Ljósmyndari fréttastofunnar Anton Brink skellti sér á vettvang á þriðjudag þegar verkið við að draga brúna yfir ána hófst formlega. Sjá má á myndefninu að um mikið þolinmæðisverk er að ræða.
Brúin var smíðuð í einingum í Póllandi. Samkvæmt tilkynningu Vegagerðarinnar er þyngd brúarinnar rétt um tvö þúsund tonn. Áætlað er að brúin verði komin í gagnið haustið 2028.
Sjá má brúna skríða yfir ána í myndbandinu hér fyrir neðan.
Yfirlitsmyndefni af brúnni má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan.