Nokkur erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt og hafði lögregla meðal annars að hafa afskipti af manni sem sýndi ógnandi hegðun í íbúðarhúsi. Þá bárust lögreglu tilkynningar um líkamsárás, innbrot og hótanir unglinga við félagsmiðstöð.Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem tekur til tímabilsins frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.Lögreglu barst tilkynning um óvelkominn mann í húsi í hverfi 105 í Reykjavík. Maðurinn sýndi ógnandi hegðun og var hann handtekinn og fluttur á lögreglustöð til frekari viðræðna.
Ógnandi maður handtekinn og unglingar sagðir hafa hótað fólki við félagsmiðstöð