Dómsmálaráðuneytið hefur birt frumvarp í samráðsgátt stjórnvalda sem gengur út á að fella niður embætti vararíkissaksóknara og varahéraðssaksóknara.
Lögum samkvæmt er hægt að skipa ótímabundið í þessi embætti. Sá sem hlýtur skipun í embættið heldur því þar til hann fer á eftirlaun eða hættir sjálfviljugur. Dómsmálaráðuneytið vill breyta þessu þannig að ótímabundin skipun í embættið falli niður. Þess í stað geti ríkissaksóknari og héraðssaksóknari valið sér staðgengla í embættið til allt að fimm ára.
Deilur um síðasta vararíkissaksóknara
Helgi Magnús Gunnarsson var síðasti maðurinn til að gegna embætti vararíkissaksóknara. Hann lét af starfi fyrir rúmlega ári síðan eftir að hafa neitað því að vera fluttur til í starfi. Þá hafði Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari óskað eftir því að Helgi Magnús yrði leystur frá störfum vegna ummæla hans um innflytjendur og samkynhneigða.
Mál Helga Magnúsar velktist lengi í kerfinu. Guðrún Hafsteinsdóttir, þáverandi dómsmálaráðherra, taldi ekki tilefni til að víkja honum úr starfi. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, eftirmaður Guðrúnar í embætti, reyndi að flytja Helga Magnús í embætti aðstoðarríkislögreglustjóra en hann hafnaði því.
Niðurstaðan varð sú að Helgi Magnús baðst lausnar. Þar sem hann var skipaður ótímabundinn fór hann strax á eftirlaun. Kostnaður við það var metinn um 200 milljónir króna.
Einn í embætti
Enginn hefur gegnt embætti vararíkissaksóknara síðan Helgi Magnús lét af störfum. Ef drögin sem kynnt hafa verið í samráðsgáttinni verða að lögum frá Alþingi tekur breytingin strax gildi hjá ríkissaksóknara.
Öðruvísi er farið hjá héraðssaksóknara. Þar er Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari. Þar tekur breytingin ekki gildi fyrr en embættið losnar.