, say regulators
All but one of England's water companies were rated as "poor" or "requiring improvement" for environmental targets.
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
📅 29.10.2026 👁️ 2
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán
Trump og Pútín hækka íslensk fasteignalán Vísitala neyslu­verðs rís um 0,44 pró­sent í októ­ber, aðal­lega vegna hærra elds­neyt­is­verðs. Stríðs­reks...
Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugg­lega dregin yfir ána - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugg­lega dregin yfir ána - Vísir
Ljósmyndari fréttastofunnar Anton Brink skellti sér á vettvang á þriðjudag þegar verkið við að draga brúna yfir ána hófst formlega. Sjá má á myndefnin...
Hættan af hraðakstri í brennidepli á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hættan af hraðakstri í brennidepli á minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa
Hættan sem fylgir hraðakstri ungmenna og ungir vegfarendur verða í brennidepli á alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa 15. nóvember. H...
Verðbólgan stendur í stað
📅 29.10.2026 👁️ 2
Verðbólgan stendur í stað
Verðbólgan stendur í stað Vísitala neyslu­verðs hækkar um 0,44 pró­sent á milli mán­aða en verð­bólga á tólf mán­aða grund­velli breyt­ist ekki. Verð­...
Átti að fá 100 þúsund frá „mafíunni“ fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
📅 29.10.2026 👁️ 2
Átti að fá 100 þúsund frá „mafíunni“ fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
Þrír karlmenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að kveikja í Teslu-bifreið lögreglukonu í Reykjavík í ágúst 2023. Einn þeirra átti að ...
Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum
📅 29.10.2026 👁️ 3
Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum
Verðbólgan var 5,9 prósent í október. Það er jafnmikil verðbólga og í síðasta mánuði.Eldsneytisverð hefur hækkað áfram og það veldur meiri verðbólgu e...
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir
Háskóli Íslands hefur birt yfirlit yfir skólagjöld sem erlendir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða að greiða til að stunda nám ...
Notkun ólög­legra peptíða „rúss­nesk rúlletta“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Notkun ólög­legra peptíða „rúss­nesk rúlletta“ - Vísir
Arna útskýrir að peptíð séu stuttar amínósýrukeðjur sem virka svona eins og boðefni í líkamanum sem geta svo haft alls konar áhrif og afleiðingar. „Vi...
Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 3
Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar - Vísir
Frumvarpið má finna í samráðsgátt stjórnvalda en ráðherra leggur til að áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknar...
Þórður Pálsson segir „firru“ hafa gripið um sig í utanríkisráðuneytinu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þórður Pálsson segir „firru“ hafa gripið um sig í utanríkisráðuneytinu
Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, gagnrýnir utanríkisráðuneytið harðlega í færslu á X. Hann segir „firru“ hafa gripið um sig í ráð...
Átti að fá 100 þúsund fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
📅 29.10.2026 👁️ 4
Átti að fá 100 þúsund fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir...
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
📅 29.10.2026 👁️ 4
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja þau 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitar...
Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá
📅 29.10.2026 👁️ 4
Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian segir að það sé erfitt og íþyngjandi að deila forræði með rapparanum Kanye West.Þau skildu árið 2021 og eiga sama...
Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna - Vísir
Fjallað verður um áhrif efnahagslegrar stöðu á líðan og þátttöku barna, hvaða hópar standa höllum fæti og hvernig megi bæta stuðning og jafna tækifæri...
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og hafði lögregla meðal annars að hafa afskipti af manni sem sýndi ógnandi h...
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt
📅 29.10.2026 👁️ 4
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt
Eigandi íbúðar í tvíbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur hefur lagt fram kæru vegna byggingar eiganda hinnar íbúðarinnar, í húsinu, á skúr á lóð hússins. H...
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
📅 29.10.2026 👁️ 4
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts Hagnaður Arion banka jókst um hálfan millj­arð króna á þriðja árs­fjórð­ungi miðað vi...
Tuk-tuk tours launch in Lanzarote
📅 29.10.2026 👁️ 4
Tuk-tuk tours launch in Lanzarote
Visitors to Lanzarote have a new way to discover Arrecife following the arrival of a fleet of electric tuk-tuks offering guided tours of the capital.T...
Pedestrian dies after being hit by a car in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 4
Pedestrian dies after being hit by a car in Tenerife
A 66-year-old man has died after being runover by a car on a road in Los Realejos, in the north of Tenerife yesterday evening, Wednesday 28th October,...
Fjölskyldudeilur vegna upp­boðs á gítar George Michael - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Fjölskyldudeilur vegna upp­boðs á gítar George Michael - Vísir
Gítarinn sem Michael lék á í tónlistarmyndbandinu við lagið Faith er meðal muna sem uppboðshúsið Sworders býður upp úr safni Siobhan Bailey, sem var l...
Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
📅 29.10.2026 👁️ 4
Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
Síldarvertíðinni fer að ljúka hjá flestum uppsjávarútgerðum landsins. Kvótinn í norsk-íslenskri síld er að klárast og þá hafa sumar útgerðir jafnvel k...
Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir
Stjórnmálaflokkurinn Píratar var stofnaður laugardaginn 24. nóvember 2012 en forgöngumenn fyrir stofnun hans voru þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir og ...