Að sögn spænska innanríkisráðuneytisins hefur hundruðum manna verið stefnt á vettvang til að aðstoða við björgunar- og hreinsunarstarf. Notaðir eru drónar og þyrlur til að finna hugsanleg fórnarlömb og fjarlægja brak, eftir því sem fram kemur á vef breska ríkismiðilsins BBC.
Yfirvöld rannsaka nú tildrög slyssins, sem varð í gærmorgun þegar lest á leið frá Madríd til Sevilla skall á annarri lest sem var kyrrstæð. Rúmlega 500 manns voru um borð í lestunum tveimur, 147 í þeirri kyrrstæðu sem hafði stöðvast á teinunum vegna tölvubilunar, að sögn Óscars Puente, samgönguráðherra Spánar.
Samgönguráðherra Spánar hefur greint frá því að tvennt hafi leitt til slyssins, fyrst kerfisvilla og því næst ákvörðun um að önnur lestin mætti keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu.
Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, sagði þjóðina alla syrgja hina látnu og kvað sársauka aðstandenda mikinn.