Mörk skipulagssvæðis við strendur Íslands helgast af svokölluðum netlögum og liggja þau 115 metra út frá stórstraumsfjöruborði. Skipulagssvæði sveitarfélaga nær aðeins út að þessari fjarlægð frá landi og einnig yfirráðasvæði eigenda jarða sem liggja að sjó. Sveitarfélög hafa lengi reynt að fá þessu breytt og vilja hafa frekara skipulagsvald en þarna segir og geta haft um það að segja hvað fer í sjóinn inni í fjörðum. Þá hafa Landssamtök sjávarjarða sömuleiðis lengi kvartað yfir þessum mörkum.
Áfangasigur að aðild landeigendanna hafi verið viðurkennd
Í átökum um fiskeldi í Seyðisfirði hefur meðal annars verið tekist á um hvort landeigendur sex jarða, þar sem sjókvíar fyrirtækisins Kaldvíkur eru fyrirhugaðar undan landi, eigi aðild að umsókn um byggingarleyfi fyrir þessum mannvirkjum til sjókvíaeldis. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun taldi lengi að svo væri ekki, en í síðustu viku féll úrskurður hjá Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála á þá leið að landeigendurnir ættu þarna aðild. Katrín Oddsdóttir, lögmaður fimm landeigenda af sex, telur úrskurðinn marka tímamót.
„Kannski er það eitthvað sem við erum að sjá núna með Seyðisfjörð sem er náttúrlega mjög einstakt dæmi þar sem það er mikil andstaða við fyrirhugað eldi. Fólk hefur reynt að koma við andmælum á öllum stigum málsins bara frá því að þessi skipulagstildrög lágu fyrir þar sem var verið að segja: Nú ætlum við að fara að skipuleggja þetta hafsvæði, þá var mótmælt og svo er búið að mótmæla allar götur síðan. En það hefur einhvern veginn ekki náð í gegn.“
„Núna vorum við að vinna ákveðinn áfangasigur sem fólst í að byggingarleyfisumsóknin sem er eina leyfið sem á eftir að gera gefa út fyrir þetta sjókvíaeldi í Seyðisfirði, hún er hjá HMS, sem hefur í tvígang sagt að landeigendur sjávarjarða eigi ekki aðild að því máli og í tvígang hefur HMS verið gerð afturreka með það.“
„Við höfum kært þetta til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála sem í bæði skiptin sagði að það væri rangt að synja þeim og loks núna hafa þeir fallist á aðild.“
Landeigendur áður leitað aðstoðar með sambærileg mál
Katrín segir þetta í fyrsta sinn sem reynir á rétt eigenda sjávarjarða til að hafa lögformleg afskipti af umsóknum um byggingarleyfi við veitingu byggingarleyfa fyrir mannvirki við sjókvíaeldi hér við land. Landeigendur hafi áður leitað til hennar með slík mál.
„Það er svo sérstakt að þau sem eiga jarðir sem liggja að sjó og kannski algjörlega óspjallaðar jarðir og hafa einhvern veginn ekki fengið að koma með skýrum hætti að borðinu þegar verið er að ákveða að setja heimild fyrir sjókvíaeldi mjög nálægt þessum jörðum. Við vitum það hins vegar sem er að það er mjög mikil hávaðamengun, ljósmengun og bara alls kyns mengun sem kemur frá þessu og hefur auðvitað áhrif á eignarrétt fólks sem á slíkar jarðir. En það hefur einhvern veginn verið litið svolítið framhjá þessu hingað til og ég vona kannski að þessi breyting með að viðurkenna aðildina hjá HMS marki einhvers konar stefnu um það að fólk komist betur að þessum málum.“
Spegillinn sendi fyrirspurn til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar um hvort erindi hefði farið til landeigenda, sem eiga land að fyrirhuguðum eldismannvirkjum, um að HMS hefði fallist á aðild þeirra að málinu og þeim væri því heimilt að senda inn umsagnir varðandi leyfisveitingar. Í svari HMS segir að með hliðsjón af niðurstöðu úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála hafi stofnunin tekið beiðni landeiganda um málsaðild að nýju til meðferðar. Til að gæta andmælaréttar samkvæmt 13. grein stjórnsýslulaga var veittur frestur til og með 28. október til að koma sjónarmiðum á framfæri og eftir atvikum frekari gögnum áður en endanleg ákvörðun yrði tekin í málinu. Sá frestur var síðan framlengdur til og með 30. október.
„Ég á bara von á að þessu verði öllu snúið við“
Katrín segir að verið sé að vinna umsagnir frá hennar umbjóðendum samkvæmt gögnum sem borist hafa frá HMS. Hún telur að þessar umsagnir geti haft áhrif á önnur leyfi sem þegar hafi verið gefin út vegna þessa sjókvíaeldis.
„Við erum náttúrlega fyrst og fremst að benda á að það er alls ekki nægilega góð rannsókn sem liggur þarna til grundvallar. Ef það yrðu veitt byggingarleyfi á þeim forsendum sem nú blasa við þá væru það bara stórkostleg mistök.“
„Þarna er bara algjört vanmat á hættu á ofanflóðum, hættu á slysasleppingum ef ofanflóð lenda á þessum mannvirkjum og í raun og veru þá er leyfisbeiðanda sem er Kaldvík, búið að vera veitt heimild til þess að kalla eftir alls kyns gögnum sem ættu að vera á forsendum opinberra stofnana. Þannig að við munum andmæla þessu og bæði leyfin sem hafa verið gefin út í september hafa einnig verið kærð og ég á bara von á að þessu verði öllu snúið við.“
Sveitarfélagið Múlaþing er einn af þessum sex landeigendum við utanverðan Seyðisfjörð. Jónína Brynjólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar, segir að sveitarfélaginu hafi ekki borist erindi frá HMS um andmælarétt við útgáfu byggingarleyfis. Það útiloki þó ekki að Múlaþing sendi umsögn, meðal annars ítrekun á að farið verði að öllu og einu að lögum um rétt landeigenda við leyfisveitingar fyrir sjókvíaeldi, eins og sveitarfélagið hefur áður gert í þessu ferli.
Telur úrskurðinn fordæmisgefandi
Katrín telur að úrskurðurinn sem leiddi til þess að aðild landeigenda að byggingarleyfisumsókn Kaldvíkur í Seyðisfirði var viðurkenndur, sé fordæmisgefandi og veiti hér eftir landeigendum aukinn aðgang og rétt í sambærilegum málum. „Já, ég vænti þess að þetta sé fordæmisgefandi. Vegna þess að annars væri það einhvers konar brot á jafnræðisreglu ef að bara þessir tilteknu landeigendur ættu aðild að slíku máli en ekki aðrir, bæði fyrir og eftir, sem hafa viljað láta reyna á þau réttindi sín að verja eignarrétt sinn gagnvart þessari stóriðju.“