Þriggja daga þjóðarsorg er hafin á Spáni í kjölfar alvarlegs lestarslyss sem varð í gær þegar hraðlest ók inn í kyrrstæða lest á miklum hraða.
Lögregla og rannsóknarnefnd lestarslysa yfirheyrðu starfsmenn Atocha-stjórnstöðvarinnar í gær en hljóðupptökur af samskiptum milli stöðvarinnar og lestarstjóra beggja lesta hafa verið birtar í spænskum fjölmiðlum.
Þar heyrist lestarstjóri hraðlestarinnar, sem er rekin af ríkisfyrirtækinu Renfe, fá fyrirmæli um að aftengja sig frá svonefndu LZB-kerfi og „halda ferðinni áfram með BSL-kerfinu, á eðlilegum hraða.“
„Á eðlilegum hraða?“ spyr lestarstjórinn. „Já,“ staðfestir stjórnstöðin. Á sama tíma segir annar starfsmaður stjórnstöðvarinnar lestarstjóra kyrrstæðu lestarinnar, sem rekin er af einkafyrirtækinu Iryo, að leggja af stað „þegar hún getur“ og hafa samband ef einhver vandamál koma upp.
Nokkrum mínútum síðar skall hraðlestin á kyrrstæðu lestinni svo margir vagnar beggja fóru af sporinu.
Aðstandendur safnast saman og bíða fregna
Að minnsta kosti 68 eru látnir eftir slysið og 77 eru særðir, þar af 15 alvarlega, en spænskir fjölmiðlar hafa vakið athygli á því að meðal þeirra sem er saknað er fyrrverandi atvinnu- og félagsmálaráðherrann Fatima Báñez.
Óttast er að hún sé meðal látinna en hún var í aftasta vagni kyrrstæðu lestarinnar sem ekið var á. Báñez var ráðherra frá 2011 til 2018 en árið 2019 varð hún formaður samtaka spænskra atvinnurekenda.
Fleiri lestarfarþega er enn saknað en í skóla í nálægasta þorpinu, Urda, hefur Rauði krossinn komið upp aðstöðu þar sem áfallahjálp er veitt og aðstandendur safnast saman og bíða fregna um afdrif ástvina sinna.
Spænska þjóðvarðarliðið hefur komið upp tímabundnum skrifstofum í nálægum borgum og bæjum, Madríd, Toledo, Cordoba og Sevilla, þar sem ættingjar geta gefið DNA-sýni svo hægt sé að bera kennsl á þá sem enn er saknað. Þá hefur blóðgjafastöðvum verið komið á fót í Castilla-LaMancha og Madríd.
Óafsakanlegt af stjórnstöðinni
Óscar Puente samgönguráðherra Spánar útskýrði í gær að sjálfvirkt stjórnkerfi hefði lagst niður á 69 kílómetra kafla lestarteinanna, sem varð til þess að allar lestir á þeim kafla staðnæmdust.
Hann segir það óafsakanlegt að stjórnstöðin hafi ákveðið að opna aftur fyrir umferð á teinunum. „Stjórnstöðin hafði nægan tíma til að staðfesta villuna, en þau löguðu hana ekki,“ sagði Puente.
Mótmælendur hópuðust saman fyrir framan samgönguráðuneytið í gær vegna lestarslyssins og kröfðust afsagnar Puentes. Samkvæmt spænska fréttamiðlinum El País voru mótmælin skipulögð af fjarhægriflokkum- og fylkingum.
Einn þjóðernissinnaðra fjarhægriflokka, Vox, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáleysi.
Ákæra verður einnig gefin út á hendur starfsmönnum stjórnstöðvarinnar sem leyfðu lestum að halda áfram för eftir að tæknivandamál komu upp.
Annað mannskætt slys „óviðunandi“
Níu mánuðir eru liðnir frá öðru mannskæðu slysi á Spáni, en í því slysi fór lest út af teinum og lenti á annarri lest sem kom úr gagnstæðri átt. Töluverð umræða spannst þá um viðhald á lestarinnviðum en slysið var rakið til slita á lestarteinum.
Pedro Sánchez forsætisráðherra Spánar segir það óviðunandi að landið þurfi að horfa upp á tvö alvarleg lestarslys á sama ári og heitir því að velta hverjum steini til að fá skýringu á því hvað fór úrskeiðis.
Stutt er í þingkosningar á Spáni en þær verða haldnar 29. nóvember. Allir stjórnmálaflokkar hafa sagst munu gera hlé á kosningabaráttu sinni í ljósi atburðanna en ekki er ósennilegt að samgöngur verði nú fyrirferðameiri í málflutningi þeirra. Mikið kurr er meðal Spánverja um ástand lestarinnviða sem eru orðnir gamlir og úreltir.