Arna útskýrir að peptíð séu stuttar amínósýrukeðjur sem virka svona eins og boðefni í líkamanum sem geta svo haft alls konar áhrif og afleiðingar.
„Við erum öll með peptíð og sum peptíð eru hormón og sum hormón eru peptíð. Kannski besta dæmið er insúlín. Við erum búin að vera að nota insúlín í meira en 100 ár. Insúlín er peptíð. Insúlín er reyndar stórt peptíð, vaxtarhormón líka og þessi nýju sem eru mest í umræðunni núna sem við köllum peptíð eru stuttar amínósýrukeðjur,“ segir hún og að þá meini hún þau sem hafi verið í umræðunni núna.
Hún segir peptíð hafa verið í notkun í meira en hundrað ár og fjöldi nota peptíð daglega en það hafi verið í aukinni umræðu í tengslum við til dæmis markaðssetningu GLP-1 líkra efna eins og Ozempic sem eru peptíð.
„GLP-1 er magahormón sem þessi lyf líkja eftir,“ segir hún og að eldri lyf séu „blokkerar“ sem setjist á einhverja viðtaka og hindri einhverja verkun en Ozempic virki öfugt og líki eftir hormónum og örvi starfsemi þeirra, eins og efnaskipti. Sum ný peptíð líki eftir vaxtarhormónum.
„En við höfum verið að nota vaxtarhormón, insúlín, oxytósín, fullt af svona líkum efnum sem við höfum verið að nota. Svo kemur Ozempic-ið sem verður svona frægt og það líkir eftir einu magahormóni,“ segir hún og að næsta lyf, Mounjaro, líki eftir tveimur magahormónum.
Reta löglegt á næsta ári
Svo komi önnur, eins og Retatrutide sem er kallað í daglegu tali Reta og fólk kaupir á svörtum markaði. Það er kallað Triple G og líkir eftir þremur hormónum. Arna segir þetta ekki samþykkt lyf en í gær hafi komið fyrsta rannsóknin þar sem borin eru saman Reta og Ozempic og því megi vænta þess að lögleg útgáfa af Reta komi á markað á næsta ári.
Arna og Viðar ræða peptíð á ráðstefnunni Heilsunni okkar í Háskóla Íslands á morgun. Arna segir að þar ætli hún þó ekki að ræða þessi löglegu peptíð, heldur þau ólöglegu.
„ Það sem ég ætla að tala um á morgun eru ólöglegu peptíðin, stuttar amínósýrukeðjur sem hafa verið mikið í umræðunni í Bandaríkjunum síðan í vor þegar ákveðin nefnd á vegum FDA, sem er bandaríska lyfjaeftirlitið, samþykkti eftir hvatningu frá þarlendum heilbrigðisráðherra að leyfa aftur þessi sex peptíð, að þau verði framleidd og seld á löglegan hátt.“
Þau verði framleidd í ákveðnum apótekum og seld sem lögleg peptíð en vandamálið sé að það séu nánast engar rannsóknir að baki ákvörðuninni sem hafa verið gerðar á mönnum. Hún segir það nýtt að lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum samþykki það og það tengist ráðherranum beint, Robert F. Kennedy Jr.
Dauðsföll í Bretlandi
Viðar er eftirlitsmaður á vegum Lyfjastofnunar og hefur verið það í níu ár. Hann segir ólögleg peptíð hafa verið að aukast verulega í meðferð og hann hafi orðið var við alvarleg tilvik á Íslandi og annars staðar. Í Hollandi á þessu ári hafi einstaklingur verið lagður inn á sjúkrahús vegna þess að hann notaði ólöglegt peptíð og er með óafturkræfar líffæraskemmdir.
„Það eru dauðsföll í Bretlandi þar sem eru röng efni í þessum ólöglegu efnum. Vegna þess að þegar þú ert að taka eitthvað af svarta markaðnum þá veistu ekkert hvað þú ert að taka. Það er insúlín í einhverju sem á að vera semaglútíð og kona lést sökum þess í Bretlandi 2024,“ segir Viðar og að það séu viðbrögð hjá Bandaríkjunum að reyna að hemja þann hluta.
