Í hverfi 101 var tilkynnt um innbrot og í Kópavogi um hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð við grunnskóla í bæjarfélaginu.
Í tilkynningu segir að nokkur erill hafi verið það sem af er nætur og að þrír hafi gist í fangageymslum um klukkan fimm í morgun.
Í dagbók segir einnig að lögreglu hafi verið tilkynnt um „óvelkominn aðila“ í húsi í hverfi 105 sem hafi verið með ógnandi hegðun. Hann var handtekinn og fluttur á stöð til samtals.
Þá var í hverfi 108 tilkynnt um „afbrigðilega hegðun einstaklinga“ í bíl við verslun og var það afgreitt samkvæmt verklagi.
Auk ofangreindra mála sinntu lögreglumenn hinum ýmsu umferðarmálum.