Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir

Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir

Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? - Vísir

Stjórnmálaflokkurinn Píratar var stofnaður laugardaginn 24. nóvember 2012 en forgöngumenn fyrir stofnun hans voru þingmaðurinn Birgitta Jónsdóttir og forritarinn Smári McCarthy.

Á stofnfundinum voru drög að lögum flokksins samþykkt og nafnið Píratar valið (út frá alþjóðlegu fyrirmyndinni Pirate Party). Flokkurinn lagði frá byrjun mikla áherslu á gagnsæi, beint lýðræði og baráttu gegn spillingu og notaðist við flatan valdastrúktúr.

Flokkurinn bauð í fyrsta skipti fram til Alþingis árið 2013 undir listabókstafnum Þ (sem var síðan breytt í P árið 2016) og fékk 5,1 prósent atkvæða og þrjá þingmenn kjörna: Birgittu Jónsdóttur, Helga Hrafn Gunnarsson og Jón Þór Ólafsson. Flokkurinn var þá í stjórnarandstöðu með Bjartri framtíð, Vinstri grænum og Samfylkingu gegn ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Smæð þriggja manna þingflokksins kom ekki að sök og vöktu þingmennirnir þrír athygli fyrir skörulega frammistöðu sína á þinginu. Vorið 2015 var flokkurinn orðinn stærstur í könnunum með um og yfir þrjátíu prósent. Tæpur þriðjungur hljómar ótrúlega í dag en flokkurinn átti eftir að stækka enn meira í könnunum.

Panamaskjölin voru gerð opinber í byrjun apríl 2016 í einum stærsta gagnaleka sögunnar. Þann 3. apríl birtist frægt viðtal við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra og formann Framsóknarflokksins, þar sem hann gekk út eftir að hafa verið spurður út í aflandsfélagið Wintris. 

Viðtalið hrinti af stað atburðarás sem endaði með afsögn Sigmundar Davíðs sem forsætisráðherra tveimur dögum síðar. Ríkisstjórnin ætlaði að reyna að halda út kjörtímabilið en alþingiskosningum var á endanum flýtt til 29. október 2016.

Sjá einnig: Píratar mælast með 43 prósent

Píratar mældust mest með 43 prósenta fylgi í skoðanakönnun Fréttablaðsins, Stöðvar 2 og Vísis sem var tekin dagana 4. og 5. apríl og birtist þann 6. apríl. Flokkurinn mældist ekki með eins mikið fylgi annars staðar en var þó í kringum 21 til 27 prósent hjá Þjóðarpúlsi Gallúp frá apríl það árið og alveg fram að kosningum. 

Uppskera kosninganna var töluvert rýrari en kannanir spáðu fyrir um því Píratar fengu 14,5 prósent og tíu þingmenn (sem var þó þreföldun á þingmannafjölda). Flokkurinn endaði samt í minnihluta og var mynduð ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar (sem entist þó í aðeins 247 daga). 

Pírötum gekk ekki eins vel í kosningunum 2017 en fengu þó 9,2 prósent fylgi og sex þingmenn kjörna. Fjórum árum síðar voru úrslitin keimlík en þá fékk flokkurinn 8,63 prósent og sex þingmenn. Fylgi flokksins hrundi svo í kosningunum 2024 þegar hann fékk þrjú prósent atkvæða og engan mann kjörin. Síðan þá hefur fylgi Pírata verið um og yfir þremur prósentum, daðrað við Pilsnerfylgi á síðustu mánuðum og útlitið ekki bjart.

Í dag eru tíu ár í dag liðin frá stærsta kosningasigri Pírata. Því hefur Vísir tekið saman þá þingmenn Pírata sem öfluðu flokknum 43 prósenta fylgis í könnunum auk þeirra sem náðu kjöri í kosningunum, rakið þingferla þeirra stuttlega og hvað hefur drifið á daga þeirra síðan.

Ásta Guðrún Helgadóttir

Ásta Guðrún fór inn á þing haustið 2015 fyrir Jón Þór Ólafsson sem hafði ákveðið að sitja aðeins í tvö ár á þingi. Ásta leiddi Pírata síðan í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir kosningarnar 2016 og varð þriðji þingmaður kjördæmisins.

Hún tók við sem þingflokksformaður Pírata af Birgittu Jónsdóttur í janúar 2017 en steig til hliðar rúmum þremur mánuðum síðar vegna ágreinings við meirihluta þingflokksins.

„Í ljósi ágreinings milli mín og meirihluta þingflokks Pírata varðandi innra skipulag þingflokksins hef ég ákveðið að stíga til hliðar sem þingflokksformaður Pírata,“ sagði Ásta Guðrún um ákvörðunina.

Fréttahaukurinn Eiríkur Jónsson fullyrti á vef sínum í júní það ár að Ásta Guðrún væri á leið í Samfylkinguna en hún neitaði því. „Þó svo að ég sé í sambúð með manni sem hefur verið formaður Ungra jafnaðarmanna þá held ég að ég haldi mig innan Pírata, í bili allavega. Þetta er algjört bull og það er engin hætta á að ég sé að fara úr Pírötum,“ sagði Ásta um fréttirnar.

Eiríkur fullyrti að Ásta Guðrún hefði ekki lengur verið velkomin á þingflokksfundi Pírata eftir að hún var sett af sem þingflokksformaður og þannig verið stillt upp við vegg en Ásta neitaði þessu staðfastlega.

Sjá einnig: „Þetta er bull“

Fyrir alþingiskosningarnar haustið 2017 (sem voru 364 dögum eftir kosningarnar 2016) hlaut Ásta Guðrún þriðja sæti í prófkjöri flokksins í Suðvesturkjördæmi en hætti við eftir að hafa rætt við sína nánustu.

„Þetta hefur verið gaman og gefandi starf að fá að sitja á þingi fyrir Pírata – og umfram allt er ég þakklát fyrir þann heiður að hafa fengið að sitja á Alþingi – löggjafarþingi Íslands,“ segir Ásta. Hugur hafi ekki fylgt hjarta þegar hún bauð sig fram í prófkjörinu og hún viljað snúa sér að einhverju öðru.

Sjá einnig: Ásta Guðrún hættir við að taka sæti á lista Pírata

Ásta Guðrún fór vissulega ekki yfir í Samfylkinguna árið 2017 en þremur árum síðar, í desember 2020, birtist hún á lista yfir frambjóðendur sem hægt var að velja úr í flokksvali Samfylkingarinnar, hinni svokölluðu sænsku leið. Fyrir alþingiskosningarnar í september 2021 var Ásta Guðrún í sjöunda sæti á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.

