Síldarvertíðinni fer að ljúka hjá flestum uppsjávarútgerðum landsins. Kvótinn í norsk-íslenskri síld er að klárast og þá hafa sumar útgerðir jafnvel klárað kvóta í sumargotssíld líka.
Uppsjávarskip Eskju, Aðalsteinn Jónsson, er á síldveiðum en skipið kom á miðin í fyrradag og tók fyrsta tog á Rauða torginu svonefnda, sem eru fiskimið austan við landið.
Þegar fréttastofa náði sambandi við brúnna var skipið þó komið nokkuð norðar í leit að síldinni. Þar stóð Þórhallur Hjaltason stýrimaður vaktina og segir hann misvel hafa gengið á vertíðinni.
„Hún hefur gengið svona þokkalega en þetta hefur verið svolítið svona hark,“ segir Þórhallur. „Það eru svona litlir blettir og fljótir að klárast og svo hefur veðrið ekki verið að hjálpa til heldur.“
Síðustu dagarnir
Þórhallur segir síldina nú færa sig austar en Aðalsteinn Jónsson hefur veitt blöndu af norsk-íslenskri síld og sumargotssíld og er kvótinn í þeirri síðarnefndu þegar búinn. Eitthvað er eftir af þeirri norsk-íslensku en vertíðin fer bráðum að klárast. „Ég held að þetta séu bara síðustu dagarnir.“
Fiskiðjuver Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur tekið á móti 23.000 tonnum af síld á vertíðinni en Síldarvinnslan á nú um 5000 tonn eftir óveidd. Vinnslustöðin á 1200 tonn eftir og stefnir á að veiða aðeins sumargotssíld frá og með næstu viku. Þá hefur Samherji lokið síldveiðum með öllu.