Þátttakendur í pallborðsumræðunum voru ekki læknar heldur offitu-aktívistar á borð við Da’Shaun L Harrison, sem heldur því fram að megrunarsprautur séu „þjóðarmorð“ á fólki í yfirvigt.
Margir hafa lýst áhyggjum yfir því að hugmyndafræðileg barátta grafi nú undan akademískum vinnubrögðum við rótgróna háskóla á borð við Harvard.
Jonathan Turley, prófessor við lagadeild George Washington-háskóla, sagði viðburðinn „enn eitt dæmið í þeirri þróun að læknadeildir skipti út vísindum fyrir dyggðaskreytingu.“
Það eru þó fleiri en aðgerðasinnar sem telja hugmyndafræði trompa staðreyndir.
Mynd af einhverju allt öðru
Í síðustu viku birti Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, ljósmynd á Facebook sem hann gaf til kynna að væri af yfirstandandi óeirðum í Frakklandi. Myndin, sem þótti sýna hóp ógnandi múslímskra karlmanna, var hins vegar hvorki af óeirðum né frá Frakklandi heldur var um að ræða margra ára gamla mynd frá Svíþjóð.
Þótt Elliða væri bent á að myndin væri af einhverju allt öðru en hann héldi fram, sat hann fastur við sinn keip. Hann kallaði óeirðirnar „meint“ stúdentamótmæli og sagði að flestum væri ljóst að ofbeldisalda sem riði yfir í Frakklandi væri „keyrð áfram af einmitt þessum öfgakenndu trúarkredduöflum“.
Láta staðreyndir ekki þvælast fyrir
Sýnt hefur verið fram á að offita stytti meðalævilengd og valdi sjúkdómum á borð við sykursýki, hjartasjúkdóma og jafnvel krabbamein.
Aðgerðasinnar láta þó ekki staðreyndir þvælast fyrir málflutningi sínum.
Sama gildir um Elliða Vignisson.
Óeirðirnar í Frakklandi hófust meðal skólafólks sem mótmælti slæmum aðbúnaði og fjárskorti í menntakerfinu. Verkalýðsfélög slógust í för með námsmönnum og mótmæltu dýrtíð og niðurskurði stjórnvalda. Vandræðagemlingar og ofbeldisseggir sáu sér leik á borði.
Ekki eru öll kurl komin til grafar. Sem stendur styðja þó engin traust gögn fullyrðingar um að innflytjendur standi sérstaklega að óeirðunum í Frakklandi.
Auðvitað er eðlilegt að við ræðum innflytjendamál
Í aðsendri grein á Vísi ýjar Elliði Vignisson að því að fólk veigri sér við að taka þátt í umræðum um innflytjendamál af ótta við að vera útmálað sem rasistar. Hann segir þó brýnt að við ræðum málaflokkinn.
Elliði hefur á réttu að standa; auðvitað er eðlilegt að við ræðum innflytjendamál eins og önnur samfélagsmál á borð við félagsmál, menntamál, heilbrigðismál og öldrunarmál.
Alveg óvíst er þó að ótti fólks sé helsta ástæða þess að það veigri sér við að taka þátt í umræðunni heldur leiki þar framganga baráttumanna eins og Elliða stórt hlutverk.
Því ekki frekar en hægt er að eiga vitrænt samtal um heilbrigðismál við manneskju sem heldur því fram að þyngdarstjórnunarlyf séu þjóðarmorð, er hægt að eiga vitrænt samtal við mann um innflytjendamál, sem heldur því fram að það skipti ekki máli hvort ljósmynd hafi verið tekin í Frakklandi í síðustu viku eða í Svíþjóð fyrir mörgum árum.
Tvær hliðar á sama peningi
Elliði Vignisson telur sig sennilega eiga fátt sameiginlegt með offitu-aðgerðasinnum í Harvard.
Elliði og aðgerðasinnarnir eru tvær hliðar á sama peningi.
Þegar bullandi öfgamenn – hvort sem þeir eru til hægri eða vinstri – hrifsa til sín umræðuna, á venjulegt fólk ekki annað athvarf en sinnuleysi.