Þar kom einnig fram að Sjúkratryggingar muni útvista verkefnum miðstöðvarinnar til annarra verkstæða. Í tölvupósti sem RÚV vísar til frá Sigurði Helgasyni forstjóra SÍ segir að hann hafi rætt við verkstæðin um að bjóða starfsfólkinu sem hann sagði upp sambærileg störf.
Gert sé ráð fyrir að flestir muni starfa áfram hjá stofnuninni meðan á yfirfærslu verkefnanna stendur.