Ásta Guðrún bauð sig svo fram til formennsku í Fulltrúaráði Samfylkingarinnar í Reykjavík gegn sitjandi formanni, Herði Oddfríðarsyni, í nóvember 2021. Ásta tapaði með aðeins einu atkvæði gegn Herði og tók sæti í stjórn. 

Innan við ári síðar varð Ásta formaður fulltrúaráðsins þegar Hörður hætti formennsku eftir ásakanir þingmanns Vinstri grænna á hendur honum. Síðar það ár tók Björk Vilhelmsdóttir við formennsku á aðalfundi fulltrúaráðsins.

Sjá einnig: Ásta tekur við í stað Harðar

Ásta Guðrún var síðan ráðin starfsmaður þingflokks Samfylkingarinnar í byrjun árs 2025 og hefur gegnt því starfi síðan.

Birgitta Jónsdóttir

Birgitta var reynsluboltinn í hópi nýstofnaðs stjórnmálaflokks Pírata og óformlegur leiðtogi hans í upphafi. Birgitta var oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi í kosningunum 2013, náði kjöri og var þá búin að sitja eitt kjörtímabil á Alþingi fyrir Borgarahreyfinguna sem umbreyttist í Hreyfinguna á miðju kjörtímabili eftir deilur milli þingflokks og stjórnar. 

Birgitta hafði verið þingflokksformaður Pírata fyrsta kjörtímabil flokksins og var það áfram eftir kosningarnar 2016. Ásta Guðrún tók hins vegar við embættinu í ársbyrjun 2017 en entist stutt í því. Einar Aðalsteinn Brynjólfsson tók við af henni og gegndi embættinu frá maí til september þegar Birgitta varð aftur þingflokksformaður.

„Stjórnarkjörið er hluti af endurskipulagningu innan þingflokksins sem hefur staðið yfir í sumar en verkaskipting og valddreifing er nú jafnari en áður meðal stjórnarliða þingflokks,“ sagði í tilkynningu flokksins um ákvörðunina.

Þessi þingflokksformennska Birgittu entist þó stutt því þremur dögum síðar, 15. september 2017, sprakk ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar í kjölfar hneykslismáls vegna uppreistar æru kynferðisafbrotamanna. Degi síðar tilkynnti Birgitta að hún myndi ekki gefa kost á sér í næstu kosningum.

„Ég hef lofað sjálfri mér því að hætta eftir þetta kjörtímabil, óháð lengd þess. Það er ekkert sem getur fengið mig til að skipta um skoðun. Ég er snortin af þeirri bylgju hvatningar að fara fram aftur sem ég hef fundið fyrir þvert á flokka sem og í grasrót minni. Ástæða þess að ég hef ekki viljað koma með þessa yfirlýsingu strax er einfaldlega vegna þess að þessu kjörtímabili er ekki lokið, þrátt fyrir að núverandi stjórn sé fallin,” sagði í tilkynningu hennar.

Vorið 2018 tilkynnti Birgitta svo að hún hefði sagt skilið við Pírata með Facebook-færslu sem hljóðaði svo: „Ég er hætt í hljómsveitinni (Píratar) sem ég stofnaði. Það er léttir.“ Í samtali við Jakob Bjarnar á Vísi sagðist hún hafa tilkynnt ákvörðunina á Twitter mörgum mánuðum fyrr og væri búin að segja sig úr nánast öllum Píratahópum á netinu.

„Ég náttúrlega hef tekið þátt í að búa til tvo stjórnmálaflokka eftir hrun. En, mig dreymdi aldrei um að vera stjórnmálamaður eða valdamanneskja. Ég ber enga virðingu fyrir valdi,“ sagði hún í viðtalinu.

Hún hefði reynt að koma á alvöru breytingum eftir efnahagshrunið en ekkert hefði breyst, Pírötum hefði brugðist bogalistin og þeir orðið samdauna kerfinu. Sjálf sagðist hún ætla að vinna að verkefnum sem tengdust beinu lýðræði eftir að hafa sagt skilið við stjórnmálin.

Fyrstu þingmenn Pírata: Jón Þór, Helgi Hrafn og Birgitta.Vísir/vilhelm

Birgitta var þó ekki alveg búin að segja skilið við Pírata því hún var tilnefnd í trúnaðarráð flokksins á félagsfundi 15. júlí 2019 ásamt tveimur öðrum, Agnesi Ernu Esterardóttur og Hrannari Jónssyni. 

Um var að ræða hitafund þar sem þingmennirnir Helgi Hrafn Gunnarsson og Halldóra Mogensen beittu sér gegn skipan Birgittu og tjáðu sig um slæma framgöngu hennar. Fór svo að Birgittu var hafnað með 55 atkvæðum gegn þrettán.

Sjá einnig: Þingmenn Pírata beittu sér gegn Birgittu

Daginn eftir fundinn birtist upptaka af honum á netinu þar sem mátti heyra og sjá það sem fram fór á fundinum. Helgi Hrafn sagði „fráleita pælingu“ að Birgitta hefði sóst eftir stöðunni í ljósi þess sem á undan hefur gengið, afsögn hennar úr Pírötum og gagnrýni á flokkinn.

„Hún grefur undan samherjum sínum ef hún sér af þeim ógn. Hún hótar samherjum sínum þegar hún fær ekki það sem hún vill og gerir lítið úr vinnu þeirra sérstaklega þegar þeim gengur vel. Þetta er mín áralanga reynsla af því að vinna með Birgittu Jónsdóttur,“ sagði Helgi Hrafn á fundinum.

Birgitta svaraði ræðu Helga Hrafns á fundinum og þakkaði þeim sem „þorðu“ að tilnefna sig í trúnaðarráð flokksins. Hún sagðist taka því ef það væri yfirgnæfandi meirihluti mótfallinn henni en þætti miður að heyra þau ummæli sem voru látin falla.

„Mér finnst alveg ótrúlegt að heyra það sem fólk hefur sagt hér sem er í valdamiklum stöðum innan flokksins. Mér finnst það ótrúlegt og ég get alveg tekið margt til mín og ég hef oft gert það en upplifi bara svona ákveðið mannorðsmorð hér í kvöld og það er ekki fallegt,“ sagði Birgitta.

Halldóra Mogensen beitti sér gegn ráðningu Birgittu.Vísir/Vilhelm

Halldóra Mogensen tjáði sig jafnframt um ákvörðun sína, Birgitta hefði gert margt fyrir flokkinn en þessi vettvangur hentaði henni ekki.

„Þeir aðilar sem fara í trúnaðarráð þurfa að njóta trausts. Birgitta er umdeild innan flokksins enda er hún búin að fara, og hún er alveg búin að tæta þingflokkinn og Pírata í borginni í sig í fjölmiðlum,“ sagði Halldóra.

