Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
Hagnaður Arion banka jókst um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra og nam 8,7 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár var 16,3 prósent. Bankastjórinn gagnrýnir fyrirhugaða hækkun bankaskatts sem gæti kostað bankann 1,7 milljarða króna á þessu ári.
Arion banki hagnaðist um 8,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins, samanborið við 8,2 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um rúmlega sex prósent milli ára, samkvæmt uppgjöri bankans sem birt var í gær.
Arðsemi eigin fjár var 16,3 prósent á fjórðungnum, samanborið við 16 prósent á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nam alls 24,1 milljarði króna, sem er lítillega minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 24,4 milljörðum.
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, segir í afkomutilkynningu bankans afkomuna góða og í samræmi við markmið. Hann bendir á að innlán hafi haldið áfram að aukast en hægt hafi á útlánavexti vegna viðvarandi hás vaxtastigs.
Innlán viðskiptavina jukust um 33 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi, eða 3,3 prósent, á meðan útlán til viðskiptavina drógust saman um þrjá milljarða króna.
Hreinn vaxtamunur bankans, sem …