Flokkar ísraelskra araba bæta við sig þingsætum nú þegar 92% atkvæða hafa verið talin. Flokkarnir eru tveir, Sameiginlegi listinn sem er nú með tólf sæti og Ra'am sem er með sjö. Samanlagt eru þeir með 19 sæti.
Það er næstum því tvöföldun á fylgi en á síðasta ári voru flokkarnir með tíu sæti samtals. Kjörsókn meðal araba sem búa í Ísrael jókst um 50% frá síðustu kosningum.
Likud, flokkur Benjamíns Netanjahú forsætisráðherra, er enn þá stærstur. Um tíma mældist hann með 27 þingsæti en hefur misst eitt og er nú með 26. Næststærsti flokkurinn, Yashar-flokkur Gadi Eisenkots, mældist áður með 22 sæti en mælist nú með 21.
Hafna samstarfi við arabaflokka
Netanjahú og Eisenkot leiða blokkirnar tvær sem flokkar í framboði mynduðu fyrir þessar kosningar en ljóst er að hvorug þeirra nær hreinum meirihluta.
Til þess þarf 61 þingmann en bæði Netanjahú og Eisenkot hafa útilokað samstarf með arabaflokkunum og hugsanlega mun því þurfa að boða aftur til kosninga.