Fundurinn hrinti af stað mikilli umfjöllun um flokkinn og stigu fleiri fram til að lýsa samskiptum sínum við Birgittu og neikvæðri framgöngu hennar. Sara Elísa Þórðardóttir, varaþingkona Pírata, sagði í viðtali við Stundina að Birgitta væri gerandi en ekki þolandi og hefði beitt samstarfsfólk andlegu ofbeldi.

Ásta Guðrún deildi viðtalinu við Söru á Facebook, sagðist hafa fengið kökk í hálsinn við að lesa það og að frásögnin hefði rímað vel við upplifun hennar af samstarfinu við Birgittu.

„Deila og drottna, skapa sundrungu. Að ráða ríkjum í óreiðunni. Flatur strúktur á ekki að þýða neinn strúktur - en fyrir hana þá þýddi flatur strúktur óreiða, að það væri hægt að færa mörkin endalaust til, að setja óraunverulegar kröfur á aðra. Aðrar reglur gilda um hana en aðra. Þessi óreiða bjó til einræðisherra þar sem hinn frekasti fékk að ráða og þegar það var reynt að spyrna við því þá fór allt í uppnám,“ sagði Ásta um Birgittu.

Birgitta rataði næst í fjölmiðla árið 2020 þegar kom í ljós að höfuðkúpa sem fannst árið 1994 við Ölfusárós var af Jóni Ólafssyni, skipstjóra frá Þorlákshöfn og föður Birgittu, sem talið er að hafi fallið í Sogið á aðfangadag 1987. Lýsti hún því að það væri mikil friðþæging að líkamsleifarnar hefðu fundist.

Árið 2021 tilkynnti Birgitta síðan að hún væri gengin til liðs við Sósíalistaflokkinn. Það væri ekki til að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu heldur til að taka þátt í að móta framtíðina í fylkingu fólks sem væri ekki „fast í viðjum kjörtímabila“. 

Birgitta var í átjánda sæti á lista Sósíalistaflokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir kosningar til Alþingis 2021 en var ekki sjáanleg á listanum 2024.

Lítið hefur farið fyrir Birgittu á sviði stjórnmálanna síðan þá en samkvæmt LinkedIn hefur hún verið stjórnarformaður IMMI, alþjóðlegrar stofnunar um upplýsinga- og tjáningarfrelsi, síðan 2010.

Þá hefur Birgitta nokkrum sinnum verið til umfjöllunar í fjölmiðlum á síðustu árum. Birgitta greindi frá því í viðtali við Vísi árið 2023 að hún væri hætt að ferðast utanlands og að það væri framlag hennar til loftslagsmála. 

Sjá einnig: Birgitta ætlar aldrei aftur af landi brott

Í desember síðastliðnum var Birgitta í löngu viðtali á Heimildinni þar sem hún greindi frá því að hún væri með langvinnt Covid sem hefði gert að verkum að hún hefði dregið sig til hlés. 

„Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að fá þann heilsubrest sem ég hef verið að stríða við. Ég veit ekkert hvort ég muni einhvern tíma ná fullu vinnuþreki eða verða betri. Það er mjög erfitt að þurfa að sætta sig við það, en það er ein ástæðan fyrir því að ég er alltaf að pína mig til að gera aðeins meira en ég get,“ sagði hún um veikindin.

Björn Leví Gunnarsson

Björn Leví var í öðru sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum 2016, í öðru sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir kosningarnar 2017 og oddviti þess 2021. Hann náði kjöri í öll þrjú skiptin og sat í átta ár á Alþingi fyrir Pírata.

Á meðan Björn var á þingi sat hann í nefndum á borð við fjárlaganefnd, undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, kjörbréfanefnd og velferðarnefnd og var um tíma fimmti varaforseti Alþingis. Björn var í þrígang ræðukóngur Alþingis, 2017-18, 2021-22 og 2022-23. 

Þá vakti Björn jafnframt mikla athygli fyrir fyrirspurnargleði sína en hann bar fram mörg hundruð fyrirspurnir um hin ýmsu mál til ráðherra, forseta Alþingis og ríkisstofnana á meðan hann sat á þingi. 

Fyrirspurnirnar vöktu oft ergelsi hjá ríkisstjórnarliðum og árið 2020 lagði Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fram fyrirspurn til heilbrigðisráðherra um fjölda fyrirspurna Björns Levís og kostnaðinn við úrvinnslu þeirra.

Björn Leví var oddviti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar 2024. Flokkurinn hlaut 5,4 prósent atkvæða í kjördæminu en aðeins þrjú prósent á landsvísu og endaði með engan mann kjörinn. 

Eftir að Björn hætti á þingi hefur hann áfram verið virkur í samfélagsumræðunni, skrifar reglulega skoðanagreinar um hin ýmsu mál og er oft virkur í umræðum á samfélagsmiðlum. Samkvæmt Fésbókarsíðu Björns hefur hann starfað sem gagnaforritari hjá Háskóla Íslands síðan sumarið 2025.

Einar Aðalsteinn Brynjólfsson

Einar Aðalsteinn var oddviti Pírata í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2016 og náði kjöri sem sjöundi þingmaður kjördæmisins. Á þingi sat Einar í allsherjar- og menntamálanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd og Þingvallanefnd og tók við af Ástu Guðrúnu sem þingflokksformaður Pírata í maí 2017 en gegndi því hlutverki skammt.

Einar var aftur í oddvitasæti flokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2017 en náði ekki kjöri og sömu sögu er að segja um kosningarnar árið 2021. Hann ákvað í kjölfarið að láta staðar numið í pólitíkinni.

Áður en Einar dembdi sér út í stjórnmálin hafði hann starfað sem kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri og Menntaskólann á Akureyri. Eftir að hann hætti í pólitíkinni sneri hann aftur í MA og kennir þar sögu, lögfræði, fjármálalæsi og stjórnmálafræði.

Eva Pandóra Baldursdóttir

Eva Pandóra var oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum árið 2016, náði kjöri og átti sæti í atvinnuveganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd. Drjúgan hluta kjörtímabilsins var Eva þó í fæðingarorlofi eftir að hafa eignast barn rétt fyrir kosningarnar. Hún skipaði sama sæti á lista Pírata fyrir kosningarnar 2017 en náði ekki kjöri. 

Eva Pandóra fór úr Pírötum yfir í Viðreisn.Margrét Rúnarsdóttir

Tæpum tveimur mánuðum eftir að úrslitin voru ljós var Eva ráðin í starf sérfræðings á þróunarsviði Byggðastofnunar og sinnti því í þrjú ár. Hún hefur frá 2021 unnið sem deildarstjóri stjórnsýslu og miðlunar á þjónustu- og nýsköpunarsviði Reykjavíkurborgar. 

