„Á árunum 1972-1999 starfaði ég sem skrifstofustjóri hjá samtökum útgerðarmanna, sem voru til húsa á II. hæð í Hafnarhvoli v/Tryggvagötu, Reykjavík. Herbergi mitt var í norðurenda hússins og hafði ég gott útsýni yfir allan Ægisgarðinn, en lítið meira en það af höfninni. Fljótlega eftir að ég hóf þarna störf rakst ég á tvo riffla, sem geymdir voru í skjalageymslu í miðju hússins og hafði af einhverjum ástæðum dagað þarna uppi.“
Miðaði riffli að skipi Gorbatsjovs í Reykjavíkurhöfn – „Ertu orðinn snarvitlaus, maður!“