Spurður um alvarleg tilvik á Íslandi segir hann slíkt aðeins skráð hjá eiturefnamiðstöðinni en fólk hafi verið hrætt við að tilkynna. Hann segir gervigreindina hafa veruleg áhrif í markaðssetningu og áhrifavaldar segi ýmislegt auk þess á samfélagsmiðlum sem sé ekki endilega sannreynt af læknum eða heilbrigðisstarfsfólki.
Arna segist ekki hafa séð nein alvarleg tilvik á Íslandi en til hennar hafi leitað fólk sem er að nota þessi lyf og hafi upplifað mikla vanlíðan og lyfin geti falið og haft áhrif á sjúkdómsgreiningu annarra sjúkdóma. Sé mikið þyngdartap til dæmis geti það verið merki um alvarlegan sjúkdóm. Lyfjunum fylgi engar leiðbeiningar um notkun og því viti fólk ekki einu sinni hvort það eigi að taka þau einu sinni, tvisvar eða þrisvar í mánuði.
„Þetta er bara villta vestrið. Svo kemur fólk með alls konar vanlíðan og ég held að læknar á Íslandi verði líka að fara að spyrja að þessu. Bara vakna upp við að fólk er að nota þetta og spyrja: Hvað varstu að taka, í hvað miklu magni og svo framvegis? Til að átta sig á því að þessi einkenni sem ég taldi upp geta bara verið út af þessu,“ segir hún en hún nefndi svima, vanlíðan, ógleði og önnur einkenni.
Ekki alslæmt
Arna segir þetta þó alls ekki alslæmt. Hún segir peptíð frábær sykursýkislyf og það sé mikil bylting í þessu og fólk nái árangri sem það aldrei hefur áður náð.
„Einhver sem er alltaf of þungur og allt í einu fær hann þetta vopn í hendurnar sem að virkar stórkostlega.“
Viðar segir árlega aukningu á þremur árum á póstsendingum frá Kína mikla og það tengjast þessu. Sem dæmi hafi þær verið um 850 þúsund en séu núna um 50 milljónir. Það þurfi að fylgjast með þessu og sérstaklega samhliða aukningu skipulagðra brota á Íslandi. Hann segir nýlegt dæmi um dóm vegna innflutnings falsaðra oxycontin-taflna, nitazene, sýna það.
„Það hefðu alveg örugglega orðið einhver dauðsföll. Það er alveg stórhættulegt efni,“ segir hann og að innflutningsleiðirnar séu orðnar margar og glæpastarfsemin sé orðin meiri.
„Glæpastarfsemi er farin að nýta sér þessa samfélagsmiðla. Það er verið að nýta sér markaðssetningu á efni sem virðist mjög fagleg.“
Viðar segir mikilvægt að fólk kaupi aðeins lyf í viðurkenndum apótekum og að hann myndi ekki ráðleggja neinum að kaupa neitt sem þú sprautar í þig á samfélagsmiðlum með og alls ekki lyf.
„Ekki sprauta einhverju í líkamann, ekki taka þátt í tilraunastarfsemi,“ segir hann og að á þeim átján peptíðum sem séu til sölu hafi ekki verið gerðar rannsóknir á manneskjum.
„Þetta er rússnesk rúlletta,“ segir hann og að eini árangurinn geti verið veikindi, líffæraskemmdir eða jafnvel dauði.
Fjallað verður um málið á fyrirlestri á Heilsunni okkar í Veröld, húsi Vigdísar, klukkan 11.45 til 13.15. Málþingið verður í beinni á Vísi á morgun.
Á fundinum verður fjallað um hvað peptíð eru, hvernig þau eru notuð í læknisfræðilegum tilgangi og hvers vegna þau hafa vakið mikla athygli að undanförnu. Rætt verður um mögulegan ávinning, heilsufarslega áhættu og mikilvægi eftirlits með notkun þeirra.