Haustið 2024 tilkynnti Eva Pandóra að hún væri gengin úr Pírötum og væri komin í Viðreisn. „Þessi ákvörðun var hvorki auðveld né léttvæg, en ég tel hana nauðsynlega til að halda áfram að berjast fyrir þeim málefnum sem ég brenn fyrir,“ skrifaði hún um ákvörðunina. 

Hún skipaði síðan sjötta sæti á lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi norður og hefur komið inn sem varamaður í sex daga á yfirstandandi þingi.

Fyrir utan pólitíkina og starfsferilinn þá fann Eva ástina í örmum Helga Hrafns, fyrrverandi þingmanns Pírata, árið 2023 og trúlofuðu þau sig haustið 2025 á siglingu um Miðjarðarhafið. 

Frá og með haustinu hefur Eva jafnframt haldið úti liðnum Kynlífið með Evu Pandoru á Vísi þar sem hún svarar lesendum um allt sem tengist kynlífi og samböndum. 

Gunnar Hrafn Jónsson

Eftir að hafa unnið sem blaðamaður á ýmsum fjölmiðlum, lengst af á fréttastofu Rúv, fór Gunnar Hrafn í framboð fyrir Pírata í alþingiskosningunum 2016. Hann skipaði annað sæti í Reykjavíkurkjördæmi suður og var kjörinn sjöundi þingmaður kjördæmisins.

Tveimur mánuðum eftir kosningar greindi Gunnar Hrafn frá því að hann hefði tekið sér veikindaleyfi frá þinginu vegna glímu við þunglyndi. Hann kom síðan fram í einlægu viðtali á Stöð 2 þar sem hann sagði sjúkdóminn vera of tabú og að hann vildi hvetja til vitundarvakningar.

Gunnar bauð sig fram í prófkjöri Pírata fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin fyrir alþingiskosningarnar 2017 og hafnaði þar í fimmta sæti. Hins vegar tók hann ekki sæti á lista flokksins í sjálfum kosningunum. 

Tveimur mánuðum eftir kosningarnar greindi hann frá því að hann ætlaði í tíu daga áfengismeðferð. Sagðist hann hafa fallið eftir kosningarnar vegna fjölda pólitískra og persónulegra atburða, svika auk sjálfshaturs.

Sjá einnig: „Ég vissi að ég væri að leika mér að eldinum“

Eftir það heyrðist lítið af Gunnari þar til hann greindi frá því í Facebook-færslu árið 2022 að Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, hefði bannað honum að bjóða sig fram í prófkjöri Pírata fyrir þingkosningarnar 2017. Helgi hafi sagt við Gunnar á fundi fyrir utan sjoppu í Vesturbænum að ef hann byði sig fram þá yrði hann tekinn af lífi í fjölmiðlum fyrir lélega mætingu á þinginu.

Gunnar sagði Helga Hrafn hafa tjáð honum að dræm mætingin yrði rakin af blaðamanni ef hann hætti ekki við framboðið. Að sögn Gunnars hefði komið í ljós að blaðamaðurinn væri í raun Björn Leví, mótframbjóðandi hans í prófkjörinu, sem hefði tekið saman gögnin á bloggsíðu sinni. Gunnari var misboðið yfir framkomunni og sagði gróflega vegið að fólki sem glímdi við andleg veikindi.

Björn Leví svaraði ásökunum Gunnars.Stöð 2/Ívar Fannar

Björn Leví tjáði sig um færsluna og sagði mætingu þingmanna vera aðgengilega í öllum nefndum. Hann hefði oft þurft að mæta í nefndir fyrir Gunnar því hann hefði aldrei látið þingflokkinn vita hvenær hann ætlaði að mæta og hvenær ekki.

Helgi Hrafn sagði samtal þeirra Gunnars ekki hafa átt sér stað fyrir prófkjörið heldur eftir það og hann sæi ekki eftir neinu.

„Ég skammast mín ekki fyrir neitt, sem ég sagði eða gerði í þessu máli og myndi gera það sama aftur. Ef ég væri í hans stöðu, þeirri stöðu sem hann var í á þeim tíma, þá vona ég að einhver góður vinur minn myndi gera það sem ég gerði,“ sagði Helgi við Vísi um málið.

Halldóra Mogensen

Halldóra Mogensen tók nokkrum sinnum sæti á Alþingi fyrir Pírata sem varamaður kjörtímabilið 2013-16, var í þriðja sæti á lista Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður í kosningunum 2016 og náði kjöri sem ellefti og síðasti þingmaður kjördæmisins.

Halldóra var í öðru sæti á lista flokksins í kjördæminu í kosningunum 2017 og náði aftur kjöri sem síðasti þingmaður kjördæmisins. Fyrir kosningarnar 2021 var hún orðin oddviti Pírata í kjördæminu og komst þá örugglega inn. 

Á þinginu sat Halldóra í velferðarnefnd, framtíðarnefnd, allsherjar- og menntamálanefnd og atvinnuveganefnd og var þingflokksformaður Pírata 2019–2020 og 2021–2023.

Halldóra missti oddvitasætið fyrir kosningarnar 2024 til Lenýu Rúnar Taha Karim en þá náði flokkurinn ekki inn neinum manni. Þegar úrslitin lágu fyrir sagði Halldóra það hafa verið mikinn heiður að fá að að berjast fyrir hennar hjartans málum á þinginu.

„Borgaralaun, skaðaminnkun, geðheilbrigðismál og afglæpavæðing, nýja stjórnarskráin, velsældarhagkerfið, náttúruvernd, menntamálin, gervigreindin og framtíðarsamfélagið. Ég vona að þessi mikilvægu mál lifi áfram og að framsýnin týnist ekki í áherslum þeirra flokka sem taka nú við völdum,“ sagði hún.

Eftir að Halldóra datt af þingi hefur hún beitt sér sem sérfræðingur í gervigreind og var í sumar skipuð í vísindanefnd á vegum Evrópusambandsins sem á að kortleggja málaflokk gervigreindar og veita ráðgjöf um innleiðingu reglna er hana varðar. Halldóra var síðan kjörin formaður Mannvænnar, samtaka um mannvæna tækni.

Helgi Hrafn Gunnarsson

Helgi Hrafn var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður fyrir kosningarnar 2013 og var einn þriggja þingmanna Pírata sem náðu kjöri. Þar sat hann í kjörbréfanefnd og allsherjar- og menntamálanefnd og var formaður þingflokksins um tíma.

Á meðan flokkurinn var á siglingu eftir útgáfu Panamaskjalanna tilkynnti Helgi sumarið 2016 að hann myndi ekki bjóða sig fram til þings um haustið. Hann væri ekki hættur í pólitík heldur ætlaði að helga sig grasrótarstarfi innan Pírata næsta kjörtímabilið.

