Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að í dag verði alldjúp lægð við suðausturströnd Grænlands sem haldi að okkur mildum suðlægum áttum. Fremur vætusamt verður um landið vestanvert og á köflum sunnantil einnig, á meðan norðaustur- og austurland sleppa að lang mestu leiti við vætuna. Fremur milt í veðri.
Dagana á eftir verður svipað veður, úrkomubakkar koma uppað vesturströnd landsins og verður úrkomusamast á þeim slóðum, einhverrar vætu er að vænta sunnantil einnig, á meðan Norður- og Austurland sleppa að lang mestu leiti við úrkomu. Hins vegar ef lægir og léttir til eftir að sól er sest er ansi fljótt að stirðna við jörð og getur því myndast lúmsk hálka sums staðar.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á föstudag:
Suðlæg átt 8-15 m/s, en en lengst af hægari sunnan- og austanlands. Skúrir eða slydduél sunnan- og vestantil, en úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 8 stig.
Á laugardag:
Suðvestan 5-13 m/s, en hvassari á stöku stað. Skúrir eða slydduél, en bjart norðaustan- og austanlands. Heldur svalara.
Á sunnudag:
Suðvestlæg átt, 3-10 m/s, með vætu, en úrkomulítið austantil. Heldur hlýnandi.
Á mánudag:
Suðlæg átt með smá vætu vestantil og bætir í úrkomu þar með kvöldinu, annars þurrt og bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 5 til 11 stig.
Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir suðlæg átt með vætu á köflum um landið vestnvert, en annars yfirleitt þurrt. Milt í veðri.