Dómur var kveðinn upp yfir þremur karlmönnum í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær vegna íkveikju í Tesla-bíl lögreglukonu. Allir voru þeir sakfelldir. Tveir fengu átta mánaða dóm og einn sex mánaða. Refsingar þeirra allra eru skilorðsbundnar svo þeir afplána ekki nema þeir brjóti aftur af sér.
Einn mannanna mætti fyrir dóm við þingfestingu og kvaðst saklaus. Hann fór af landi brott áður en aðalmeðferðin fór fram. Þrátt fyrir tilraunir ákæruvaldsins tókst ekki að hafa uppi á honum. Þó er vitað að hann vissi af aðalmeðferðinni þar sem hann hafði nýlega verið í sambandi við verjanda sinn.
Sannað þótti að einn sakborninga hefði skipulagt og undirbúið íkveikjuna, að annar maðurinn hefði átt að kveikja í bílnum en það hefði ekki tekist og að þriðji maðurinn hefði að lokum kveikt í bílnum. Sannað þótti að allir þrír hefðu ætlað að valda stórfelldum eignarspjöllum. Einnig taldi dómari að þeim væri öllum kunnugt um að íkveikjan væri hefnd.
Sá sem kveikti í bílnum sagði að hinn maðurinn, sem upphaflega átti að kveikja í bílnum, hefði átt að fá greitt fyrir verkið af „mafíunni“.
Maðurinn sem átti að kveikja í bílnum átti að fá 100 þúsund krónur fyrir verkið.
Einn mannanna hafði þegar verið úrskurðaður í tíu ára endurkomubann þar sem hann var grunaður um aðild að skipulagðri glæpastarfsemi. Einu skráðu tekjur hans voru félagsleg aðstoð frá Reykjavíkurborg.
Fram kom í fréttum RÚV fyrr á þessu ári að tveir mannanna búi hér á landi en einn í Svíþjóð.