Þannig vildi hann sýna í verki þá hugsjón að byggja brú milli þings og þjóðar. Hann hefði þó fullan hug á að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Pírata árið 2020, eða fyrr ef stjórnarskrármálið krefðist þess.

„Ég er ekki að fara neitt, þvert á móti, ég er að koma til baka. Inn í Pírata og vil gera Pírata að því sem Píratar vilja verða. Sem er lýðræðisafl, ekki bara þingflokkur og ekki bara kjörnir fulltrúar.“

Kjörtímabilið entist í eitt ár og ákvað Helgi að bjóða sig aftur fram fyrir alþingiskosningarnar 2017 sem oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi norður. Hann væri í „fáránlegri forréttindastöðu“ hafandi bæði náð kjöri og ákveðið að vera fyrrverandi þingmaður að eigin frumkvæði. 

„Það var ein mikilvægasta ákvörðun sem ég hef tekið og ég sé ekki eftir henni í eina sekúndu; hún var rétt og gaf mér tækifæri til að sjá þetta allt saman í nýju og betra ljósi,“ sagði Helgi Hrafn um ákvörðunina á Pírataspjallinu.

Líkt og margir aðrir Píratar lagði Helgi Hrafn fram fjölda fyrirspurna, frumvarpa og þingsályktunartillagna meðan hann var á þingi og var jafnan meðal þeirra sem töluðu mest í ræðustól. Ekki heillaði það þó alla.

Björn Bjarnason er duglegur að tjá sig á bloggi sínu.

Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, skrifaði á bloggi sínu skömmu eftir kosningarnar 2017 að Píratar hefðu aldrei látið reyna á nein málefni, hvorki í kosningabaráttunni né í stjórnarmyndunarviðræðunum. Brynjar Níelsson, þáverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, deildi þeirri grein Björns og fékk Helga í grillið í kjölfarið.

Helgi sagði Brynjar ekki hafa lagt fram neitt þingmál á liðnu kjörtímabili og að hann væri að kasta grjóti úr glerhúsi þegar hann talaði um skoðana- og iðjuleysi annarra. 

Brynjar lét það ekki slá sig út af laginu og sagði Helga ekki vita hvað fælist í formennsku í þingnefndum.

„Helgi metur framlag þingmanna eftir því hvað lagðar eru margar vitlausar fyrirspurnir og þingsályktanir fyrir þingið. Hann hefur greinilega aldrei starfað í stjórnarmeirihluta og veit ekki hvað felst í formennsku í þingnefndum,“ skrifaði Brynjar og veitti Helga svo ráð: „Kynntu þér málin sem eru til meðferðar og taktu afstöðu til þeirra áður en þú kæfir okkur hin í endalausum fyrirspurnum um ekki neitt.“

Ári fyrir kosningarnar 2021, þann 26. september 2020, tilkynnti Helgi Hrafn að hann myndi ekki bjóða sig fram í kosningunum því honum hugnaðist ekki að sitja of lengi á þingi og hann vildi vinna að umbótamálum utan þess. Hann væri þó ekki að stíga út úr stjórnmálum.

„Ég verð áfram í flokknum og vonandi meira en áður. Það er ýmislegt í grasrótinni sem ég hef verið að sinna og langar að sinna meira, þá sér í lagi tæknimálum. Ég sé fyrir mér að gera meira af því,“ sagði Helgi Hrafn um ákvörðunina í löngu viðtali í helgarblaði DV.

Tæpum mánuði eftir að Helgi tilkynnti þetta, 20. október 2020, átti hann eitt sitt eftirminnilegasta augnablik á þingi þegar jarðskjálfti að stærð 5,6 reið yfir á Reykjanesskaga. Skjálftinn fannst alla leið til Alþingis þar sem Helgi var í pontu að ræða breytingar á stjórnarskrá og brást skjótt við skjálftanum.

Eftir að Helgi sagði skilið við stjórnmálin hefur hann starfað sem forritari hjá eigin hugbúnaðarfyrirtæki, Leetspeak Systems. Þá fann hann, eins og áður sagði, ástina í örmum fyrrverandi þingmannsins Evu Pandóru. Hann hefur hins vegar ekki alveg sagt skilið við stjórnmálin og birtist óvænt í 37. sæti á lista Viðreisnar fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.

Jón Þór Ólafsson

Jón Þór var oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir alþingiskosningarnar 2013 og náði kjöri sem næstsíðasti þingmaður kjördæmisins. Hann sat í umhverfis- og samgöngunefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og þingskapanefnd þann þingveturinn.

Jón Þór vakti nokkrum sinnum athygli fyrir framkomu í ræðustól, meðal annars fyrir að nota kveikjara í pontu til að leggja áherslu á mannréttindabrot Kínverja í Tíbet, þegja í tvær mínútur vegna læknaþjónustu á Íslandi og rífa þrjá tíu þúsund króna seðla við upphaf umræðu um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um fall sparisjóðanna.

Eftir um árs setu á þingi tilkynnti Jón Þór að hann myndi segja af sér þingmennsku á miðju kjörtímabili til að styrkja kosningabaráttu Pírata fyrir næstu kosningar. Varaþingmaður hans, Ásta Guðrún, hefði þannig tvö ár til að sanna sig og ná tökum á starfinu.

Þegar Jón Þór hætti á þinginu 2015 sneri hann aftur í malbiksvinnu sem hann hafði unnið við í mörg ár yfir sumartímann áður en hann tók sæti á Alþingi.

„Ég sleppi ekki þessu djobbi. Hér er hægt að hugsa. Ég er í malbikunarstöðinni sjálfri og mitt starf er bara sjálfvirkt þannig að hausinn á mér er alveg út af fyrir mig,“ sagði Jón Þór við Vísi á sínum tíma. Veturinn eftir fjallaði Vísir um að Jón Þór væri byrjaður að vinna sem stöðumælavörður þar til hann kæmist í malbikið á ný.

Jón Þór ákvað að bjóða sig aftur fram fyrir kosningarnar 2016 og var þá oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi. Þann þingveturinn vakti hann aftur athygli fyrir framgöngu í ræðustól, þá fyrir að missa stjórn á skapi sínu í umræðu um skipan dómara við Landsrétt.

Jón Þór bauð sig aftur fram til Alþingis 2017, var áfram oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi og náði kjöri. Þann þingveturinn var hann í atvinnuveganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og var um tíma formaður hennar.

Í ársbyrjun 2021 tilkynnti Jón Þór að hann myndi ekki gefa kost á sér í næstu kosningum þar sem hann hefði náð markmiði sínu að tryggja sjálfbærni Pírata. Starfsfólkið væri fært, grasrótin öflug og þingflokkurinn aldrei verið samstilltari. Sagðist hann ætla að snúa aftur í malbikið eins og hann hefði gert á hverju sumri í 23 ár.

