Eigandi íbúðar í tvíbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur hefur lagt fram kæru vegna byggingar eiganda hinnar íbúðarinnar, í húsinu, á skúr á lóð hússins. Hefur fyrrnefndi eigandinn kært þá ákvörðun byggingarfulltrúa borgarinnar, til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, að synja kröfu hans um stöðvun byggingar skúrsins og að hann verði fjarlægður, en til stendur að reka glerverkstæði í skúrnum. Krafðist hinn ósátti eigandi þess einnig að framkvæmdir yrðu stöðvaðar á meðan kæran er til meðferðar og hefur nefndin nú úrskurðað um þá kröfu.
Nágrannaerjur í miðborginni - Vill verkstæði nágrannans burt