Þeim dómi áfrýjaði forsetinn fyrrverandi en saksóknarar áfrýjuðu honum einnig og vildu að Yoon yrði dæmdur til dauða en ekki í lífstíðarfangelsi. Sú áfrýjun hefur ekki verið tekin fyrir enn en saksóknarar hafa nú aftur krafist dauðadóms.
„Yfirmaður hersins, sem hafði svarið þess eið að virða stjórnarskrána, sendi hermenn út á götur með byssurnar beindar að fólkinu,“ hefur Yonhap-fréttaveitan eftir saksóknurum.
„Þetta var ófyrirgefanlegur glæpur sem lagði stjórnskipulega skipan landsins í rúst og var tilraun til að snúa klukkunni 40 ár aftur í tímann í Lýðveldinu Kóreu.“
Saksóknararnir sögðu einu réttlætanlegu refsinguna við þessum brotum vera dauðadóm.
Yoon ætlaði að nota herlög til að losa sig við pólitíska andstæðinga sína og taka sér aukin völd í landinu. Hann og bandamenn hans í hernum reyndu einnig að auka spennuna milli Suður- og Norður-Kóreu til að réttlæta beitingu herlaga og undirbjuggu áætlun sína í meira en ár.
Forsetinn setti á herlög í desember 2024. Það ástand varði þó einungis í nokkrar klukkustundir og í kjölfarið hrökklaðist hann frá völdum og var handtekinn.
Rannsókn leiddi í ljós að Yoon og bandamenn hans í hernum hefðu lagt á ráðin um herlög frá því fyrir október 2023 og þeir hefðu komið fleiri bandamönnum sínum fyrir í háttsettum stöðum innan hersins.
Yoon og Kim Yong Hyun, varnarmálaráðherra sem var honum hliðhollur, auk Yeo In Hyung, yfirmanns leyniþjónustu hers Suður-Kóreu, eru sagðir hafa framkvæmt nokkrar hernaðaraðgerðir sem ætlað var að kalla á viðbrögð frá Norður-Kóreu. Þar á meðal voru drónaflugferðir yfir Norður-Kóreu.
Síðasta aftaka fór fram í Suður-Kóreu árið 1997.