Atli Bollason lætur nýjan meirihluta Reykjavíkurborgar fá það óþvegið í harðorðum pistli þar sem hann líkir vinnubrögðum borgarstjórnar við aðgerðir auðkýfingsins Elons Musk og Javier Milei, forseta Argentínu.Atli, sem er listamaður og Reykvíkingur, segir meirihlutann sveifla keðjusöginni í borgarkerfinu án þess að hafa sérstakar áhyggjur af því hvað verði fyrir henni. Hann sakar meirihlutann um að heyja menningarstríð undir yfirskini hagræðingar og segir venjulega Reykvíkinga og starfsfólk borgarinnar verða fórnarlömb þess.
Atli segir borgarstjórn sveifla keðjusöginni – „Járnfrúin í Ráðhúsinu þekkir sitt fólk“