Bogi Ágústsson ræddi við Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunni Elísabetu Bogadóttur um nýafstaðnar kosningar í Brasilíu, Serbíu og Ísrael. Þá ræddu þau einnig horfurnar fyrir kosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku. Bogi segir að túlka megi úrslitin í Brasilíu og Serbíu sem tap þjóðernissinnaðra pópúlista þar sem ungt fólk hafi tekið mikinn þátt og verið virkt í kosningabaráttunni.
Óvæntur sigur Lula
Flávio Bolsonaro, sonur fyrrverandi forseta Jair Bolsonaros, fékk flest atkvæði í fyrri umferð forsetakosninga í Brasilíu og flestir bjuggust við því að hann ynni auðveldan sigur í síðari umferðinni á sunnudag. Svo fór þó ekki, stuðningsfólki Lula da Silva forseta tókst að boða út fjölmennt lið ungs fólks sem kallaði sig „Her Lulas“ ( Exército do Lula ). Þau stofnuðu WhatsApp-hóp sem náði mikilli útbreiðslu og vinsældum. Her Lulas tókst að ná forystunni í kosningabaráttunni á samfélagsmiðlum og snúa undanhaldi í sókn. Lula fékk 51,8 prósent atkvæða í síðari umferðinni.
Bolsonaro neitar að viðurkenna ósigur og flúði úr landi
Flávio Bolsonaro tók ósigrinum illa og kenndi kosningasvindli um, sagði að ekki væri möguleiki að Lula hefði tekist að bæta við sig jafn miklu fylgi og raun bar vitni frá fyrri umferðinni til hinnar síðari. Hann flúði úr landi til Bandaríkjanna þar sem hann sagðist réttkjörinn forseti og glæpamenn hefðu stolið kosningunum og hefðu komið á harðstjórn. Bolsonaro sætir rannsókn fyrir spillingu og peningaþvætti og dómstóll hafði bannað honum að fara úr landi.
Trump veitir Bolsonaro landvistarleyfi en er varkár í tali um kosningarnar
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur veitt fjölskyldunni leyfi til að dvelja þar. Bolsonaro segist ætla að leiða stjórnarandstöðuna úr sjálfskipaðri útlegð í Bandaríkjunum. Hann neitar að hafa flúið land. BBC hafði eftir honum að hann hefði farið fyrir Brasilíu. Óvíst hvernig stuðningsmenn hans taka ósigrinum. Trump sagði í gærkvöld að hann ætlaði ekki að kommentera á kosningarnar í Brasilíu, sagði að það hefði verið komið illa fram við Bolsonaro, sagði kosningarnar hafa verið skrítnar og að hann hefði ekki tekið afstöðu í kosningunum. Samband Bolsonaro og Trumps var mjög slæmt en samkvæmt BBC hefur það skánað og Trumps virðist nú ekki vilja móðga Brasilíuforseta um of. Breska blaðið Guardian segir hins vegar að eftir þriggja ára sigurgöngu bandamanna Trumps í Suður-Ameríku sé ósigur Bolsonaros þungt áfall fyrir Bandaríkjaforseta.
Óljós staða í Ísrael eftir kosningar
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tapaði stuðningi í þingkosningunum í Ísrael en Likud-flokkur hans er þó stærstur á þingi. Natanjahú og stuðningsmenn hans hafa ekki lengur meirihluta á Knesset, ísraelska þinginu. Fylking undir forystu Gadis Eisenkots, fyrrverandi yfirhershöfðingja, hefur heldur ekki nægilegt þingfylgi til að mynda meirihlutastjórn. Flokkar araba sem eru ísraelskir ríkisborgarar juku fylgi sitt mikið, ekki síst vegna aukinnar kjörsóknar. Netanjahú hefur þvertekið fyrir að vinna með flokkum araba og Eisenkot sagði fyrir kosningar að það kæmi ekki til greina að vinna með flokkum sem eru ekki tilbúnir að skilgreina Hamas sem hryðjuverkasamtök. Breska tímaritið The Economist segir að eðlilegt væri að andstæðingar fyrri stjórnar, Eisenkot-fylkingin og flokkar araba myndi nýja stjórn.
Óvæntur stórsigur stúdentahreyfingarinnar í Serbíu
Mikil mótmæli hafa verið í Serbíu eftir slys í Novi Sad í nóvember 2024 þar sem 15 manns létust er þakskyggni á lestarstöð hrundi. Mótmælendur kenndu fúski við smíði um og þetta væri dæmi um landlæga spillingu. Stúdentar fóru fyrir mótmælunum og kröfðust nýrra kosninga. Fyrr í haust varð Aleksandar Vučić forseti við kröfunum og boðaði til kosninga þó að meira en ár væri eftir af kjörtímabilinu. Stúdentalistinn fékk hreinan meirihluta á þinginu í Belgrad en óvíst er hvernig ný stjórn verður skipuð. Stúdentahreyfingin hefur aldrei skipað neinn leiðtoga heldur markvisst starfað með dreifðri forystu. Sömuleiðis eru helstu stefnumál óljós nema að áhersla verður lögð á að berjast gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi.
Vučić hrökklast frá völdum eftir 14 ára valdasetu
Aleksandar Vučić var forsætisráðherra frá 2014-2017 og hefur síðan verið forseti landsins. Hann mátti ekki sitja lengur í forsetaembættinu og bauð því sig fram sem forsætisráðherraefni Framfaraflokks síns. Umtalsverðar efnahagslegar framfarir hafa verið í landinu á valdatíma hans en hann hefur jafnframt setið undir ásökunum um spillingu, kosningasvik og andlýðræðislega tilburði. Þannig var þrengt að frelsi fjölmiðla, háskóla og annarra stofnana þar sem Vučić skipaði óhikað fólk undirgefið sér í embætti. Þá var hann hallur undir bæði Trump Bandaríkjaforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann neitaði að taka þátt í refsiaðgerðum gegn Rússum vegna innrásar þeirra í Úkraínu. Ekki er búist við að ný stjórn breyti því.