„Það er friður í malbikinu,“ sagði hann í viðtali við Rúv.

Frá því Jón Þór hætti í stjórnmálum hefur hann starfað sem þjálfari og núvitundarþjálfi hjá Reebok Fitness og fór jafnframt aftur í háskóla til að leggja nám á sálfræði.

Smári McCarthy

Smári var oddviti Pírata í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2016, náði kjöri og sat í efnahags- og viðskiptanefnd þann þingveturinn. Rétt fyrir kosningarnar birti Viðskiptablaðið frásögn sem byggði á myndum sem blaðinu höfðu borist af Smára að hleypa af hinum ýmsu byssum og sagði nafnlaus pistlahöfundurinn að Smári hefði töluverða reynslu af skotvopnum.

Smári vísaði því á bug að hann væri mikill áhugamaður um byssur en hefði setið byssunámskeið hjá liðþjálfa í bandaríska hernum þegar hann starfaði í Afganistan.

„Þetta var enginn byssutúrismi. Ég hef töluverða reynslu af skotvopnum, og verið á báðum endum þeirra í gegnum ýmsar uppákomur, flestar óskemmtilegar. Þekkjandi þær, vil ég alls ekki að þær séu almennt aðgengilegar í okkar samfélagi, og vil alls ekki að lögreglan gangi almennt með slíkt,“ skrifaði Smári um málið á Facebook-síðu sinni.

Sjá einnig: Smári segir ásakanir um ósannsögli byggðar á misskilningi

Einnig var Smári vændur um að hafa logið til um menntun sína í aðdraganda kosninganna þegar hann skráði stærðfræðinám sitt á LinkedIn en hafði ekki lokið því. Smári sagði málið á misskilningi byggt, hann hefði sett inn áætlaðan námstíma sinn þegar hann byrjaði í stærðfræðinni en ekki uppfært það eftir að hann hætti í náminu.

Smári hélt oddvitasætinu í Suðurkjördæmi fyrir kosningarnar 2017, náði kjöri og sat þann þingveturinn í efnahags- og viðskiptanefnd, atvinnuveganefnd, utanríkismálanefnd, Íslandsdeild þingmannanefnda EFTA og EES og þingmannanefnd Íslands og ESB. Haustið 2019 uppfyllti hann jafnframt æskudraum sinn þegar hann kláraði einkaflugmannspróf.

Fyrir þingkosningarnar 2021 tilkynnti Smári að hann myndi ekki bjóða sig aftur fram. Hann vildi bæði hvetja til nýliðunar og fannst sömuleiðis færni sín, þekking í tölvumálum og áhugi á umhverfismálum ekki nýtast nægilega vel á þingi.

„Ég hef bara verið rosalega þreyttur og pirraður á því hvað það er mikið talað um að reyna að bregðast við loftslagsbreytingum en ótrúlega lítið verið gert í því,“ sagði Smári í viðtali við DV á sínum tíma.

Eftir að Smári hætti á þingi vann hann stuttlega sem hugbúnaðarráðgjafi hjá tæknifyrirtækinu Winnow Tech. Jafnframt stofnaði hann árið 2021 nýsköpunarfyrirtækið Ecosophy sem sérhæfir sig í að gera loftslagsgögn aðgengileg og hugbúnaðarfyrirtækið Stratis sem framleiðir hugbúnað sem Úkraínuher hefur notaði í drónahernaði.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir

Þórhildur Sunna var í öðru sæti á lista Pírata í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningar 2016, oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður fyrir kosningarnar 2017 og oddviti flokksins í Suðvesturkjördæmi 2021 og náði kjöri í öll þrjú skiptin.

Á meðan hún var á þingi sat Þórhildur í allsherjar- og menntamálanefnd, atvinnuveganefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, efnahags- og viðskiptanefnd og Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins. Þá var hún þingflokksformaður Pírata 2017–2019 og 2023–2024.

Þórhildur Sunna sat í átta ár á þingi fyrir Pírata.Vísir/Vilhelm

Þórhildur vakti athygli á Alþingi fyrir skörulega framgöngu sína á þinginu þar sem hún beitti sér fyrir bótum á dómsmálakerfinu, breytingum á stjórnarskrá, mannréttindum og loftslagsmálum. Þó að Píratar hafi verið flokkur án formlegs formanns má segja að Þórhildur hafi tekið að sér forystuhlutverk síðustu árin á þingi og kom jafnan fram í kappræðum fyrir flokkinn.

Þórhildur var oddviti Pírata í Suðvesturkjördæmi í kosningunum 2024 en flokkurinn náði engum manni inn eins og áður hefur komið fram.

„Þannig fór um sjóferð þá,“ sagði Þórhildur um úrslitin daginn eftir kosningarnar og bætti við: „Það hafa verið forréttindi að sitja á Alþingi og einn daginn geri ég það upp en ekki í dag.“

Eftir að Þórhildur datt af þingi sótti hún um embætti framkvæmdastjóra Mannréttindastofnunar Íslands og að verða sendiherra Íslands en hreppti hvoruga stöðuna. Haustið 2025 tók hún svo við starfi alþjóðlegs framkvæmdastjóra Courage International, samtaka sem helga sig baráttunni fyrir fjölmiðla- og tjáningarfrelsi og vernd uppljóstrara og blaðamanna.

Þórhildur hefur jafnframt látið málefni Palestínu sig varða síðustu ár. Hún hefur tekið þátt í samstöðu- og mótmælafundum hérlendis og tók þátt í mótmælaaðgerðum hafnarverkamanna í Genóa og Róm í nóvember 2025 ásamt fjölþjóðlegri sendinefnd aktívista, sem innihélt meðal annars Gretu Thunberg, gegn þátttöku ítalskra stjórnvalda í þjóðarmorðinu í Palestínu.

#eru #fóru #hvar #píratarnir #sem


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262929429d/hvar-eru-piratarnir-sem-foru-med-himinskautum-

