Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara sem kalla sig Distributed Denial of Secrets, eða Dreifing á afneitun leyndarmála.
Nafn þeirra er vísun í tegund tölvuárása sem nefnist distributed denial of service, en það er dreifð álagsárás þar sem margar tölvur senda gögn á sama tíma á einn vefþjón til að sliga hann og gera hann óvirkan.
Vilja auðvelda eftirlit með störfum stjórnvalda
Gögnin sem samtökin gerðu opinber innihalda nöfn, símanúmer, netföng og starfsheiti starfsmanna stofnana á borð við innflytjenda- og tollaeftirlitið (ICE) toll- og landamæraeftirlitið (CBP) og stofnun sem fer með netöryggi og öryggi innviða (CISA).
Þá kemur fram hvaða starfsmenn sinna sértækum aðgerðum, eftirliti, stafrænni rannsóknarvinnu og leynilegum verkefnum. Upplýsingarnar eru sagðar koma frá aðgerðahópi hakkara sem kallar sig Friðarráðuneytið (e. Department of Peace).
Samtökin sem birtu gögnin segja tilganginn vera að auðvelda blaðamönnum og almenningi að hafa eftirlit með störfum stjórnvalda.
Þriðji stóri gagnalekinn
Þetta er þriðji stóri gagnalekinn á upplýsingum um starfsmenn bandarískra stjórnvalda sem litið hefur dagsins ljós á síðasta mánuði.
Í september hélt hakkarahópurinn ShinyHunters því fram að meðlimir hans hefðu stolið töluverðu magni upplýsinga frá bandarísku alríkislögreglunni FBI. Þá var nýlega höfðað mál gegn bandaríska varnarmálaráðuneytinu í kjölfar gagnaleka sem bitnaði á milljónum núverandi og fyrrverandi hermanna.
Heimavarnarráðuneytið hefur ekki tjáð sig um gagnalekann.