Fjórðungsþing Vestfirðinga skorar á innviðaráðherra að endurskoða skilyrði þess að Breiðafjarðarferjan Baldur sé nýtt sem varaskip fyrir Vestmannaeyjar. Það vill að komið verði í veg fyrir að upp komi staða líkt og í sumar, þegar Baldur var nýttur til siglinga milli lands og Eyja.
Í ályktun fjórðungsþings Vestfirðinga segir að samkvæmt samningi ríkisins við Ferjuleiðir sé Baldur skilgreindur sem varaskip fyrir Herjólf, sem siglir á milli lands og Vestmannaeyja, en í sumar hafi hann verið nýttur samhliða Herjólfi.
Baldur sé lífæð Flateyjar þar sem öll aðföng til eyjunnar séu flutt þangað á siglingum ferjunnar milli Brjánslækjar og Stykkishólms.
Þar að auki sé Baldur mikilvægur allri ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Það hafi því haft alvarleg og neikvæð áhrif þegar ferjan var tekin úr siglingum yfir háannatíma ferðaþjónustu – ekki síst á þeim stöðum þar sem ferðamannatímabilið er stutt.