Mannlíf greindi fyrst frá málinu.
Á vef héraðsdómstólanna má sjá að málið er skráð sem skuldamál og verður tekið fyrir að morgni dags mánudaginn 2. nóvember. Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson gætir hagsmuna Ragnhildar en Þorsteinn Einarsson fer með málið fyrir hönd Eiðs Smára.
Ekki liggja frekari upplýsingar um málið en samkvæmt heimildum fréttastofu snýst málið um meðlagsskuld Eiðs Smára. Ragnhildur höfðaði einnig mál gegn Eiði fyrir Héraðsdómi Reyjavíkur árið 2022 vegna sambærilegra saka en það mál var á endanum leyst utan dómstóla.
Ragnhildur og Eiður Smári byrjuðu saman ung að árum og eiga þrjá syni og eina dóttur. Þau bjuggu lengi saman erlendis vegna atvinnumannaferils Eiðs sem spilaði víða á sínum ferli, meðal annars á Englandi, Spáni, Grikklandi, Belgíu og í Mónakó. Þau skildu árið 2017 eftir 23 ára hjónaband.
Ragnhildur starfar sem pílatesþjálfari en Eiður hefur starfað sem álitsgjafi og knattspyrnuþjálfari eftir að hann lagði skóna á hilluna. Eiður tók síðast að sér að þjálfa Kmattspyrnufélag Akureyrar í Bestu deildinni og náði að snúa hræðilegu gengi liðsins við en tókst samt ekki að bjarga því frá falli.