📰 Aðrar fréttir

Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum
📅 29.10.2026 👁️ 1
Verðbólgan stendur í stað í 5,9 prósentum
Verðbólgan var 5,9 prósent í október. Það er jafnmikil verðbólga og í síðasta mánuði.Eldsneytisverð hefur hækkað áfram og það veldur meiri verðbólgu e...
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Rukka erlenda nemendur um allt að 3,25 milljónir
Háskóli Íslands hefur birt yfirlit yfir skólagjöld sem erlendir nemendur frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins verða að greiða til að stunda nám ...
Notkun ólög­legra peptíða „rúss­nesk rúlletta“ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Notkun ólög­legra peptíða „rúss­nesk rúlletta“ - Vísir
Arna útskýrir að peptíð séu stuttar amínósýrukeðjur sem virka svona eins og boðefni í líkamanum sem geta svo haft alls konar áhrif og afleiðingar. „Vi...
Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Frum­varp kynnt um af­nám æviráðningar - Vísir
Frumvarpið má finna í samráðsgátt stjórnvalda en ráðherra leggur til að áfram verði notast við starfsheitin vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknar...
Þórður Pálsson segir „firru“ hafa gripið um sig í utanríkisráðuneytinu
📅 29.10.2026 👁️ 1
Þórður Pálsson segir „firru“ hafa gripið um sig í utanríkisráðuneytinu
Þórður Pálsson, forstöðumaður fjárfestinga hjá Sjóvá, gagnrýnir utanríkisráðuneytið harðlega í færslu á X. Hann segir „firru“ hafa gripið um sig í ráð...
Átti að fá 100 þúsund fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
📅 29.10.2026 👁️ 1
Átti að fá 100 þúsund fyrir að kveikja í bíl lögreglukonu
Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir...
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
📅 29.10.2026 👁️ 1
Væntir þess að úrskurður í máli sex landeigenda á Seyðisfirði sé fordæmisgefandi
Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja þau 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitar...
Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá
📅 29.10.2026 👁️ 2
Erfitt og íþyngjandi að deila forsjá
Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian segir að það sé erfitt og íþyngjandi að deila forræði með rapparanum Kanye West.Þau skildu árið 2021 og eiga sama...
Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Bein út­sending: Kynnir að­gerða­á­ætlun gegn fá­tækt barna - Vísir
Fjallað verður um áhrif efnahagslegrar stöðu á líðan og þátttöku barna, hvaða hópar standa höllum fæti og hvernig megi bæta stuðning og jafna tækifæri...
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð
📅 29.10.2026 👁️ 2
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð
Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og hafði lögregla meðal annars að hafa afskipti af manni sem sýndi ógnandi h...
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt
📅 29.10.2026 👁️ 2
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt
Eigandi íbúðar í tvíbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur hefur lagt fram kæru vegna byggingar eiganda hinnar íbúðarinnar, í húsinu, á skúr á lóð hússins. H...
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
📅 29.10.2026 👁️ 1
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts
Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts Hagnaður Arion banka jókst um hálfan millj­arð króna á þriðja árs­fjórð­ungi miðað vi...
Tuk-tuk tours launch in Lanzarote
📅 29.10.2026 👁️ 2
Tuk-tuk tours launch in Lanzarote
Visitors to Lanzarote have a new way to discover Arrecife following the arrival of a fleet of electric tuk-tuks offering guided tours of the capital.T...
Pedestrian dies after being hit by a car in Tenerife
📅 29.10.2026 👁️ 2
Pedestrian dies after being hit by a car in Tenerife
A 66-year-old man has died after being runover by a car on a road in Los Realejos, in the north of Tenerife yesterday evening, Wednesday 28th October,...
Fjölskyldudeilur vegna upp­boðs á gítar George Michael - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Fjölskyldudeilur vegna upp­boðs á gítar George Michael - Vísir
Gítarinn sem Michael lék á í tónlistarmyndbandinu við lagið Faith er meðal muna sem uppboðshúsið Sworders býður upp úr safni Siobhan Bailey, sem var l...
Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
📅 29.10.2026 👁️ 2
Síðustu dagarnir á síldarvertíðinni
Síldarvertíðinni fer að ljúka hjá flestum uppsjávarútgerðum landsins. Kvótinn í norsk-íslenskri síld er að klárast og þá hafa sumar útgerðir jafnvel k...
Leggja niður æviskipun næstæðstu saksóknara
📅 29.10.2026 👁️ 2
Leggja niður æviskipun næstæðstu saksóknara
Dómsmálaráðuneytið hefur birt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda sem gengur út á að fella niður embætti vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara. L...
BBC in the Philippines where Thomas Markle is expected to be investigated
📅 29.10.2026 👁️ 2
BBC in the Philippines where Thomas Markle is expected to be investigated
Jonathan Head is in Cebu, reporting from outside the home where Markle last resided.
Police find missing 10-year-old boy in Maspalomas
📅 29.10.2026 👁️ 2
Police find missing 10-year-old boy in Maspalomas
A 10-year-old boy has been found safe after becoming separated from his family while they were on holiday in Maspalomas, in south Gran Canaria.The boy...
Gular við­varanir en svo fremur milt í veðri - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 1
Gular við­varanir en svo fremur milt í veðri - Vísir
Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands segir að í dag verði alldjúp lægð við suðausturströnd Grænlands sem haldi að okkur mildum suðlægum átt...
Vinsæl megrunarlyf reynast maraþonhlaupurum erfið – „Ég þoli þetta ekki lengur“
📅 29.10.2026 👁️ 2
Vinsæl megrunarlyf reynast maraþonhlaupurum erfið – „Ég þoli þetta ekki lengur“
Vinsæl megrunarlyf á borð við Mounjaro og Zepbound geta haft veruleg áhrif á getu fólks til að stunda langhlaup. Nokkrir maraþonhlauparar hafa lýst er...
Sun or Snow? Two very different ways to enjoy a Winter Holiday
📅 29.10.2026 👁️ 2
Sun or Snow? Two very different ways to enjoy a Winter Holiday
Winter often brings shorter days and the familiar routine of wrapping up before leaving home. As temperatures drop across the UK, the thought of trave...
Elliði Vignis­son er eins og offitu-aktívisti - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Elliði Vignis­son er eins og offitu-aktívisti - Vísir
Þátttakendur í pallborðsumræðunum voru ekki læknar heldur offitu-aktívistar á borð við Da’Shaun L Harrison, sem heldur því fram að megrunarsprautur sé...
Orsakir 9 ára kyrrstöðu eru þungt ferli, ríkar kæruheimildir og afskiptaleysi - Leggja til að margfalda raforkuframleiðslu Íslands með almennri leið
📅 29.10.2026 👁️ 2
Orsakir 9 ára kyrrstöðu eru þungt ferli, ríkar kæruheimildir og afskiptaleysi - Leggja til að margfalda raforkuframleiðslu Íslands með almennri leið
Mat Viðskiptaráðs er að Ísland getur rúmlega tvöfaldað raforkuframleiðsluna fyrir 2040. Kortlagðir virkjunarkostir á Íslandi gætu margfaldað hana, en ...
