Breska ríkisútvarpið (BBC) greinir frá endalokum rannsóknar á andláti Hayden Panettiere sem lést á heimili sínu í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst síðastliðinn eftir að hafa farið í hjartastopp.
Sjá einnig: Bestu hlutverk Hayden Panettiere
Lögreglan í Greenville hefur greint frá því að hún „hafi lokið rannsókn“ á andláti Panettiere og vísaði til niðurstöðu dánardómstjóra sem sagði eitrunaráhrif af völdum fentanýls, Xanax og nokkurra annarra lyfja hafa dregið leikkonuna til dauða. Auk fyrrnefndra lyfja mældist einnig vöðvaslakandi lyfið methocarbamol og geðrofslyfið quietapine.
„Út frá niðurstöðum réttarmeinafræðings og rannsóknarniðurstöðum hefur andlát Hayden Panettiere verið úrskurðað sem slys,“ sagði í yfirlýsingu lögreglunnar.
Samkvæmt heimildum BBC þá hafði bandaríska fíkniefnalögreglan einnig tekið þátt í rannsókninni en ekki liggur fyrir hvort þeirra hlut í málinu sé lokið.
Panettiere hafði glímt við fíknivanda í mörg ár en verið edrú í smá tíma áður en hún féll skömmu fyrir andlát sitt. Panettiere var barnastjarna sem ólst upp í Hollywood og lýsti hremmingum sínum í bransanum í ævisögu sinni, This Is Me: A Reckoning, sem kom út fyrr á árinu.