Konur stýra nú sex af 27 félögum í Kauphöllinni
📅 29.10.2026 👁️ 2
Konur stýra nú sex af 27 félögum í Kauphöllinni
Konur stýra nú sex af 27 félögum í Kauphöllinni Guðný Helga Her­berts­dóttir er sjötta konan sem stýrir félagi í Kauphöll Íslands eftir stjórn­enda­sk...
Healey: 'There will be a reduction in the benefits bill'
📅 29.10.2026 👁️ 2
Healey: 'There will be a reduction in the benefits bill'
Chancellor John Healey says any cuts to welfare will be done "in a Labour way".
Flokkar ísraelskra araba mælast með 19 sæti
📅 29.10.2026 👁️ 2
Flokkar ísraelskra araba mælast með 19 sæti
Flokkar ísraelskra araba bæta við sig þingsætum nú þegar 92% atkvæða hafa verið talin. Flokkarnir eru tveir, Sameiginlegi listinn sem er nú með tólf s...
Blautt og hvasst í morgunsárið
📅 29.10.2026 👁️ 1
Blautt og hvasst í morgunsárið
Það blæs hressilega suðvestan til og við fjöll á Vesturlandi og undir Eyjafjöllum geta orðið allsnarpar vindhviður. Gular viðvaranir tóku gildi síðla ...
Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ - Vísir
Þar kom einnig fram að Sjúkratryggingar muni útvista verkefnum miðstöðvarinnar til annarra verkstæða. Í tölvupósti sem RÚV vísar til frá Sigurði Helga...
Sverrir segir að Elliði hafi tekið þátt í að skapa ástandið sem hann kvartar nú undan
📅 29.10.2026 👁️ 1
Sverrir segir að Elliði hafi tekið þátt í að skapa ástandið sem hann kvartar nú undan
Sverrir Helgason og notandinn Gerti halda því fram að Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, hafi sjálfur átt þátt í að skapa það ástand sem hann er nú...
Þriggja daga þjóðar­sorg hafin á Spáni - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Þriggja daga þjóðar­sorg hafin á Spáni - Vísir
Að sögn spænska innanríkisráðuneytisins hefur hundruðum manna verið stefnt á vettvang til að aðstoða við björgunar- og hreinsunarstarf. Notaðir eru dr...
Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir nám­skeiði - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir nám­skeiði - Vísir
„Björgunarsveitin Brimrún á Eskifirði er komin með fimm straumvatnsbjörgunarmenn sem hafa lokið Straumvatnsbjörgun 1 og 2 og eru að fullu útkallshæfir...
THURSDAY WEATHER: A slightly cooler day ahead for the Canary Islands
📅 29.10.2026 👁️ 2
THURSDAY WEATHER: A slightly cooler day ahead for the Canary Islands
Temperatures are expected to ease across the Canary Islands today, Thursday 29th October, as the calima is lifting, although it will remain warm in ma...
Telja síðustu at­kvæðin í Ísrael - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Telja síðustu at­kvæðin í Ísrael - Vísir
Þar kemur einnig fram að samkvæmt ísraelskum kosningalögum er hverjum kjósanda úthlutaður ákveðinn kjörstaður og getur hann einungis kosið þar. Við sé...
Tala látinna hækkað og DNA-sýnum ættingja safnað til að bera kennsl á lík
📅 29.10.2026 👁️ 2
Tala látinna hækkað og DNA-sýnum ættingja safnað til að bera kennsl á lík
Þriggja daga þjóðarsorg er hafin á Spáni í kjölfar alvarlegs lestarslyss sem varð í gær þegar hraðlest ók inn í kyrrstæða lest á miklum hraða.Lögregla...
Hópamyndun og hótanir ung­linga við fé­lags­mið­stöð í Kópa­vogi - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 2
Hópamyndun og hótanir ung­linga við fé­lags­mið­stöð í Kópa­vogi - Vísir
Í hverfi 101 var tilkynnt um innbrot og í Kópavogi um hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð við grunnskóla í bæjarfélaginu. Í tilkynningu s...
Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
📅 29.10.2026 👁️ 5
Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni
Mynd Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
📅 29.10.2026 👁️ 4
Age-checking methods for under-16s social media ban set out
Ofcom says photo and digital ID, banking checks or facial age estimation can help prove someone is 16 or over.
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
📅 29.10.2026 👁️ 4
John Healey promises reduction in welfare bill before next election
The Conservatives criticised the chancellor for not providing more details on welfare reform in his Budget.
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
📅 29.10.2026 👁️ 4
Láku upplýsingum um starfsmenn heimavarnarráðuneytisins
Upplýsingum um fleiri en 41 þúsund starfsmenn heimavarnarráðuneytis Bandaríkjanna var lekið á netið í gær af óhagnaðardrifnum samtökum uppljóstrara se...
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
📅 29.10.2026 👁️ 5
Spain begins three days of mourning after train crash kills dozens
Emergency teams worked through the night to find victims after one of the worst rail disasters in Europe's modern history.
Spain train crash: Audio reveals exchanges between control centre and drivers
📅 29.10.2026 👁️ 0
Spain train crash: Audio reveals exchanges between control centre and drivers
The recordings appear to show one high-speed train was given clearance to move even though another up ahead had stalled.
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
📅 29.10.2026 👁️ 4
Stjórnmálaflokkur ætlar að kæra lestarinnviðafyrirtækið
Vox, þjóðernissinnaður fjarhægriflokkur á Spáni, hefur segist ætla að kæra fyrirtækið ADIF, sem sér um lestarinnviði landsins, fyrir manndráp af gáley...
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
📅 29.10.2026 👁️ 4
Ætla að sekta mótmælendur um fjórföld mánaðarlaun
Albönsk stjórnvöld hafa ákveðið að sekta róstusama mótmælendur. Sektin hljóðar upp á 500 þúsund albanska leks, sem samsvarar um það bil 750 þúsund ísl...
Microsoft profits soar days after announcing thousands of layoffs
📅 29.10.2026 👁️ 0
Microsoft profits soar days after announcing thousands of layoffs
The week, the Windows developer said it would offer buyouts to 60,000 workers as it looks to curb costs.
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
📅 29.10.2026 👁️ 4
Þjóðaröryggisráð Moldóvu kallað til vegna umfangsmikillar netárásar
Þjóðaröryggisráð Moldóvu hefur boðað til fundar vegna netárásar sem gerð var á gagnabanka stjórnvalda. Árásin átti sér stað dagana 19. til 23. október...
Weight-loss jab boom brings Coventry needles warning for recyclers
📅 29.10.2026 👁️ 2
Weight-loss jab boom brings Coventry needles warning for recyclers
Recycling bosses say used needles are increasingly being found among household waste.
George Michael: Family row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 5
George Michael: Family row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
George Michael: Row over dozens items up for auction
📅 29.10.2026 👁️ 0
George Michael: Row over dozens items up for auction
The brother of the singer's late personal assistant says she would not have wanted the items to be sold.
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
📅 29.10.2026 👁️ 4
Notch setur glæsihúsið á sölu - Vísir
Sænski milljarðamæringurinn, sem er einnig þekktur sem „Notch“, greiddi sömu fjárhæð fyrir eignina þegar hann festi á henni kaup árið 2014, að því er ...